Víkurfréttir - 16.05.2002, Page 31
Fimmtudagurinn 16. maí 2002
SPORTIÐ
i. umferð: Keflavikurvollur Mánudaginn 20. mai kl. 17:00
Keflavik ■ ram
Sparisjóðurinn
styður
Kefiavík...
...innan vallarsem utan. Sparisióðurinn 1 Keflavik
Grindvíkingum spáð
íslandsmeistartitlinum
Forráðamenn, þjálfarar og fyrir-
liðar þeirra tiu liða sem spila í
Símadeildinni i sumar hafa spáð
Grindvíkingum íslandsmeist-
aratitlinum i knattspymu.
Keflvíkingum er spáð falli en spá
þessi var birt á Grand-Hótel.
Grindvíkingar hlutu 275 stig en
ÍA kom næst með 242 stig.
1 Keflvikingar hlutu 78 stig í 9.
. sæti og er þetta því önnur spáin
þar sem Keflvíkingum er spáð
falli í sumar en DV-Sport spáði
þeim einnig falli fyrir nokkru.
Gestur Gylfason
spilar með Grindavík
Mjög líklegt þykir að knatt-
spymukappinn Gestur Gylfason
muni skrifa undir samning við
Grindavík á allra næstu dögum
og spila með þeim i Simadeild-
inni í sumar. Þetta yrði enn ein
rósin í hnappagat Grindvíkinga
en fyrir nokkru gekk Eysteinn
Hauksson til liðs við liðið.
Lyn heldur áfram
á sigurbraut
Lyn sigraði Valerenga 2-1 í
norsku úrvalsdeildinni sl. laugar-
dag. Jóhanni B. Guðmundssyni
var skipt útaf i hálfleik en þá var
staðan 1-1. Lyn voru miklu
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og
yfirspiluðu Valerenga en náðu þó
ekki að koma boltanum í netið.
Lyn skoraði svo sigurmarkið í
blálokin og heldur því enn topp-
sætinu í deildinni, eru með 18
stig, fjórum stigum á undan
næsta liði.
18.300 manns mættu á þennan
borgaraslag og var stemningin
mögnuð en bæði liðin em i Osló.
Tap hjá Njarðvík í
deildarbikarnum
Njarðvikingar töpuðu gegn Aft-
ureldingu, 1-6, í undanúrslitum
deildarbikarsins (neðri deilda) sl.
fimmtudag. Leikurinn var jafn
fyrstu 25. mínútumar en svo setti
Afturelding í fimmta gírinn og
sigraði örugglega.
Perlan sterkasta stöðin
Laugardaginn 11. maí var
haldiö stöövamót í
Perlunni. Allar líkams-
ræktarstöðvarnar tóku þátt og
var mikið fjör í ntannskapn-
um. Perlan var eina stöðin sem
var með kvenkeppendur, alls átta
kvennmenn. Fyrsta sætið hlaut
Freyja Sigurðardóttir og lyfti hún
72,5 kg. 1 öðm sæti var Ásgerður
Bjarkadóttir og lyfti hún 50 kg og
i þriðja sætið var Ármey Sigurð-
ardóttir og var hún einnig með 50
kg-
Mikil slagur var hjá karlmönnun-
um og góð þátttaka. Fyrsta sætið
hlaut Freyr Bragason og lyfti
hann 157,5 kg. í öðru sæti var
Sævar Borgarsson og lyfti hann
150 kg og þriðja sætið fékk Öm
Steinar Marinósson og lyfti hann
135 kg. I karlaflokki fór fyrsta
sætið til Massa en annað og þrið-
ja til Perlunnar. Einng fékk Perl-
an bikar fyrir að vera stekrkasta
stöðin og farandsbikarinn fyrir
fjölda þátttakenda. Mikil aukning
þátttakenda var þetta árið og von-
ast er til að á næsta ári verði
fleira kvenfók sem taki þátt.
Fótboltaþáttur
á kapalinn
Sjónvarpsþáttur urn
knattspyrnuna í Keflavík
mun verða sýndur í fyrsta
skipti á kapalkerfinu í
Reykjanesbæ nk. sunnudag
kl. 20.00 og munu því allir
sem hafa aðgang að
kaplinum sjá þættina
endurgjaldslaust. Um er að
ræða 18 þætti og munu þeir
verða sýndir daginn fyrir
leiki Keflavíkur í
Símadeildinni.
I þættinum verða m.a. tekin
viðtöl við leikmenn og þjál-
fara, úrslit og ýmiskonar
tölfræði verður skoðuð
ásamt því að yngri-
flokkunum verður gerð góð
skil. Hugmyndin er einnig
að sýna frá leikjum yngri-
flokka og seinna meir jafn-
vel frá brotum úr meis-
taraflokksleikjum.
Það eru „Símamennirnir",
Jón Ólafsson, Sigurður
Gunnarsson og Guðmundur
Steinarsson sem munu sjá
um þáttinn og er þetta
frumraun þeirra á þessu
sviði.
VÍKURFRÉTTIR • 20. tölublað 2002
31