Morgunblaðið - 06.06.2016, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
BARCELONA Bi
rt
me
ðf
yri
rva
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
14.900
Flugsæti aðra leið
m/sköttum
& tösku
Alla föstudaga í sumar
Aðeins örfá sæti
í boði á þessum
kjörum!
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Framkvæmdir við endurbætur á hinu þekkta
húsi Thors Jensen á Fríkirkjuvegi 11 eru langt
á veg komnar. Verkið tekur mið af upprunalegri
mynd þess og er áætlað að framkvæmdum ljúki
síðla árs. Til að koma húsinu í upprunalegt horf
hefur bæði gömlum og nýjum aðferðum verið
beitt. Ásgeir Ágeirsson, arkitekt hjá stofunni
Tark, hefur umsjón með endurbótunum.
„Við reynum eins og unnt er að finna út
hvernig útlitið var á sínum tíma. Þegar um er að
ræða svo gamalt hús þá þarf að fara í rannsókn-
arvinnu. Við skoðum lög málningarinnar og finn-
um original-litina,“ sagði Ásgeir í samtali við
Morgunblaðið.
Ein af aðferðunum, sem notast er við, kallast
að oðra. Í henni felst að viðarútlit er málað á
veggina. Aðferðinni var mikið beitt á árum áður
þegar gæði timburs voru með misjöfnu móti.
Einnig er um að ræða marmaramálun þar sem
veggir eru málaðir þannig að þeir líkist marm-
ara. Að auki verður mikið lagt í endurgerð
glugganna.
„Upprunalega glerið í anddyrishurðinni hefur
brotnað gegnum tíðina. Við tökum glerið út,
myndum það í hárri upplausn og búum til mörg
eintök til að setja í alla glugga,“ segir Ásgeir.
Hann bætir við að hálmurinn í húsinu verði að
mestu fjarlægður til að minnka eldhættu og
sjálfvirku slökkvikerfi verði komið fyrir. Fyllstu
varúðar sé gætt í ljósi þess að húsið er hluti af
menningararfi þjóðarinnar. Þegar fram-
kvæmdum lýkur verður stór hluti húsnæðisins
opnaður almenningi. Þar verður aðstaða fyrir
veislu- og ráðstefnuhöld og nokkurs konar safn
um sögu hússins.
Fríkirkjuvegur 11 var byggður á árunum 1907
til 1908 af Thor Jensen. Var húsið heimili hans
og fjölskyldu hans í þrjá áratugi. Reykjavík-
urborg eignaðist húsið árið 1963. Árið 2008 var
það selt Björgólfi Thor Björgólfssyni, barna-
barnabarni Thors Jensens, og stendur hann að
endurbótunum.
Hönnun Húsið að Fríkirkjuvegi 11 þykir með glæsilegri timburhúsum í Reykjavík. Einar Erlendsson teiknaði húsið
Morgunblaðið/Ófeigur
Innviðir Mikið er lagt upp úr því að veggir og rúður séu í upprunlegri mynd.
Endurbætur langt komnar
Ýmsar aðferðir notaðar til að koma Fríkirkjuvegi 11 í upprunalegt horf
Friðlýst Loftið í stofunni er friðað og
má þess vegna lítið hreyfa við því.
Landsmenn kvöddu íslensku fót-
boltastjörnurnar í karlalandsliðinu
á laugardag, en þeir halda út til
Frakklands á þriðjudag, daginn eft-
ir vináttulandsleikinn gegn Liecht-
enstein á Laugardalsvelli í dag.
Margir lögðu leið sína í Kringluna,
þar sem þeir Gylfi Þór Sigurðsson,
Jón Daði Böðvarsson, Birkir Már
Sævarsson, Hannes Þór Hall-
dórsson, Ragnar Sigurðsson og Ari
Freyr Skúlason gáfu sér góðan
tíma til að árita myndir, peysur,
bolta og jafnvel markmannshanska
auk annarra hluta sem tengjast ís-
lenska landsliðinu. Meðlimir Tólf-
unnar voru einnig á staðnum og
kenndu þeir gestum Kringlunnar
hvatningarsöngva landsliðsins.
Gátu gestirnir skrifað strákunum
okkar hvatningarkveðju á risasegl
sem landsliðið fær afhent fyrir
brottförina til Frakklands.
Kvöddu landsliðsmenn sem gáfu sér
góðan tíma til áritana fyrir Frakklandsför
Áritun Gylfi Þór Sigurðsson áritar treyju
fyrir ungan aðdáanda í Kringlunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, segir að Alþingi
hafi engar upplýsingar um rekstur
Herjólfs sem siglir til Vestmanna-
eyja. Þrátt fyrir það fái Eimskip 718
milljóna króna ríkisstyrk á ári til
þess að sinna siglingunum. Ásmund-
ur segist hafa leitað til Vegagerð-
arinnar og Eimskips vegna málsins.
Frá Vegagerðinni fékk hann þær
upplýsingar að tölurnar lægju ekki
fyrir og hjá Eimskip fékk hann þau
svör að umræddar tölur væru við-
skiptaleyndarmál.
„Vegagerðin hafði í raun engar
upplýsingar um rekstur ferjunnar
frá því reksturinn var boðinn út árið
2011. Það sem hefur gerst síðan er
að fólksflutningar hafa aukist úr 100
þúsund í 300 þúsund á ári og því
fylgja miklar tekjur,“ segir Ás-
mundur en ríkisstyrkurinn hefur
hækkað í takt við verðlagsþróun.
„Mér finnst undarlegt að bókhald af
rekstri sem er niðurgreiddur af rík-
inu sé ekki aðgengilegt fyrir þá sem
taka ákvörðun um hve miklu fé sé
veitt til rekstursins,“ segir Ásmund-
ur og bætir því við að til saman-
burðar sé styrkur til flugreksturs
um 200 milljónir króna á ári á Ís-
landi.
300 milljóna kr. hagnaður?
Í tölum sem hann hefur sjálfur
tekið saman og byggir á áætlunum
um rekstur skipsins áætlar Ás-
mundur að heildartekjur Herjólfs á
síðasta ári hafi verið 683 milljónir og
ríkisstyrkur 718 milljónir, samtals
1401 milljón króna. Hann áætlar
meðalafslátt upp á 68 milljónir og þá
standa eftir 1333 milljónir. Gjöld
áætlar hann 1025 milljónir og mis-
munurinn er 308 milljónir sem er
hagnaður Eimskips af rekstrinum.
„Ég og þeir sem aðstoðuðu mig
við upplýsingaöflun fórum mjög var-
lega í öllum okkar tölum [...] en ég
sendi Eimskip þessar upplýsingar
áður en ég birti þær og bauð Gunn-
laugi Grettissyni (rekstrarstjóra
Herjólfs) að bregðast við þeim en ég
hef ekki fengið viðbrögð. Ég sendi
einnig Vegagerðinni þessar tölur en
það hafa ekki komið neinar ábend-
ingar um það að í þessum tölum sé
ekki rétt með farið. Ég tel að þessar
tölur séu nærri lagi en jafnframt að
þetta sé vanáætlað frekar en hitt og
það sem eftir situr í rekstrinum sé
jafnvel meira en þessar 300 millj-
ónir,“ segir Ásmundur. Segir hann
að ekki sé hlutverk ríkisins að skapa
Herjólfi svo mikinn hagnað og því
megi ætla það að Eimskip hafi svig-
rúm til þess að lækka fargjöld Vest-
mannaeyingum til heilla.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrar-
stjóri Herjólfs, vildi ekki tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herjólfur Að sögn Ásmundar hefur ríkið ekki aðgang að bókhaldsgögnum
Hafa engar upplýsingar
um bókhald Herjólfs
Ríkisstyrkur til Herjólfs nam 718 milljónum króna 2015