Víkurfréttir - 16.05.2002, Blaðsíða 18
Fimmtudagurinn 16. maí 2002
Framboðslisti Sandgerðislistans kynntur
Kosningaskrifstofa Sandgerðislistans á Strandgötu 11 var opn-
uð á Sumardaginn fyrsta. Listinn býður fram undir bókstafn-
um Þ. Við það tækifæri var framboðslisti framboðsins kynntur.
í fyrsta sæti er Ólafur Þór Óiafsson íþrótta- og tómstundafull-
trúi og stjórnmálafræðingur. I öðru sæti er Hallbjöm V. Rún-
arsson lciðbeinandi og í þriðja sæti er Linda Björk Holm
sjúkraliði. Kosningaskrifstofan er opin virka daga kl. 18:00-
22:00 og um helgar kl. 14:00-18:00. Kosningastjóri Sandgerðis-
listans er Guðmundur Skúlason.
Framboðslistinn er eftirfarandi:
1. Ólafur Þór Ólafsson 29 ára stjómmálafræðingur
2. Hallbjörn V Rúnarsson 20 ára leiðbeinandi
3. Linda Björk Holm 40 ára sjúkraliði
4. Sigriður Ágústa Jónsdóttir 40 ára forstöðumaður
5. Hannes Jón Jónsson 29 ára slökkviliðsmaður
6. Ari Gylfason 28 ára sjómaður
7. Ólöf Ólafsdóttir 24 ára hársnyrtisveinn
8. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir 22 ára tónlistamemi
9. Jórunn Björk Magnúsdóttir 21 árs leiðbeinandi
10. Sigrún Pétursdóttir 20 ára nemi
11. Bragi Guðjónsson 27 ára viðskiptafræðingur
12. Þorbjörg E. Friðriksdóttir 50 ára afgreiðslumaður
13. Grétar Mar Jónsson 47 ára skipstjóri
14. Haraldur Sveinsson 75 ára eldri borgari
Sandgerðislistinn
Eiður Örn leiðir T-listann í Vogum
T-listinn, listi minnihluta í hreppsnefnd Vatnsleysustrandar-
hrepps, hcfur verið lagður fram. Eiður Örn Hrafnsson vél-
virkjameistari mun leiða iistann en Hafsteinn Snæiand sem
hcfur verið í cfsta sæti T-listans hefur ákveðið að hætta.
T-listinn er með tvo nienn í minnihluta hrcppsncfndar en list-
inn fyrir næstu sveitastjórnarkosningar er þannig skipaður.
1. Eiður Öm Hrafnsson vélvirkjameistari
2. Birgir Öm Ólafsson flugumsjónarmaður
3. Kjartan Hilmisson bílamálari
4. Gunnar J. Helgason vélamaður
5. Marteinn Ægisson starfsmaður bílaleigu Hertz
6. Margrét Björgvinsdóttir nemi
7. Magnús Jón Björgvinsson verkstjóri
8. Ríkharður Vignir Reynisson dreifmgarstjóri
9. Kristín Heiðarsdóttir leikskólakennari
10. Hafsteinn Snæland bílstjóri
Höskuldur skipar efsta sæti
B-listans í Sandgerði
Framboðslisti Framsóknarfélags Sandgerðis við sveitarstjórn-
arkosningarnar 25.maí 2002 hefur verið samþykktur. Höskuld-
ur Hciðar Ásgeirsson, bæjarfuiltrúi skipar efsta sæti listans.
Frambjóðcndur B-listans, lista Framsóknarfélags Sandgerðis í
bæjarstjórnarkosningunum í Sandgerði 25. maí 2002 eru:
1. Höskuldur Heiðar Asgeirsson, bæjarfulltrúi
2. Ester Grétarsdóttir, rannsóknamaður
3. Ástvaldur Jóhannesson, sjómaður
4. Haraldur Hinriksson, bæjarstarfsmaður
5. Jónína G. Hlíðberg, leirlistakona
6. Helga Hrönn Ólafsdóttir, húsmóðir
7. Jóhannes Bjamason, stálvirkjasmiður
8. Kolbrún Marelsdóttir, þroskaþjálfi
9. Bjarki Dagsson, nemi
10. Jón Sigurðsson, bóndi og golfvallarstjóri
11. Elvar Grétarsson, beitningamaður og þjálfari
12. Anna Elín Bjömsdóttir, húsmóðir
13. Unnur Sveindís Óskarsdóttir, verslunarstjóri
14. Pétur Guðlaugsson, sjómaður
Kosningaskrifstofa B-listans verður að Strandgötu 21. Síminn er
423-7860. Allir Sandgerðingar em hvattir til að líta við og ræða
málin yfir kaffi og meðlæti.
UMRÆÐAN • FRÉTTIR
Samfylkingin
heimsótti Selið
Frambjóðendur Samfylkingar-
innar hafa verið iðnir við það að
láta sjá sig um víðan völl og
heimsóttu þeir eldri borgara í
Selinu í Njarðvík í vikunni og
afhentu þeim bæklinga um
flokkinn og ræddu aðeins um
bæjarmálin við eldri borgaranna,
sem höfðu þó nokkuð til málan-
na að leggja. Nú styttist óðum í
kosningar sem fara fram í næstu
viku en á meðfylgjandi mynd
ræðir Eysteinn Eyjólfsson við
eldri borgara í Selinu sem kunnu
vel að meta heimsókn jafnaðar-
manna.
S-listinn vinnur með fólkinu
í síðasta tölublaði Víkurfrétta var
ég nokkuð stórorð um fjámála-
sukk og má segja að ég hafi lýst
stríði á hendur yfirborðskennd-
um aðferðum Sjálfstæðismanna
til að slá ryki í augu bæjarbúa.
Jafnvægi á milli málaflokka og
hverfa í bænum
Þegar farið er út í skilgreiningar
á því hvað betur mætti fara í
bænum okkar og í þjóðfélaginu í
heild getur verið erfitt að taka
einn þátt út úr.
Ég tel að flest viljum við sjá jafn-
vægi ríkja á milli málaflokka og
að fólki sé gert jafht undir höfði.
Málflutningur á borð við það að
Samfylkingin sjái einungis þann
möguleika að allir þættir eigna
og reksturs séu í höndum bæjar-
félagsins er nokkuð einfolduð
hugmyndafræði. Þannig hafa
andstæðingar okkar gjaman túlk-
að okkar stefnu. Samfylkingin
telur það mikilvægt að þær reglur
sem bæjarfélagið setur sér, s.s.
útboðsreglur og aðrar vinnuregl-
ur séu virtar. Það hefur nokkuð
skort á það að rnínu mati. Bæjar-
félag er þjónustueining þar sem
hlutverk þjónustuaðila er tvíþætt:
Að veita jafnt góða þjónustu,
sem og huga að fjárhagslegri
hagkvæmni. Ef það er bæjarfé-
laginu í hag að einstaklingar eigi
eignaraðild eða sjái um rekstrar-
hlutverk, þá er það af hinu góða.
Það er hins vegar ekki gæfuspor
að neyðast út í einkavæðingu á á-
kveðnum sviðum einungis til að
„fíffa“ til i bókhaldinu.
íbúalýðræði og samstaða íbú-
anna
Samfylkingin leggur ríka áherslu
á íbúalýðræði í stefnuskrá sinni
og telur að hugmyndir um aukna
þátttöku og ábyrgð bæjarbúa
hvetji til góðra verka auk þess
sem það efli samstöðu og styrki
mannleg samskipti í bænum. Það
er eftirtektarvert hve samstaða
hefur orðið mikil í mörgum
hverfum bæjarins s.s. í Innri-
Njarðvíkurhverfi. En ef mér
skjátlast ekki sóttu þeir það stíff
að halda sérstaka hátíð „Sögu-
daga” hér fyrir fáum árum en
bæjaryfirvöld sinntu ekki þess-
um áhuga bæjarbúa. Nú virðist
það lita út fyrir að Sjálfstæðis-
menn hafi fiindið þetta hverfi og
ætla þeir sér nú stóra hluti, ef þeir
fái til þess umboð. Mér er spum i
hvaða bæ bjuggu þeir á síðustu 8
árum á meðan þeir stjórnuðu
sveitarfélaginu. Samfylkingin
hefur ítrekað lagt til að skipulagt
yrði heildstætt hverfi í Innri-
Njarðvík, þannig að þar geti risið
hverfi með skóla og tilheyrandi
þjónustu. Þetta hefur verið kol-
fellt af meirihluta bæjarstjómar.
Ágætu bæjarbúar! Ég hvet ykkur
til að hugleiða það hvemig þið
viljið sjá bænum ykkar stjómað.
Ef þið setjið X við S þýðir það
ekki að þið hvert og eitt ykkar
takið völdin. Þetta verður spum-
ing um það hvort þið verðið höfð
með í ráðum, því að þið hafið
svo sannarlega ýmislegt til mál-
anna að leggja. Þið veljið ykkur
fiulltrúa til að stjóma og getið þar
af leiðandi gert kröfur til þeirra
en það verður ávallt hlutverk
bæjarfúlltrúanna að vinna í ykkar
þágu.
Sveindís Valdimarsdúttir,
skipar 4. sæti á S-listanum
í Reykjanesbæ.
| Sveindís Valdimarsdóttir skrífar
Fjölskylduskemmtun Fjörheima á laugardaginm
Sleppum fordómum!
Félagsmiðstöðin Fjörhcim-
ar býður upp á skemmtun
fyrir alla fjölskvlduna
laugardaginn 18. maí. Þar sem
ijölskyldan getur komið saman
og skemmt sér og um leið
minnst þess að enn eru til for-
dómar á íslandi. Hugmyndin
er sú að sleppa 1000 blöðrum í
þeirri meiningu að við erum
með þvi að sleppa fordómum.
Boðið verður upp á margvís-
lega dagskrá í tilefni af degin-
um.
Dagskráin er eftirfarandi:
Dagskráin er sett klukkan 15:30
við félagsmiðstöðina Fjörheima
(sama hús og Stapinn).
15:35 - 16:35 Pílukastfélag
Reykjanesbæjar kynnir píluí-
þróttina í diskósal Fjörheima
(veitt verður pílusett í verðlaun
fyrir hæstu stig úr 3 pílum).
15:35 - 16:35 Keppni í að halda
bolta á lofti (verðlaun: bolti).
Staðsetning grasið fyrir aftan
Fjörheima.
15:35 - 16:35 Keppt í Limbó og
spretthlaupi (óvænt verðlaun).
Staðsetning grasið fyrir aftan
Fjörheima.
15:35 - 16:35 Unglingalið Fjör-
heima mætir úrvalsliði eldri
borgara í billiard. Staðsetning
billiardsalur Fjörheima.
15:35 - 16:35 Lögreglan í Kefla-
vík skoðar hjól og gefúr skoðun
fyrir þá sem vilja. Staðsetning
fyrir framan Fjörheima.
16:35 - 16:45 Veitt verða verð-
laun fyrir keppnir dagsins.
16:45 - 17:00 Stutt ávarp ffá fé-
lagsmálastjóra Reykjanesbæjar
Hjördísi Árnadóttur um gildi
þess að sleppa fordómum.
17:00 fordóma blöðrum sleppt.
17:05 Dagskrá lýkur.
Ungó pizzur verða með pizzur til
sölu. Flugdrekasála verður á
staðnum. Heitt kaffí á könnunni
fyrir fúllorðna fólkið í boði Fjör-
heima. Andlitsmálning fyrir litlu
bömin.
18