Morgunblaðið - 06.06.2016, Page 11
SVIÐSLJÓS
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Talsvert hefur færst í vöxt að hrafnar
geri sér hreiður í trjám hér á landi.
Sérstaklega hefur borið á því við
Reykjavík og á Suðurlandsundir-
lendinu þar sem stór og myndarleg
grenitré bjóða krumma upp á skjól-
sæl hreiðurstæði.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson,
sviðsstjóri dýrafræði hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands, hefur reynt að
kortleggja þessa
þróun. Við það
hefur hann m.a.
treyst á liðsinni
fuglaáhuga-
manna, en erfitt
getur verið að
finna hreiðrin þar
sem skógarhrafn-
inn lætur lítið á
sér kræla.
Fyrstu stað- og
tímasettu tilfellin
á kortinu hjá honum eru norðaustan-
til snemma á áttunda áratugnum.
Fyrstu hrafnarnir sáust hreiðra
um sig í birki en hreiður hafa einnig
fundist í greni, lerki, ösp, furu og
reyni. Langflest tilfellin eru þó af
varpi í grenitrjám á Suðvesturlandi.
Sjaldgæft en að aukast
„Það er að aukast að hrafnar verpi
í trjám þó að það sé tiltölulega sjald-
gæft á landsvísu,“ segir Kristinn.
„Þeir verpa yfirleitt í klettum en hafa
einnig orpið í auknum mæli í alls kyns
mannvirkjum. Trjávarpið hefur hins
vegar aukist statt og stöðugt eftir því
sem trén hafa vaxið. Þetta tvennt hef-
ur haldist í hendur með að veita þeim
aukin tækifæri til þess að verpa á
öruggum stöðum í grennd við fólk.
Það virðist ganga ágætlega hjá þeim
þegar þeir fá sæmilegan frið.“
Kristinn tekur þó fram að ekki sé
fylgst grannt með hrafninum á Ís-
landi nema þá helst í grennd við
Reykjavík og í Þingeyjarsýslum á
svipuðu svæði og fálki hefur verið
vaktaður, en fylgst hefur verið með
hrafninum þar árlega síðan 1981.
Stofninn líklega í samdrætti
„Menn hafa þó ákveðna hugmynd
um það sem hefur gerst í stofninum
og hrafni hefur víða fækkað sem
varpfugli, það er ljóst, og líklega hef-
ur fækkað í stofninum í heild.“
Hrafninn hefur þó þrifist misvel
eftir landshlutum síðustu áratugi.
„Til dæmis hefur honum fækkað tölu-
vert í Þingeyjarsýslunum, sem og á
Reykjanesskaga og við Breiðafjörð,
en hér í nágrenni Reykjavíkur hefur
stofninn haldist í horfinu. Það er að
hluta til einmitt vegna þess að varp-
möguleikar eru að aukast í nágrenni
við byggð,“ segir Kristinn.
Mikil breyting á fæðuöflun
Með breyttum atvinnuháttum seg-
ir Kristinn fæðuöflun hrafnsins í
nánd við menn hafa gerbreyst. Sér-
staklega gangi menn miklu betur frá
öllum lífrænum úrgangi en áður.
„Fyrir fáum áratugum voru hér
opnir öskuhaugar um allt land og þar
voru risa hrafnahópar. Þá voru hildir
t.d. mikil fæðuuppspretta á vorin þar
sem ær báru úti við en nú ber allt fé
inni auk þess sem sauðfjárbúskapur
hefur dregist saman, t.d. á Reykja-
nesskaga. Í höfuðborginni eru hins
vegar alltaf að falla til pylsur og ann-
að ruslmeti sem þeir geta hreinsað
upp af götunum.“
Ungarnir að komast á legg
Íslenski hrafninn verpir um eða
fyrir miðjan apríl og liggur á eggj-
unum í um tuttugu daga. Almennt
verða svo ungarnir fleygir í júní, segir
Kristinn. „Þá halda þeir sig í grennd
við hreiðrin í nokkrar vikur þar til
þeir eru reknir að heiman. Á bilinu
júlí-ágúst eru svo ungarnir á eigin
vegum.“
Skógarhrafnar í borginni
Færst hefur í vöxt að hrafnar geri sér hreiður í trjám, sérstaklega í grennd við borgina
Greni er vinsælasta hreiðurstæðið Fylgir stækkandi trjástofni og útbreiddari trjárækt
Morgunblaðið/Eggert
Ungar Þessir pattaralegu hrafnsungar eru að alast upp í Árbænum í Reykjavík í hefðbundnara hreiðurstæði.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
www.gilbert.is
OKKAR MISSIR ALDREI
EINBEITINGUNA
ÚRSMÍÐAMEISTARI
Vertu upplýstur!
blattafram.is
SUMUM LEYNDARMÁLUM
Á EKKI Að ÞAGA YFIR.
GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK?
HVAÐ MEÐ
KYNFERÐISOFBELDI?
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Breytingar á tollalögum fyrir helgi
renna stoðum undir lagaheimild Frí-
hafnarinnar á Keflavíkurflugvelli til
að selja áfengi. Í ágústmánuði síðast-
liðnum var lögð fram kæra á hendur
Fríhöfninni vegna brots á áfengis-
lögum. Í kærunni, sem lögð var fram
af HBO vín ehf., kom fram að engar
lagaheimildir væru fyrir hendi til
þess að selja áfengi í Fríhöfninni,
þær hefðu verið felldar úr gildi í eldri
lögum. Í lagafrumvarpi sem sam-
þykkt var síðastliðinn fimmtudag
felast breytingar sem snúa að 104.
gr. tollalaga og kveða á um að ráð-
herra ákveði með reglugerð hvaða
vörur sé heimilt að selja í tollfrjálsri
verslun.
Jónas Fr. Jónsson héraðsdóms-
lögmaður rekur mál HOB vína.
Hann segir að skoða þurfi framhald-
ið í ljósi breytinganna og að þær
renni stoðum undir kæru umbjóð-
anda síns. „Umbjóðandi minn taldi
að smásala fríhafnarinnar stangaðist
á við einkaleyfi ÁTVR enda ekki til
staðar skýr lagaheimild. Af laga-
breytingunni er augljóst að stjórn-
völd og Alþingi töldu nauðsynlegt að
bregðast við þessum röksemdum.“
Segir Alþingi renna
stoðum undir kæru
Deilt um áfengissölu í Fríhöfninni
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Heimildir Alþingi hefur tekið af all-
an vafa um lagaheimildir Fríhafn-
arinnar til sölu á áfengi.
Hrafnar eru langlífir fuglar en í
náttúrunni geta þeir náð rösk-
lega tvítugsaldri. Þó hafa ein-
staklingar í haldi eða öðru
vernduðu umhverfi náð fertugs-
aldri. Undirtegundir Corvus co-
rax, hrafnsins, eru átta talsins
og finnst sú sem Íslendingar
eru vanir bæði hér og í Fær-
eyjum.
Hvítir og svartir hrafnar voru
nokkuð algengir í Færeyjum á
fyrri öldum en virðast hafa horf-
ið um miðja síðustu öld. Aðeins
var um litbrigði að ræða og lifðu
hinir tvílitu hrafnar meðal
svarta stofnsins en þeir voru þó
undir þrýstingi frá veiðimönn-
um, sem fengu gott verð fyrir
skotna tvílita hrafna.
Tvílitt lit-
brigði var til
CORVUS CORAX
Morgunblaðið/Eggert
Laupur Þessir hrafnsungar í Kópavogi verða senn fleygir. Fyrstu vikurnar
njóta þeir verndar foreldranna. Síðsumars spjara þeir sig sjálfir.
Kristinn Haukur
Skarphéðinsson