Morgunblaðið - 04.06.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.06.2016, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016 Lögfræðingur Landslög leita að lögfræðingi til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Menntunar- og hæfniskröfur - Meistara- eða embættispróf í lögfræði - Reynsla af lögfræðistörfum - Málflutningsréttindi æskileg - Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi - Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku - Góð kunnátta í ensku Á Landslögum starfa 20 lögmenn og fjöldi annarra starfsmanna. Helstu verkefni Landslaga eru á sviði samningagerðar og málflutnings fyrir dómstólum auk ráðgjafar á ýmsum sviðum. Þá hefur stofan sérhæft sig í uppgjöri slysa- og skaðabótamála, fjármálarétti, hlutafélagarétti, samkeppnisrétti, fasteignarétti, sveitarstjórna- og stjórnsýslurétti og verktaka og - útboðsrétti. Nú leita Landslög að liðsauka. Kostur er ef umsækjendur hafa reynslu af verktaka- og út- boðsrétti eða félaga- og fjármálarétti. Umsóknir berist Landslögum, Borgartúni 26, 105 Reykjavík, eða á netfangið landslog@landslog.is fyrir 20. júní nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um Landslög er að finna á heimasíðu lögmannsstofunnar www.landslog.is Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra fjölskyldu- sviðs sveitarfélagsins Húnaþings vestra. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leit- að er að metnaðarfullum aðila til að stýra samein- aðri fræðslu- og félagsþjónustu sveitarfélagsins. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Starfssvið sviðsstjóra fjölskyldusviðs • Stjórnun og rekstur stofnana sem heyra undir fjölskyldusvið • Sviðsstjóri á setu í framkvæmdaráði sveitarfélag- sins ásamt sveitarstjóra, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs • Gerð fjárhagsáætlana og eftirlit með fjárreiðum fjölskyldusviðs í samræmi við samþykkt sveitar- stjórnar um gerð fjárhagsáætlana og eftirlit með fjárreiðum sveitarfélagsins • Þjónusta við viðskiptavini og greining á þjónustuþörf • Innri og ytri samskipti fyrir hönd fjölskyldusviðs sveitarfélagsins • Ráðgjöf til forstöðumanna fjölskyldusviðs í starfs- manna-, rekstrar- og þjónustumálum • Ráðgjöf og eftirlit vegna sérfræðiþjónustu • Samskipti við sveitarstjórn, stoðþjónustu og hagsmunaaðila • Önnur mál á sviði fjölskyldusviðs í samráði við sveitarstjóra • Sviðsstjóri fjölskyldusviðs starfar jafnframt með fræðsluráði og félagsmálaráði sveitarfélagsins Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af félagsþjónustu og/eða fræðsluþjónustu sveitarfélaga æskileg • Reynsla í stjórnun og starfsmannahaldi æskileg • Góð almenn tölvukunnátta • Geta til að tjá sig í ræðu og riti • Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulags- hæfni Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Húnaþings vestra er til og með 10. júlí nk. Umsóknir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is. Öllum umsóknum verður svarað skriflega. Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi Húnaþings vestra á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is. Nánari upplýsingar um starfið veita Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti í síma 862-1340 og Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í síma og 786-4579. Húnaþing vestra Sviðsstjóri fjölskyldusviðs Hvammstangi í Húnaþingi vestra er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 550 íbúa en íbúar í Húnaþingi vestra eru 1.180. Hvammstangi er í alfaraleið, aðeins 6 km frá þjóðvegi 1 og í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík og Akureyri. Í Húnaþingi vestra er til staðar öll almenn opinber þjónusta auk annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar til útivistar, íþrótta, afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk. Mannauðsstjóri Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er ný stofnun sem tekur til starfa 1. júlí næstkomandi. Stofnunin tekur yfir hlutverk Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálstofnunar. Stofnunin er ein stærsta rannsóknastofnun landsins og sér um rannsóknir og veitir ráðgjöf um auðlindir í hafinu og í vötnum landsins. Á stofnuninni starfa um 170 manns. Stofnunin er í Reykjavík og er auk þess með starfsstöðvar víða um land auk þess að reka 2 rannsóknarskip. Nánari upplýsingar um starfsemi stofnananna má finna á heimasíðu þeirra www.hafro.is og www.veidimal.is Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2016. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Henni skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) í síma 511 1225. Menntunar- og hæfniskröfur                                            !           " #   $     %   #      &'        (   ) (    '   '              &'              $          Helstu verkefni  $ '                   *                 %      &   #'          '   #    +    %   #    *               !           !                '          ,          (   -    , %     Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða til starfa mannauðsstjóra. Um nýtt starf er að ræða. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem tekur þátt í að móta starfið. Staðan heyrir undir forstjóra. Mannauðsstjóri tekur þátt í almennri stefnumótun stofnunarinnar og hefur umsjón með mannauðsmálum. Mannauðsstjóri veitir stjórnendum stuðning, leggur til sérþekkingu og ferla sem styðja mannauðsstefnu stofnunarinnar. Intellecta Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.