Morgunblaðið - 06.06.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Styrmir Gunnarsson fjallar umlandsfund Samfylkingar og
nýja forystu sem þar tók við.
Hann bendir á að ekki verði séð
að stefnubreyting sé í vændum, og
heldur áfram: „Ekki verður heldur
séð að landsfundur
hafi lagt línur um
einhvers konar
uppgjör við fyrri
tíð. Fylgi Samfylk-
ingar er í botni og
alls ekki lengur
óhugsandi að flokk-
urinn þurrkist út í
kosningum í haust.
Nýr flokkur er kominn til sög-
unnar, Viðreisn, sem er að ná sér
á strik og mun sækja á kjósenda-
mið bæði Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks.
Við þessar aðstæður verður súspurning áleitin, hvers vegna
Samfylking og VG gangi ekki í
eina sæng. Þegar Samfylking var
stofnuð var hópur fólks í Alþýðu-
bandalaginu, sem hafði ekki
áhuga á að eiga aðild að henni.
Nú eru breyttir tímar. Það eina
sem skilur þessa flokka að í dag
er áherzlumunur varðandi
Evrópusambandið.
Í Evrópu eru nú vaxandi umræð-ur um að lengra verði ekki
haldið á braut sameiningar Evr-
ópu. Einu áhrif þess, ef það yrði
gert, yrðu þau að fleiri og fleiri
mundu snúast gegn Evrópusam-
bandinu.“ Oddný G. Harðardóttir
þurfi ekki annað en viðurkenna
þetta og það að flokkur hennar
hljóti að horfast í augu við veru-
leikann til skapa forsendur fyrir
sameiningu.
Loks segir Styrmir: „Önnurágreiningsmál eru ekki á ferð
á milli þessara tveggja flokka.
Samkvæmt síðustu könnunum er
sameiginlegt fylgi þeirra áþekkt
fylgi Sjálfstæðisflokks.
Hvers vegna sameinast þeir
ekki?“
Styrmir
Gunnarsson
Hvers vegna ekki?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 alskýjað
Bolungarvík 12 alskýjað
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 12 heiðskírt
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Stokkhólmur 14 heiðskírt
Helsinki 11 skúrir
Lúxemborg 14 þoka
Brussel 24 skúrir
Dublin 20 léttskýjað
Glasgow 19 heiðskírt
London 22 heiðskírt
París 18 þoka
Amsterdam 25 rigning
Hamborg 25 þrumuveður
Berlín 26 skúrir
Vín 24 þrumuveður
Moskva 11 skýjað
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 24 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 23 heiðskírt
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 17 skúrir
New York 19 rigning
Chicago 20 skýjað
Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:10 23:44
ÍSAFJÖRÐUR 2:13 24:51
SIGLUFJÖRÐUR 1:52 24:38
DJÚPIVOGUR 2:27 23:26
Jón Skaftason, fyrr-
verandi alþingismaður
og sýslumaður í
Reykjavík, lést 3. júní
í Reykjavík. Jón
fæddist á Akureyri ár-
ið 1926 og ólst upp á
Siglufirði. Hann nam
lögfræði við Háskóla
Íslands og varð
hæstaréttarlögmaður
árið 1961.
Á árunum 1952-1962
sat hann í bæjarstjórn
Kópavogs og gegndi
síðan þingmennsku
fyrir Framsókn-
arflokkinn í 19 ár. Eftir þingsetu
var Jón skipaður yfirbæjarfógeti
Reykjavíkur til 1992 og varð síð-
an fyrsti sýslumaður Reykvík-
inga.
Jón sinnti fjöl-
mörgum trúnaðar-
störfum. Hann var
meðal annars for-
maður síldar-
útvegsnefndar, for-
maður
Íslandsdeildar
Norðurlandaráðs og
forseti Norður-
landaráðs, formaður
Íslandsdeildar Al-
þjóðaþingmanna-
sambandsins, for-
maður bankaráðs
Seðlabankans og
formaður Dómara-
félags Íslands. Eftirlifandi eig-
inkona Jóns til 66 ára er Hólm-
fríður Gestsdóttir. Þau eiga
fjögur börn, 13 barnabörn og níu
barnabarnabörn.
Andlát
Jón Skaftason
Fjölmenni var í samkomusal
Dvalarheimilis aldraðra á Sauðár-
króki nú í síðustu viku þegar for-
maður Lionsklúbbs Sauðárkróks,
Ásgrímur Sigurbjörnsson, afhenti
rafknúið reiðhjól með sæti fyrir tvo
farþega, til eignar og afnota fyrir
heimilisfólk.
Það voru þær Anna Pálína
Þórðardóttir, íbúi á Dvalarheim-
ilinu, og Ásta Karen Jónsdóttir,
sjúkraliði við stofnunina, sem ýttu
söfnun fyrir þessu skemmtilega far-
artæki úr vör. Lionsmenn á Sauð-
árkróki, sem um árabil hafa afhent
Dvalarheimilinu og Heilsustofnun-
inni gjafir, stórar og smáar, gerðust
aðilar og verndarar söfnunarinnar
þegar þær stöllur höfðu við þá sam-
band, og sagði Ásgrímur í ávarpi
sínu að það væri mjög ánægjulegt
og mikill heiður að fá að taka þátt í
þessu góða og þarfa verkefni.
Í þeirri vakningu sem nú er veru-
leg fyrir hjólreiðum og útivist gefur
þetta farartæki þeim fjölmörgu sem
ekki eiga þess kost af eigin ramm-
leik að njóta útivistar og smáferða-
laga þegar vel viðrar og skreppa í
bæinn með smávægilegri aðstoð.
bgbb@simnet.is
Gáfu öldruðum
vélknúið reiðhjól
Ánægja með framtak Lionsklúbbsins
Gjöf Hjólið sem Dvalarheimilið fékk
að gjöf frá Lionsklúbbnum.
Í gær fór fram Kex-reið, hjól-
reiðakeppni Kex hostels. Er
þetta í fjórða sinn sem keppnin
er haldin, en hún fór fram í
tveimur flokkum; A og B. Farið
var um braut í Skuggahverfinu
sem liggur niður Hverfisgötu,
Klapparstíg, Skúlagötu og Bar-
ónsstíg og er um 1,45 km að
lengd. Götur voru lokaðar fyrir
umferð. Í flokki A voru hjólaðir
20 hringir, eða 30 km, en í
flokki B voru hjólaðir 14 hring-
ir, eða 20 km.
mbl.is/Freyja Gylfa
Kex-reið Hér má sjá keppendur þegar þeir lögðu af stað frá Vitagarði.
Fjöldi tók þátt í hjólreiða-
keppni Kex hostels