Morgunblaðið - 04.06.2016, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016
óskar eftir að ráða:
Tæknifræðing,
viðskiptafræðing,
eða rekstrarfræðing
sem fyrst.
Upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.blikkras.is,
eða hjá Oddi Helga í síma 462-7770, 893-7241.
Starfið hentar báðum kynjum og hvetjum við konur,
jafnt sem karla, að sækja um.
Umsóknum sé skilað í tölvupósti á
oddurhelgi@blikkras.is fyrir 15. júní 2016.
Öllum umsóknum verður svarað.
ÓSEYRI 16 603 AKUREYRI
Sunnulækjarskóli
Við Sunnulækjarskóla á Selfossi vantar
enskukennara og stuðningsfulltrúa til
starfa frá komandi hausti.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega
og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklings-
miðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð
nemenda og góða samvinnu allra sem að
skólastarfinu koma. Laun og starfskjör eru
samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
Sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra í
síma 480-5400 og á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is
Umsókn með upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist
Birgi Edwald, skólastjóra,
birgir@sunnulaek.is eða Sunnulækjar-
skóli, Norðurhólum 1, 800 Selfoss.
Umsóknarfrestur er til 12. júní 2016.
Skólastjóri
Fjármálastjóri í Þjóðskjalasafni
Laust er til umsóknar starf fjármálastjóra Þjóðskjalasafns Íslands.
Ábyrgð og verksvið
Starfið felst í fjármálastjórn, launavinnslu og starfsmannastjórn. Þá eru á hendi fjármálastjóra yfirumsjón með rekstri
tölvu- og upplýsingakerfa, yfirumsjón með skjalavörslu stofnunarinnar og umsjón með verkbókhaldi. Jafnframt er
umsjón með rekstri skrifstofu, afgreiðslu og símsvörun hluti verkefnanna. Viðkomandi tekur þátt í ýmsum öðrum
verkum. Fjármálastjóri situr í framkvæmdastjórn safnsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Gerð er krafa um háskólapróf í viðskipta- eða rekstrarfræðum.
• Reynsla af fjármálastjórn, bókhaldi og áætlanagerð er nauðsynleg.
• Reynsla af starfsmannahaldi og þekking á starfsmannamálum ríkisins er æskileg.
• Krafist er þekkingar og reynslu af Oracle kerfi ríkisins.
• Þá er krafist þekkingar í upplýsingatækni og skjalastjórn.
• Mjög gott vald á íslensku er áskilið.
• Góð kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli er æskileg.
• Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum starfsmanni, með góða samskiptahæfni og frumkvæði í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2016.
Sótt er um starfið rafrænt á; www.skjalasafn.is undir „laus störf“. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf þar sem greinir frá ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Afrit prófskírteina
fylgi. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður – eirikur@skjalasafn.is - 820 3330.
Þjóðskjalasafn Íslands starfar skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Hlutverk safnsins er að varðveita og veita
aðgang að opinberum skjölum, einkum íslenska ríkisins, og einkaskjalasöfnum með réttindi borgaranna, hag stjórnsýslunnar
og varðveislu sögu íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi.
Íslenskumælandi
málmiðnaðarmenn
óskast
Teknís ehf. óskar eftir að ráða málmiðnaðar-
menn til starfa. Viðkomandi þarf að geta
talað og skilið íslensku með viðunandi
hætti.Teknís starfar við nýsmíði og við-
haldsverkefni innanlands og erlendis, unnið
er með svart stál og ryðfrítt. Áhugasamir
hafi samband við Jón Þór á netfangið
jon@tekn.is