Morgunblaðið - 06.06.2016, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Bílar fyrirtækja eru atvinnutæki sem treysta þarf á og því mikilvægt
að bilunum sé haldið í lágmarki og endursöluvirði í hámarki.
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen og Skoda.
• Bein tölvutenging við upplýsingabanka framleiðenda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má
flest allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á
Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
• Bílson býður þjónustuskoðanir, smurþjónustu og allar almennar
bifreiðaviðgerðir.
SÉRSNIÐIN ÞJÓNUSTA AÐ
BÍLAFLOTA FYRIRTÆKJA
Atvinnubílar
Fleytt hefur verið af stað undir-
skriftasöfnun þar sem forseti Íslands
er hvattur til þess að hafna því að
skrifa undir nýsamþykkt útlend-
ingalög. Ekki fengust upplýsingar
um það hverjir standa að baki undir-
skriftasöfnuninni en um miðjan dag
í gær höfðu rúmlega 500 manns
skrifað undir hana.
Nýju lögin fela í sér heildarendur-
skoðun á gildandi ákvæðum um út-
lendinga sem eru frá árinu 2002.
Breið samstaða var um frumvarp-
ið á þinginu og var það samþykkt
fyrir helgi.
Með tilkomu laganna verða ýmsar
breytingar sem stuðla að aukinni
þjónustu við útlendinga, sérstaklega
umsækjendur um alþjóðlega vernd,
erlenda sérfræðinga, námsmenn og
rannsakendur.
Samkvæmt því verður leitast við
að gera skilyrði dvalarleyfa skýrari
og lögð áhersla á að það dvalarleyfi
sem útlendingur sækir um sé í sam-
ræmi við tilgang dvalar hans hér á
landi.
Undir-
skriftasöfn-
un af stað
Vilja hafna nýjum
útlendingalögum
Morgunblaðið/Kristinn
Útlendingastofnun Sett hefur
verið á fót undirskriftasöfnun.
„Okkur finnst mjög margt gott í
þessu frumvarpi en hins vegar
finnst okkur það einnig of tak-
markandi,“ segir Ragnhildur Sig-
urðardóttir, formaður Samtaka
um skammtímaleigu, vegna ný-
samþykkts frumvarps Ragnheiðar
Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra um heimagist-
ingu.
Í frumvarpinu eru þrenns konar
takmarkanir sem samtökin gera
athugasemd við. Í fyrsta lagi er
það takmörkun á hámarkstekjum
sem afla má, 2 milljónir króna. Í
öðru lagi má ekki leigja út lengur
en í 90 daga á ári án þess að
sækja um gistileyfi og í þriðja lagi
eru takmarkanir á fjölda eigna
sem viðkomandi má hafa í skamm-
tímaleigu. „Þetta er langstrang-
asta löggjöf um þessa heimagist-
ingu í öllum heiminum og okkur
finnst þetta gríðarlega miklar tak-
markanir á athafnafrelsi ein-
staklingsins,“ segir Ragnhildur.
Eitt af meginhlutverkum frum-
varpsins er að skilja á milli
aukabúgreinar á borð við skamm-
tímaleigu og atvinnustarfsemi.
Ragnhildur segir að í huga sam-
takanna ættu í raun að vera næg
skil að fólk sé að leigja út lög-
heimili sitt og þ.a.l. væri ekki um
að ræða atvinnustarfsemi. „Að-
allega er 90 daga hámarkið tak-
markandi. Það er ekki rökstutt
með nokkrum hætti. Á ákveðnum
svæðum kann það að vera skilj-
anlegt að vilja hafa þessar tak-
markanir en annars staðar sjáum
við engin rök fyrir þessu. Af
hverju þurfum við að ganga skrefi
lengra en aðrar þjóðir? “ segir
Ragnhildur.
Gagnrýna 90 daga hámark
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lög Samtök um skammtímaleigu telja lög um heimagistingu takmarkandi.
Margt gott í frumvarpinu Þrenns konar takmarkanir
Sigrún Magnús-
dóttir, umhverfis-
og auðlindaráð-
herra veitti Þor-
valdi Gunnlaugs-
syni sjómanni í
gær heiðursvið-
urkenningu
vegna góðrar um-
gengni um hafið,
fyrirmyndarstarf
í úrgangsmálum
og framsækna hugsun varðandi nýja
orkugjafa til sjós.
Þetta er í fyrsta skipti sem um-
hverfis- og auðlindaráðherra veitir
sjómanni viðurkenningu á Sjó-
mannadaginn fyrir fyrirmyndarstarf
að umhverfismálum.
Þorvaldur Gunnlaugsson hefur
stundað smábátaútgerð um langt
skeið og verið duglegur að leita leiða
að umhverfisvænum lausnum og
haft hvetjandi áhrif á aðra til að
koma með allan úrgang í höfn.
Viðurkenning
fyrir góða
umgengni
Viðurkenning Sig-
rún og Þorvaldur.