Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 24.04.2002, Side 10

Víkurfréttir - 24.04.2002, Side 10
BRÉF TIL BLAÐSINS / HBB@VF.IS ■ Versnandi atvinnuástand á Suöurnesjum Atvinnuástand á Suður- nesjum hefur heldur versnað fyrstu mánuði ársins hefur heldur versnað ef miðað er við tvö síöustu ár þ.e. 2000 og 2001. Ástandiö núna er líkt og árið 1999 hvað fjölda atvinnulausra snertir en ólíkt hvað kynjahlutfall snertir þar sem karlmönnum á atvinnuleysisskrá hefur fjölgað umtalsvert. í lok mars eru 93 karlar atvinnulausir á Suðurnesjum á móti 146 kon- um. Flestir eru ófaglærðir. Hvað varðar atvinnuleysi karla þá má um kenna samdrætti í byggingageiranum og í verk- takastarfsemi. Einnig hefur bor- ið á uppsögn sjómanna þar sem verið er að leggja mörgum smærri bátanna vegna kvóta- leysis og erfíðrar fjárhagsstöðu. Samdráttur hefur einnig átt sér stað í verslunargeiranum, smærri verslunum fækkar á kostnað hinna stóru. Eins og venjulega á þessum árs- tíma er verið að ráða fólk til sumarafleysinga og gengur það nokkuð greitt fyrir sig. Ástandið fram undan er nokkuð bjart en aftur á móti eru blikur á lofti varðandi næsta haust og vetur. Ef fram heldur sem horfir í sjávarútveginum þá kemur til með að fækka starfsfólki i físk- vinnslunni. Flugleiðir hafa gef- ið út yfirlýsingu um samdrátt í flugi á Bandaríkin nánar tiltekið New York en ferðir þangað verða lagðar niður á haustdög- um í ár fram til næsta vors árið 2003. Það er bót í máli enn sem kom- ið er að litið er um langtíma at- vinnulaust fólk á skrá. Meðal viðverutími á skránni hefiir ver- ið í kringum 3 mánuðir og telst það nokkuð gott. Þau úrræði sem hafa verið í gangi hjá Vinnumiðlun fyrir at- vinnulausa hafa bæði verið miðuð við hópa og einstaklinga. Fyrir hópa hafa tölvunámskeið og „ að sækja um vinnu“ verið helst í boði en vinnuvélanám- skeið og meirapróf verið ein- staklingsmiðaðri og þá í sam- vinnu við stéttarfélag viðkom- andi atvinnuleitanda. Þrátt fyrir bjartsýni erum við sannfærð um það að hlúa þurfí betur að þeirri atvinnustarfsemi sem fyrir er á svæðinu og vera opin fyrir nýjum tækifæmm. F.h. Svm. Suðurnesja, Ketill G. Jóscfsson Bergný Jóna Sævarsdóttir, grunnskólakennari:__ Aö vinna meö traustu fólki! Kæru Sandgerðingar! Að mjög vel athuguöu niáli tók ég ákvörðun um að þyggja boð um aö skipa 5. sæti K-listans í Sand- gerði. Ástæða þess að ég tók þessa ákvörð- un er sú að með því fæ ég tækifæri til að vinna með traustu og reyndu fólki sem hefur sýnt í verki getu sína til að stjóma bæn- um okkar af miklum dugnaði og ábyrgð. Ég tel mjög nauðsynlegt fyrir okkur Sandgerðinga að Jóhanna Norðfjörð nái kjöri til bæjar- stjómar en hún hefur unnið mjög vel fyrir okkur bæjarbúa á þessu kjörtímabili. Með því aö Jóhanna nái kjöri, verð ég fyrsti varamaður i bæjar- stjóm og tek þá fullan þátt í allri umfjöllun og ákvarðanatöku um þau mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Einnig tel ég að þetta gefi mér tækifæri til að vinna með góðum árangri að málefnum yngra fólks hér í bæn- um og öðmm þeim málum sem mér em hugleikin. Ég er ný i þessum hópi og er nú að takast á við ný verkefni og er fullviss um að ég er mjög vel fær um það. Ég hef mikið starfað með fólki, t.d. setið sem vara- maður í stjóm Verkalýðsfélags- ins, íþrótta- og tómstundaráði og starfa nú á þriðja ári í stjórn Knattspyrnudeildar Ksf. Reynis. Ég get sagt það með hreinni sam- visku að ég læt mig málefni Sandgerðisbæjar miklu skipta og ég vil taka virkan þátt í þvi að gera bæinn að enn blómlegra bæjarfélagi og þar held ég að við séum á réttri leið. Ég lít á mig sem fulltrúa unga fólksins og í Sandgerði býr metn- aðarfullt ungt fólk og ég veit að bæjarfélagið þarf að taka sig á í því að halda þessu fólki hér. Við þurfiim að geta boðið ungu fólki upp á þann valkost að geta byijað búsetu sína hér. Eins og staðan er í dag er ekki pláss fyrir alla þá sem vilja búa hér. Fólk sem t.d. er í námi annars staðar sér það ekki alltaf sem kost að koma hingað aflur, en hér vantar hús- næði þrátt fyrir að mikið hafi verið byggt. Skólastarfið er einnig blómstr- andi og sífellt fleiri sækja i frekara nám. Ég er mjög ánægð með þann metnað sem er að byggjast upp í skólastarfinu, t.d. hvað varðar góðan útbúnað og ráðningar á hæfu og lærðu starfs- fólki. Nú er einnig mikil upp- bygging á leikskólanum Sólborg og það er sannfæring mín að sami metnaður sé að byggjast upp þar. Ég hef lengi tekið þátt í starfi unglinga, bæði sem neytandi og sem starfsmaður Skýjaborgar. Ég hef verið starfsmaður Skýjaborg- ar frá 18 ára aldri og þar hefur mikið og öflugt starf farið fram, sem er í sífelldri þróun til hins betra. Ég verð að lýsa mjög mik- illi ánægju með það starf sem þar ferffam. í framtíðinni munu börn verða lengur börn og með breyttum sjálffæðisaldri er það undirstrik- að. Þá er komið að því að huga að aldrinum 16-18 ára. Ég held að ég geti fullyrt að fólk sé orðið leitt á Miðhúsarvanda- málinu og við losnum ekki við það nema eitthvað annað komi í staðinn, s.s. félagsmiðstöð eða athvarf fyrir umræddan hóp. Ég vil að Sandgerði sé bær sem laðar að sér fólk og að allir geti búið hér sáttir. Við erum i nálægð við flugvöllinn og höfúðborgar- svæðið, við erum með mjög góða skóla og blómstrandi mann- líf. Þetta eigum við að nýta okk- ur. Reynum að halda fólkinu hér, laða að nýtt og untffam allt að ná Sandgerðingum til baka sem hafa farið eitthvert annað. Ég veit að þetta er hægt og ég vil gera mitt í því að þetta verði gert. Kæru Sandgerðingar! Eins og ég hef áður sagt hugsaði ég mig vel um áður en ég tók á- kvörðun um að vera með á ffam- boðslista. Ég er fullviss um að ég tók rétta ákvörðun. Hér er ég með fólki með ákveðnar skoðan- ir, þekkingu á mismunandi svið- unt og umffam allt þá kem ég til með að vinna með fólki sem hef- ur hvað besta þekkingu á málefh- um Sandgerðisbæjar. Hvar ann- ars staðar stæði ég í betri sporum með minn metnað og það að leiðarljósi að ég ætla mér að hafa áhrif á það sem gert verður í Sandgerði, bæjarfélaginu mínu? Ég tel mig vera á rétta staðnum til að byija og byija vel. Með von um góðan stuðning! Bergný Jóna Sævarsdóttir í 5. sæti K - listans í Sandgerði. Keflavíkurverktakar inn- rétta nýjan Windbreaker Windbreaker á Keflavík- urflugvelli opnaði að nýju sl. föstudag. Keflavíkurverktakar hafa síð- ustu vikur og mánuði breytt gömluni mcssa á Vellinum í glæsilegan samkomustað fyrir einhleypa Varnariiðsmenn. Windbreaker er þekktur á Kefla- víkurflugvelli. Samkomu- og skemmtistaðirnir eru færðir til reglulega og nú hefur Windbrea- ker opnað í gömlum messa þar sem síðast var vinsæll pizzastað- ur á Keflavíkurflugvelli. Það kom ffam við opnunina að Keflavíkurverktakar hafa unnið ffábært verk og voru vinnubrögð fyrirtækisins lofuð. Staðurinn er allur hinn glæsilegasti en þar er Netkaffihús, tölvuleikjasalur, piluspjöld, snóker, risastórt sjón- varp með tónlistarmyndböndum og kvikmyndasalur sem tekur 16 manns i sæti. Aðstandendur stað- arins eiga von á miklum vinsæld- um en staðurinn er bæði vín- og tóbakslaus. Guðbrandur Einarsson skrifar: Fjölskylduflokkarnir? Fyrir nokkru var lögð fram ársskýrsla Fjölskyldu- og félags- þjónustu Reykjancsbæjar fyrir áriö 2001. Er þar að fínna ýmsar gagnlegar upplýsingar um þróun þcssa málatlokks á liðnu ári. Það má t.d lesa í þessari árskýrslu að þörfín fyrir ýmsa félagslega aðstoð hefur aukist verulega. Fyrir því liggja vafalaust margar ástæður en flestar þó vegna ástæðna sem við viljum vera laus við, svo sem vegna veikinda og atvinnuleysis. Maður hefði því haldið að fjölskylduflokkamir í meiri- hluta bæjarstjómar brygðust við og leggðu til mála- flokksins þær upphæðir sem þarf. Nei ó nei, það er nú ekki svo. Ef við bemm saman útgjöld vegna ársins 2001 viö það sem áætlað er í málaflokkinn á árinu 2002 kemur eftirfarandi í ljós: 2001 Heildarútgjöld: 182.549.000,- Fölskylduogfélagsþjónusta 44.639.000- Fjárhagsaðstoð 24.130.000,- 2002 160.708.000,- 39.810.000,- 20.000.000,- Hver er ástæðan fyrir þessu? Er fólk kannski að flytja burtu? Er at- vinnuleysi að minnka ? Em færri veikir ? Á að segja upp fólki í félags- þjónustunni eða er áætlun fjölskylduflokkanna bara marklaust plagg samið i tilefhi kosninga til að sýna sæmilega rekstramiðurstöðu. Ég óttast að svo sé ekki. Kosningaslagorð sjálfstæðismanna, nú í þessari kosningabaráttu er um að þeir færi orð í efndir. Ég vil hins vegar skora á Reykjanesbæjarbúa að koma i veg fyrir áætlanir þeirra ef þetta verða efndimar. Guöbrandur Einarsson varabæjarfulltrúi 10

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.