Víkurfréttir - 23.05.2002, Blaðsíða 35
Fimmtudagurinn 23. maí 2002
SPORTIÐ
SPORT molar
Haukur Ingi meiddur
Haukur Ingi Guðnason, leik-
maður Keflvíkinga varð fyrir því
óláni að togna aftan í læri í fyrri
hálfleik gegn Fram á
Keflavíkurvelli í leik liðanna i
Símadeildinni sl. mánudag. Mjög
líklegt þykir að Haukur missi af
næstu þremur leikjum Kefl-
víkinga vegna meiðsla.
Haukur lenti í samstuði við
Bjama Þór Pétursson hjá Fram
og virtist hafa dottið illa með
þeim afleiðingum að hann tog-
naði. Haukur Ingi fór því ekki
með landsliðinu til Bödo á
þriðjudag.
Njarðvík og Víðir byrja vel
í 2. deildinni
Njarðvík sigraði Skallagrím 0-5 í
Borganesi með mörkum frá
Sævari Gunnarssyni(3) og
Eyþóri Guðnasyni(2) og Víðir
sigraði Leikni R. 3-1 í á
Garðsvelli í 2. deild karla í
knattspymu á mánudag. Það er
því greinilegt að bæði liðin ætla
að láta til sín taka í sumar og má
búast við skemmtilegu fótbolta-
sumri hjá þessum liðum.
Lyn með sjö stiga
forskot á toppnum
Jóhann B. Guðmundsson og féla-
gar i Lyn fara hamforum þessa
dagana í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Lyn sigraði
Bodö/Glimt 3-1 sí. fimmtudag
og eru því enn á toppnum með
21 stig, sjö stigum á undan næsta
liði. Jóhann Birnir var í byrju-
narliði Lyn en var tekin útaf á 75.
mínútu þegar Lyn leiddi 3-0.
Þess má geta að Lyn hefúr núna
unnið fleiri leiki en þeir unnu á
öllu tímabilinu í fyrra. Þeir hafa
unnið sjö leiki en í fyrra unnu
þeir sex. Þeir eru komnir með 21
stig en á síðasta tímabili enduðu
þeir með 24 stig.
Jóhann sagði í samtali við
Víkurfréttir honum hefði gengið
vel á tímabilinu og á meðan liðið
sigraði væri hann sáttur, enda
ekki annað hægt þegar áran-
gurinn er slíkur.
Grindavík heldur áfram
að styrkjast
Atli Knútsson, markmaður, er
nýjasti leikmaðurinn sem mun
væntanlega ganga til liðs við
Grindvíkinga og spila með þeim
í Símadeildinni í sumar. Atli er
þar með þriðji leikmaðurinn sem
gengur til liðs við liðið en fyrir
var ljóst að Eysteinn Hauksson
myndi spila með þeim og nokkuð
víst þykir að Gestur Gylfason
skrifi undir samning á næstunni.
Atli Knútsson hefúr m.a. staðið í
marki Breiðabliks og hefúr hann
einnig átt sæti í landsliði Islands.
Hvort hann muni taka sæti
Alberts Sævarssonar i
Grindavíkurliðinu er óvíst en það
er þó ljóst að mikil barátta verður
um markmannsstöðuna þar á bæ.
Njarðvíkingum spáð fimmta
sæti í 2. deild
Njarðvíkingum í knattspyrnu
hefúr verið spáð fimmta sæti í í
annari deildinni á komandi tíma-
bili. Njarðvíkingar eru nýliðar í
2. deild og komu inn fyrir Dalvík
sem fóru upp eftir sameiningu
við Leiffur.
Njarðvíkingngum var spáð
fimmta sæti með 52 stig.
Víðismönnum úr Garði er spáð
sjöunda sæti með 36 stig. HK úr
Kópavogi er spáð efsta sætinu í
2. deild með 77 stig.
Kjartan hræddur við dómarana
Eftir leik Keflvíkinga gegn Fram
á mánudag sagði Kjartan Másson
blaðamanni Víkurfrétta að hann
væri hræddur við eitt í sambandi
við fallspá liðsins. „Ég er hræd-
dur um að þegar okkur er spáð
svo neðarlega verði dómarar of
meðvitaðir um það og dæmi því
samkvæmt þvi í leikjum og telji
okkur ekki nógu góða. Ég er ekki
að reyna að afsaka neitt með þes-
sum orðum en þetta hefúr gerst
áður og í leiknum gegn Fram
gerðist þetta því Framarar
komust upp með hluti sem við
komumst ekki upp með“, sagði
Kjartan.
Fjórar Suðurnesjastúlkur
í unglingalandsliðinu
Fjórar stúlkur af Suðurnesjum
hafa verið valdar i unglingaland-
sliðið í körfúknattleik sem mun
leika fyrir íslands hönd á
Promotion-Cup á Möltu í júlí.
Þetta eru þær Andrea Dögg
Færseth og María Ben
Erlingsdóttir úr Keflavík og Elva
Rut Sigmundsdóttir og Gígja
Eyjólfsdóttir úr Grindavík. Liðið
mun leika við Gíbraltar,
Skotland, Möltu, Lúxemborg og
Andorra á mótinu.
Byrjendahópur úr Keflavík
í 1. sæti á vormóti
Byrjenda vormótið í
trompfimleikum fór
fram 12. maí sl. og var
Keflavík meö tvö lið á mót-
inu. Stúlkurnar stóðu sig
mjög vel en B-1 hópurinn,
undir stjórn llildar Maríu
Magnúsdóttur, varð í 1. sæti
með samanlagða einkunn
22.65. Einnig urðu þær í 1.
sæti í gólfæfingum með
einkunina 8.4.
Þetta var síðasta mót vetrarins
hjá fimleikadeildinni en
vetrastarfinu mun Ijúka með
vorsýningu 23. maí í íþróttahús-
inu við Sunnubraut og eru allir
hvattir til að koma.
íslandsmót 2. deild
sunnudaginn 26. maí kl. 14:00
Njarðvík - Tindastóll
• Leikmannakynning
•TVF-spá
• Athugasemdir
frá þjálfurum
ÍVF
TÍMARIT VÍKURFRÉTTA
Kemur út á morgun!
Fótboitav
íTímariti Víkurfrétta á morgun!
VÍKURFRÉTTIR • 21. tölublaö 2002
35