Morgunblaðið - 06.06.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 06.06.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Hafnarsvæðið í Reykjavík iðaði af lífi á Hátíð hafsins um helgina. Þetta er fjölskylduhátíð þar sem lögð er áhersla á fróðleik um hafið og mat- armenningu þess í bland við góða skemmtun. Meðal viðburða var furðufiskasýning á vegum Hafrannsóknastofnunar þar sem hátíðargestir gátu barið ýmsar kynlegar fisktegundir augum. Sýndar voru helstu tegundir nytjafiska við Ís- land auk sjaldséðra úthafstegunda. Fjöldi fólks tók þátt í líflegri dagskrá á Hátíð hafsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Ófrýnilegir furðufiskar vöktu athygli hátíðargesta Skúli Halldórsson Kristín Edda Frímannsdóttir Ekki var borin fram tillaga um að flýta haustfundi miðstjórnar Fram- sóknarflokks, á vorfundi hennar sem haldinn var á laugardag. Í 9. kafla laga Framsóknarflokksins segir að haustfund miðstjórnar þurfi til að boða til flokksþings. Ljóst þykir því að flýta þurfi haustfundinum ef halda á flokksþing fyrir þingkosningar sem áformað er að halda í október. „Það væri framkvæmdastjórnar flokksins að gera tillögu um að flýta haustfundi miðstjórnar,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður flokksins, í samtali við Morgunblaðið. Karl Garðarsson alþingismaður segir litla sem enga umræðu hafa ver- ið um þetta efni á vorfundinum á laug- ardag. „En fundurinn hlýtur að þurfa að vera í lok ágúst eða byrjun sept- ember í síðasta lagi, myndi ég halda,“ segir Karl. Hann segir marga þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að halda flokksþing fyrir kosningarnar. „Þar er ekki aðeins formanns- og stjórn- arkjör heldur er líka stefnan mótuð og sett fyrir kosningar. Þess vegna eru flestir þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að halda flokksþing, svo þau mál séu á hreinu.“ Haustkosningar verða Sigurður Ingi Jóhannsson for- sætisráðherra segir ekki gerlegt að hætta við þingkosningar í haust, mið- að við þær aðstæður sem nú eru uppi. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Fram hefur komið að kosið verður í haust ef tekst að afgreiða tiltekin mál sem stjórnarflokkarnir hafa sett á oddinn. Sigurður sagðist myndu styðja Sigmund Davíð Gunnlaugsson til áframhaldandi formennsku flokks- ins. Á miðstjórnarfundinum á laugar- dag ræddi Sigmundur Davíð um við- tal sitt við sænska ríkisútvarpið og hvernig viðtalinu hefði verið hagað til að koma höggi á flokkinn í gegnum sig. Sagði hann verst að vita af því álagi sem fjölskylda sín og tengdafjöl- skylda hefðu orðið fyrir vegna máls- ins. Klára umsamin verkefni Að því loknu fór hann yfir þær skuldbindingar sem samið var um í stjórnarsáttmála við Sjálfstæðis- flokkinn og sagði það verkefni flokks- ins að klára þau verkefni sem hafin væru. Sagði hann flokkinn tilbúinn að ganga til kosninga hvenær sem væri en lagði áherslu á að klára fyrst þau verkefni sem samið var um. Ræðu formannsins var fagnað með dynjandi lófataki fundargesta. Þyrftu að flýta haustfundinum  Haustfund miðstjórnar Framsóknarflokksins þarf til að boða flokksþing  Sterkur vilji flokksmanna um flokksþing fyrir alþingiskosningar  Sigurður Ingi styður Sigmund Davíð til formennsku áfram Morgunblaðið/Árni Sæberg Rúgbrauðsgerðin Miðstjórnin hélt fund sinn í gömlu Rúgbrauðsgerðinni. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Forseti Alþingis mun á næstunni skipa þann mann sem rannsaka á er- lenda þátttöku í kaupum á eignarhlut í Búnaðarbankanum árið 2003. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis, í samtali við Morgunblaðið, en nánari tímaramma segir hann ekki hafa verið ákveðinn. Í þingsályktun um rannsóknina, sem samþykkt var á fimmtudag, seg- ir að rannsókninni skuli lokið svo fljótt sem auðið er en eigi síðar en um komandi áramót. Í 2. gr. laga um rannsóknarnefndir segir að heimilt sé að fela einum ein- staklingi rannsókn máls, en hann skuli þá vera lögfræðingur. Er það hlutverk forseta Alþingis að skipa hann, að höfðu samráði við stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd. „Meginhugsunin er að nefndin af- marki verkefnið en að framkvæmdin sé á hendi forseta Alþingis,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður nefndarinnar. „Ég ætlast ekki til þess að forset- inn sé með nafn á reiðum höndum en býst við því að það gerist fljótlega.“ Nefndin athugi önnur gögn Í þingsályktuninni segir einnig að nefndin skuli, samhliða rannsókn- inni, athuga gögn vegna sölunnar á Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, Landsbankanum og Búnaðarbank- anum. Ögmundur segir nefndina munu vinna að því í sumar og haust. „Þegar því lýkur munum við ákveða hvort við leggjum fram til- lögu um rannsókn á öðrum þáttum í þessu máli eða látum gott heita.“ Tillagan skoðuð gaumgæfilega Þingsályktunartillaga Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsókn- arflokks, um rannsókn á einkavæð- ingu bankanna árið 2011 er einnig komin á borð nefndarinnar. Aðspurður segir Ögmundur nefndina munu setjast yfir hana og að henni verði að öllum líkindum vís- að til umsagnaraðila áður en efnisleg umræða verði um hana í nefndinni. „Við munum skoða hana gaumgæfi- lega og faglega, eins og við höfum gert við öll þau mál sem hafa komið á okkar borð.“ Ekki ljóst hver rannsakar kaupin  Rannsókn á erlendri þátttöku í kaupum á Búnaðarbankanum á að vera lokið fyrir áramót  Rannsókn á einkavæðingu bankanna 2011 á borði þingnefndar Ögmundur Jónasson Einar K. Guðfinnsson Spáð er áfram- haldandi blíðviðri út vikuna. „Það eru róleg- heit áfram. Má kalla held ég veðurblíðu,“ sagði veðurfræð- ingur á vakt á Veðurstofu Ís- lands, spurður um veðurhorfur í vikunni. „Útlitið er gott næstu vik- una, aðgerðalítið og stillt veður. Framan af vikunni hangir þetta að mestu þurrt en frekar skýjað. Ekki mjög sólríkt en milt veður. Þegar best lætur ætti hitinn að ná upp í 17- 18 stig.“ Spáð er 12-18 stiga hita í dag, kaldara á annesjum fyrir norðan og austan og hægri breytilegri átt. Í kortunum fram á fimmtudag er litla sem enga breytingu á því að finna en á fimmtudag og föstudag er búist við lítilsháttar riginingu, mest sunnan og vestan og að mestu þurrt norð- austantil. Þó er búist við að hitinn haldist í tveggja stafa tölum víðast hvar á landinu fram á helgi. Sumar Vel viðrar til blómatínslu. Blíðviðri og þurrt að mestu  Hiti mest 17-18 stig og hægur vindur Þjónusta á Kefla- víkurflugvelli var takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá klukkan tvö í nótt til sjö í morgun. Tveir flugumferðar- stjórar sem áttu að vera á vakt í nótt tilkynntu veikindi og vegna yfirvinnubanns þeirra fengust ekki flugumferðar- stjórar til afleysinga. Meðan á takmörkuninni stóð voru áætlaðar komur 16 farþega- flugvéla frá Norður-Ameríku og átta til viðbótar áttu að fara á brott til Evrópu. Ríkissáttasemjari hefur ekki boð- að til næsta fundar í viðræðum flugumferðarstjóra og Isavia. Síðasti fundur var 3. júní. Aðeins sjúkra- og neyðarflug í nótt Lending Flugbraut á Keflavíkurvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.