Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 24.04.2002, Qupperneq 18

Víkurfréttir - 24.04.2002, Qupperneq 18
Eva Berglind og Heiðrún Rós innanfélagsmeistarar Innanfclagsmót fímleikadeildar Keflavíkur var haldið í íþrótta- húsinu við Sunnubraut sl. laug- ardag. Það voru Heiðrún Rós Þórðardóttir og Eva Berglind Magnúsdóttir scm uröu innanfé- lagsmcistar, Hciörún í almenn- um fímleikum með einkunnina 34,5 og Eva í áhaidafímleikum með cinkunina 31,4. Mótið hófst kl. 10:00 og því lauk um kl. 17:30. Keppt var í áhalda- og almennum fimleikum 1 öllum aldursflokkum og var mikil stemn- ing í húsinu enda um 140 iðkendur sem kepptu á mótinu. Milli atriða voru skemmtiatriði sem lífguði mjög upp á daginn. Krakkar úr Myllubakkaskóla sýndu atriði úr Bugsy Marlone, elsti hópurinn í al- mennum fimleikum var með dans- sýningu og svo að lokum var tísku- sýning fiá Kóda. Mikill fjöldi á- horfenda var á svæðinu og þótti mótið takast mjög vel. Jóhann Birnir og félagar byrja vel Jóhann B. Guðmundsson og félag- ar hans í Lyn sigruðu Lilleström 2:0 um sl. helgi í norsku úrvals- deildinni í knattspymu. Lyn hefur unnið tvo íýrstu leikina og er því með fullt hús stiga. Grindvíkingar sigruðu í markaveislu Grindvíkingar sigmðu Keflvíkinga 5-4 í deildarbikamum í knatt- spymu sl. sunnudag. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöll og var hann mikil skemmtun enda mikið um mörk. Guðmundur Steinarsson skoraði tvö marka Keflavíkurliðs- ins og þeir Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Benediktsson sitt mark- ið hvor. Markaskorarar Grindavík- urliðsins vom Sinisa Kekic með tvö mörk, Guðmundur Bjamason, Grétar Hjartarson og Paul Mcs- hane. SP0RTM0LAR / SJABBI@VF.IS Meistararnir kepptu við NES í boccia Nýkrýndir íslandsmeistarar Njatð- víkur í körfubolta mættu á æfingu hjá íþróttafélaginu NES á miðviku- dag. Skipt var fjögur í lið, tvö frá Njarðvík og tvö ffá NES. Njarð- víkurkappamir spiluðu bæði við yngri og eldri hópana. Bæði Njarð- víkurliðin unnu yngri hópana, en eldri hópamir hjá NES rúlluðu þeim upp. Annað liðið úr eldri hópnum em íslandsmeistarar í sveitakeppni. Þess má geta að Keflvíkingar kepptu einnig við NES fyrir nokkrum vikum þar sem NES vann alla leikina. NES vildi þakka bæði Keflavíkur- og Njarð- víkurliðunum sérstaklega fyrir að hafa séð sér fært um að gera sér glaðan dag með Nesurunum. Njarðvíkingar íslandsmeistarar í unglingaf lokki Njarðvíkingar urðu fslandsmeistar- ar í unglingafiokki karla í körfuknattleik um sl. helgi eftir sig- ur á Haukum í úrslitaleik, 70:66. Haukar bytjuðu betur og leiddu í hálfleik 34:27 en 1 seinni hálfleik tóku Njarðvíkingar sig saman í andlitinu og náðu forystu sem þeir héldu út lcikinn. Guðmundur Jónsson var atkvæða- mestur í liði Njarðvíkinga með 25 stig og 10 ffáköst. Þorbergur Þór Heiðarsson var með 10 stig og 10 fráköst, Grétar Már Garðarsson gerði 9 stig, Ólafur Aron Ingvason gerði 8 stig, Agnar Már Olsen gerði 7 stig, Amar Þór Smárason gerði 6 stig, Atli Geir Júlíusson gerði 3 stig, Agnar Mar Gunnarsson gerði 2 stig og Egill Jónasson tók 1 frá- kast og varði 1 skot. Jónas Ingason lék ekki. Njarðvíkingar hafa því unnið fjóra íslandsmeistaratitla á þessu tímabili, í meistaraflokki karla, unglingaflokki karla, 10,- flokki karla og 7.flokki karla. 11. flokkurinn í Njarðvík þurfti að sætta sig við silfrið 11. flokkurinn í Njarðvík tapaði úr- slitaleiknum um íslandsmeistartitl- inum í körfubolta karla gegn Fjölni, 95:94, um sl. helgi. Leikur- inn var spennandi og skemmtilegur allan tímann og úrslit réðust ekki fyrr en fjórum sekúndum fyrir leikslok þegar Fjölnismenn skor- uðu sigurkörfuna. Jóhann Ámi Ólafsson var atkvæða- mestur og gerði 32 stig, tók 10 frá- köst, varði 4 skot, stal 3 boltum og gaf 7 stoðsendingar. 10. flokkur karla í Njarðvík ís- landsmeistari fjórða árið í röð ! Strákamir í lO.flokki í Njarðvík urðu um þarsíðustu helgi íslands- meistarar í körfu er þeir sigmðu Þór fiá Akureyri í úrslitaleik 69-59. Þetta var fjórði fslandsmeistaratitill þeirra á fjórum árum. Jóhann Ámi Ólafsson var stigahæstur í leiknum og gerði 33 stig, tók 15 ftáköst og gaf 5 stoðsendingar. Kristján Rúnar Sigurðsson kom næstur með 19 stig, 9 fiáköst, 5 stolna bolta og 4 stoðsendingar. Grindavík íslandsmeistari í minnibolta kvenna Grindavíkurstúlkur urðu íslands- meistarar í minnibolta kvenna um þarsíðustu helgi. Liðið vann alla leiki sina í lokaumferðinni sem ffam fór í Grindavik en þetta er annað árið í röð sem Grindavík vinnur lslandsmeistaratitilinn í minnibolta kvenna.Þetta er annar íslandsmeistaratitill kvennaliða Grindavíkur í vetur en 7. flokkur félagsins varð einmitt meistari á dögnunum. Íslandsmeistarar Grindavíkur í minnibolta kvenna 2002 em eflirtaldar stelpur: Elka Mist Káradóttir, Lilja Sigmarsdótt- ir, Kristín Harpa Sigurfinnsdóttir, Ingibjötg Jakobsdóttir, íris Sverris- dóttir, fyrirliði, Anna Þórunn Guð- mundsdóttir, Elínborg Ingvarsdótt- ir, Jenný Óskarsdóttir, Sólveig Birgisdóttir, Alma Rut Garðarsdótt- ir, Helga Dís Jakobsdóttir, Sunneva Ævarsdóttir, Hrefna Harðardóttir og Helga Gestsdóttir. Keflavík A og Keflavík B mættust í undanúrslitum Skemmtileg viðureign átti sér stað í undanúrslitum í 9. flokki kvenna í körfu um sl. helgi. Þá spilaði Kefla- vík b, sem er í raun 8. flokkur fé- lagsins við Keflavík a um sæti í úr- slitum. Keflavík b gerði sér lítið fyrir og sigraði leikinn 56:42 en staðan í hálfleik var 32:21. Maria Ben átti stórleik hja b-liðinu og skoraði 27 stig en hjá a-liðinu var Anna María Ævarsdóttir best með 17 stig. B-liðið spilaði svo í úrslit- um við Hauka en töpuðu 31:29 eft- ir æsispennandi leik og þurftu því að sætta sig við 2. sætið sem er ftá- bær árangur hjá stúlkunum enda einu ári yngri en keppinautamir. Bryndís Guðmundsdóttir var stiga- hæst hjá b-liðinu í úrslitaleiknum með 14 stig og María Ben með 11 stig. Talsverð umræða vaknaði eftir leik- inn um hvort rétt væri að láta tvö lið innan sama félags keppa gegn hvor öðm. Hvort ekki hefði verið rétt að búa til “úrvalslið" beggja liða því þá hefði Islandsmeistartit- illinn væntanlega unnist. Þetta hef- ur einnig verið erfitt fyrir stuðn- ingsmenn liðanna því þcir þurftu að etja kappi gegn hvor öðmm, fólk sem vananlega styður sama liðið. Um þetta em þó skiptar skoaðanir og hafa báðir aðilar nokkuð rétt til málanna að leggja. Það er þó nokkuð ljóst að í báðum liðum em ffamtíðarleikmenn meistaraflokks og því má segja að ffamtíðin sé björt í kvennakörfimni í Keflavík. Sportið: sjabbi@vf.is Erla Dögg Haraldsdóttir: £RLA DÖGG HARALDSDÓTTIR INÆRMYND Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerira? „Að vera með vinkonum mínum og líka að synda“ Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? „Að læra heima“ Mest aðlaðandi „stjama“? „Brad Pitt er flottur“ Hvemig tónlist hlustur þú á? „Ég hlusta mest á rapp og bara venjulega tónlist" Besta kvikmynd? „Þær em margar, t.d. Rush Hour 2“ Besti leikari? „Julia Roberts" Skemmtilegasta bókin? „Strákar í stelpuleit" Hvernig síma áttu? „Nokia 3330“ Flottasta SMS-ið? „Það em svo mörg flotf* Uppáhalds drykkur? „Ávaxta Leppin“ Hvaða fatamerki „fílar“ þú mest? „Diesel og Gas em flottustu merkin" Hvert er átrúnaðargoðið? „Kolbrún Yr Kristjánsdóttir sundkona" Spakmæli cöa mottó? „Áð taka einn dag fyrir i einu“ -1 Erla Dögg Haraldsdóttir er ein efnileg- asta sundkona landsins og langfremst á landinu í sínum aldursflokki. Hún er aðcins 14 ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur er hún farin að láta til sín taka í opn- um flokki. Hún varð yngsti Islandsmeistar- inn á innanhúsmeistaramóti íslands sem haldið var í Vestmannaeyjum á dögunum þegar hún sigraði í 50 m. bringu- sundi og er ný komin í unglinga- landsliðið. Hún var ein af fimm sundköppum sem kepptu fyrir ís- lands hönd á unglingamóti í Lúx- emborg, hclgina 5-7 apríl, þar sem hún stóð sig frábærlega og fór heim með 1. verðlaun í 100 og 200 m. bringusundi og í 200 m. fjór- sundi ásamt því að bæta timana sína töluvert. Helgina eftir fór hún svo ásamt nokkrum sundgörpum úr ÍRB til Danmerkur og tók þar þátt í Sjælland Open og stóð sig frábærlega. Þar varð hún í 2. sæti í 100 m. bringusundi og 3. sæti í 200 m. bringusundi. Erla Dögg sagði í samtali við Víkurfféttir að það hefði verið fiábært að taka þátt í mótunum í Lúxemborg og í Danmörku og þar hefði hún fengið mikla reynslu. FRETTIR SPORT VIÐTAL En hvenær byrjaði sunddrottmngin að æfa og hvernig er að œfa sund? „Ég byijaði að æfa í 5. bekk en það var Stein- dór Gunnarsson þjálfari sem fékk mig til að bytja eftir að hafa séð mig í skólasundi. Það er rosalega gaman að æfa sund en þar er samt mjög erfitt. Ég æfi 12 sinnum í viku, 7-9 sinn- um sund og svo eru þrekæfingar 3-4 sinnum í viku“. Er þá nokkur tími fyrir námið? „Jú ég hef alveg tima fyrir það enda skipulegg ég tíma minn vel. Eftir skóla fer ég þrekæfingar og eftir þær eru sundæfingar. Þegar ég kem heim af æfingum fæ ég mér að borða og svo læri ég. Á kvöldin geri ég svo eitthvað skemmtilegt með vinkonum mínum. Þó svo það sé mikið að gera hjá mér hefur skólinn gengið vel og er ég með um 8,7 i meðaleinkunn" Hvað er aó gerast á næstunni hjá þér i sund- inu? „í enda júni mun ég fara með ÍRB á vinarbæj- armót í Finnlandi og svo þegar ég kem heim mun ég taka þátt í aldursflokkamóti íslands á Laugarvatni. Én þangað til mun ég vera að æfa á fullu“. 1B

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.