Morgunblaðið - 06.06.2016, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.06.2016, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016 Kemi ehf | Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík | S: 415 4000 | kemi@kemi.is | www.kemi.is LYKTAREYÐANDI NIÐURBROTSEFNI Í FERÐASALERNI Inniheldur öfluga náttúrulega ensímblöndu sem vinnur á úrgangi og pappír á 24 klst og skiptir þá engu hvaða gerð pappírs er. Hentar mjög vel þar sem þarf að tæma ferða- salernið á hverjum degi. BIO-PAK veitir hratt niðurbrot og góða lyktareyðingu. Inniheldur einstaka efnablöndu sem vinnur á úrgangi og pappír á 3-4 dögum og hefur einstaklega mikla og góða virkni í lyktareyðingu. Hentar vel þar sem ekki þarf að tæma ferðasalernið á hverjum degi. Inniheldur næringarefni fyrir bakteríur ásamt ensímum til að fjarlæga ólykt. Brýtur hratt og vel niður úrgang og klósettpappír. Smyr ventla og heldur skynja- rafbúnað hreinum. Hentar fyrir húsbíla, rútur, báta, skip, safntanka og rotþrær. BIO-ACTIVE er vistvænt efni. BIO-PAK - Tropical og Fresh Scent PORTA-PAK - Lavender og Fresh Scent BIO-ACTIVE - Tropical og Fresh PORTA-PAK Lavender Vörunúmer: PPRV10LAV PORTA-PAK Fresh Scent Vörunúmer: PPRV10 BIO-PAK Tropical Vörunúmer: BIOTROPBG BIO-PAK Fresh Scent Vörunúmer: BIOPPBG BIO-ACTIVE 4,9L Vörunúmer: BAHT168 BIO-ACTIVE 1,8L Vörunúmer: BAHT40 Nýtt hátæknisetur systurfyrirtækj- anna Alvogen og Alvotech var opn- að formlega á föstudaginn 3. júní. Fjöldi gesta var samankominn við opnunarathöfnina og gafst þeim kostur á að skoða húsið, innan sem utan. Fyrsta skóflustungan var tek- in í nóvember 2013 við Sæmund- argötu, þar sem nú hefur risið stærðarinnar húsnæði, um 13.278 fermetrar. Starfsemi Alvotech lýtur að þró- un og framleiðslu líftæknilyfja og eru nú sex líftæknilyf í þróun, þar á meðal stungulyf sem notuð eru við meðferð á krabbameins- og gigt- arsjúkdómum. Fyrstu lyf á markað árið 2019 Umrædd lyf kallast hliðstæðulyf. Það eru lyf sem koma á markað þegar einkaleyfi frumlyfja líftækni- lyfja renna út. Þau hafa þá verið lengi á markaði og virkni þeirra og sala er þekkt. Alvogen, sem er al- þjóðlegt samheitafyrirtæki með starfsemi í 35 löndum, mun sjá um markaðssetningu lyfjanna ásamt öðrum fyrirtækjum. Fyrstu lyf fyr- irtækisins eru væntanleg á markað árið 2019 og er áætlað að söluverð- mæti frumlyfjanna nemi 15 millj- örðum evra á ári. Sérfræðistörf skapast Heildarfjárfesting Alvotech á Ís- landi mun nema um 75 milljörðum króna á næstu árum. Stærsti hluti fjárfestingarinnar fer í rannsóknir og þróun en átta milljörðum var ráðstafað til uppbyggingar hátækni- setursins, sem skapaði 350 ársverk yfir byggingartímann. Innan há- tæknisetursins starfa nú um 160 há- skólamenntaðir sérfræðingar. tfh@mbl.is Fjárfest fyrir 75 millj- arða króna næstu ár  Hátæknisetur opnað í Vatnsmýrinni Ljósmynd/Alvogen Þekking Stærsti hluti fjárfestingar fyrirtækisins er vegna þróunar- og rannsóknarkostnaðar. Allir starfsmenn fyrirtækisins eru háskólamenntaðir Ragnheiður Rík- harðsdóttir, þing- flokksformaður Sjálfstæðis- flokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri flokks- ins fyrir komandi alþingiskosning- ar. Þessu greindi Ragnheiður frá á Facebook-síðu sinni í gærdag, en hún skipaði 2. sæti listans í Suð- vesturkjördæmi í síðustu kosn- ingum árið 2013. Prófkjör í ágúst eða september Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, mun gefa kost á sér í prófkjöri í 2. sætið á framboðslist- anum, að því er fram kemur í til- kynningu sem hún sendi fjölmiðlum í gærkvöldi. Þar segir hún að prófkjör flokks- ins í kjördæminu muni fara fram í lok ágúst eða í byrjun september. „Ég var kjörin á þing fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í kjördæminu árið 2013 og hef setið í utanríkismála- nefnd Alþingis, umhverfis- og sam- göngunefnd, Norðurlandaráði, þar sem ég er varaformaður Íslands- deildar, og velferðarnefnd á kjör- tímabilinu,“ segir Elín. Þá þakkar hún Ragnheiði „fyrir heiðarleika, stefnufestu og dugnað í sínum störfum. Hennar skarð verður vandfyllt fyrir Sjálfstæðisflokkinn“. sh@mbl.is Ragnheið- ur dregur sig í hlé Ragnheiður Ríkharðsdóttir  Elín Hirst býður sig fram í 2. sætið Karlmaður á þrí- tugsaldri var handtekinn í mið- borg Reykjavíkur vegna líkams- árásar snemma í gærmorgun. Komið hafði til átaka á milli hans og annars manns, en sá hlaut áverka á höfði og andliti, meðal annars eftir að maðurinn sem var handtekinn sparkaði í höfuð hans. Maðurinn var vistaður í fanga- geymslu vegna árásarinnar. Hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Efni fundust á honum við handtökuna. Þá var karlmaður á fertugsaldri hand- tekinn í gærmorgunn eftir að til hans sást rótandi í bifreið á bílastæði í Kópavogi. Hann var í talsvert annarlegu ástandi og auk þess eftir- lýstur vegna ýmissa óuppgerðra mála hjá lögreglu Handtekinn vegna líkamsárásar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.