Morgunblaðið - 06.06.2016, Page 12
Tískuritstjórar hvaðanæva úr heiminum, um 600
talsins, allir sérlegir boðsgestir á tískusýningu Dior í
Blenheim-höllinni í Oxfordskíri máttu vart mæla af
hrifningu þegar þeir börðu dýrðina augum. Enda er
Blenheim eitt frægasta og glæsilegasta höfðingja-
setur breska heimsveldisins, heimili Marlborough-
hertoga um aldir og fæðingarstaður frænda þeirra,
Winstons Churchills. Ráðamönnum hjá Dior þótti
fara ljómandi vel á að sýna Cruise vor- og sumarlín-
una 2017 í þessari fögru höll. Raunar ekki í fyrsta
skipti því þar voru Dior-tískusýningar haldnar árin
1954 og 1958 þegar Yves Saint Laurent sló í gegn
með sinni fyrstu tískulínu. Þá mun Margrét prins-
essa hafa sagt á lýtalausri frönsku „fallegasta tísku-
lína sem ég hef nokkurn tíma séð“.
Cruise-sumarlínan 2017 frá Dior þótti líka býsna
frambærileg ef marka má umfjöllun í erlendum
tískutímaritum undanfarið.
Frönsk tískusýning í einu frægasta og glæsilegasta höfðingjasetri b
AFP
Konungur hátísk-
unnar Yves Saint
Laurent (1936 - 2008).
Glæst Eðalvagnarnir biðu
í röðum eftir gestum tísku-
sýningarinnar við aðal-
inngang Blenheim-hallar.
Dior í glæstum sal
Reuters
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Árin segja sitt1979-2016
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
)553 1620
Verið velkominn
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sínum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g kom fyrst til Ís-
lands árið 2006 sem
skiptinemi og eftir það
fór ég í tvö ár í Há-
skóla Íslands til að
læra íslensku fyrir útlendinga. Ég
hef verið hérna síðan. Ég vissi lítið
um landið áður en ég kom en ég fékk
áhuga á Íslandi í gegnum ljósmyndir
sem vinkona mín var alltaf að senda
mér þegar hún bjó hér í eitt ár,“ seg-
ir Iurie Belegurschi frá Moldavíu
sem býr á Íslandi og starfar sem leið-
sögumaður fyrir ferðamenn sem
koma til landsins og taka landslags-
myndir.
„Þetta fór allt af stað þegar
mamma sendi mér myndavél hingað
til Íslands í afmælisgjöf. Í hvert sinn
sem ég átti frí þá fór ég út úr bænum
til að taka landslagsmyndir. Ég
stofnaði facebooksíðu þar sem ég
setti inn myndirnar frá Íslandi og ég
fékk fljótt fyrirspurnir frá fylgj-
endum mínum í öðrum löndum um
hvort ég gæti farið með þá í ljós-
myndaferðir um landið. Ég sló til og
fór í nokkrar slíkar ferðir og þá fór
boltinn að rúlla.“
Stofnaði eigið fyrirtæki
Í framhaldinu fjölgaði fylgj-
endum Iurie á facebooksíðunni og nú
eru þeir orðnir ein milljón og tvö-
hundruð þúsund. Hann starfaði um
tíma hjá Iceland-photo-tours, en fyr-
ir nokkrum árum stofnaði hann
ásamt félögum sínum eigið fyrirtæki,
Guide to Iceland.
„Vefsíðan okkar hefur orðið
mjög vinsæl hjá ferðamönnum sem
hingað koma og var fyrirtækið ný-
Ég er ástfanginn
af Íslandi
Hann hefði ekki órað fyrir því þegar hann kom fyrst hingað til lands sem skipti-
nemi, að hann ætti eftir að búa hér og starfa við að leiðsegja erlendum ferða-
mönnum í ljósmyndaferðum. Iurie ólst upp í Moldavíu en draumurinn er að
eignast lítið hús úti á landi og vera með nokkra íslenska hesta.
Hestavinur Iurie er sérlega hrifinn af hlýleika íslenska hestsins.
Magnað Ein af myndum Iurie frá ferð hans með ferðamenn í íshella.
Útlendingar eru ekki þeir einu sem
ferðast um okkar yndislega Ísland,
við sem búum hér förum gjarnan á
flakk yfir sumarið og njótum ís-
lenskrar náttúru. Þá er ágætt að geta
fundið á einum stað allt um það hvað
hægt er að gera í hverjum landshluta,
en á vefsíðunni islandihnotskurn.is
er auðvelt að verða sér út um slíkar
upplýsingar. Hvað er betra en til
dæmis að baða í sig í heitum nátt-
úrulaugm úti í guðsgrænni nátt-
úrunni? Á síðunni er gott yfirlit yfir
allar slíkar laugar sem leynast jú
víða, m.a Gjörvidalslaug, Grettislaug
og Gvendarlaug, Hákarlavog,
Djúpavogskörin og fleiri spennandi
staði. Hiklaust er hægt að mæla með
því að Frónbúar dembi sér nú í heitu
böðin og glápi upp í himininn og njóti
þess að baða sig undir berum himni.
Íslenska sumarið kallar á okkur og
um að gera að njóta hverrar stundar.
Vefsíðan www.islandihnotskurn.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unaður Þessa dásamlegu heitu náttúrulaug er að finna norður á Ströndum.
Böðum okkur úti í sumar
Aldrei er það nógsamlega ítrekað
hversu líkamleg snerting er okkur
mannfólkinu lífsnauðsynleg. Enginn
kemst af án þess að njóta nærveru
við aðrar manneskjur, og hefur það
verið rannsakað í þaula á líkamlegan
hátt hversu miklu máli þetta skiptir
fyrir líðan okkar. Við framleiðum
hormón sem lætur okkur líða vel og
dregur úr streitu í hvert sinn sem við
snertum aðra lifandi mannveru eða
erum snert. Látum þetta verða okkur
til áminningar um að spara ekki
knúsin, kossana, klappið og strok-
urnar. Verum góð hvert við annað,
alltaf, alls staðar. Það skiptir máli.
Endilega …
… sparið ekki
knús og kossa
Morgunblaðið/Eggert
Faðmlag Það er bæði hollt og gott.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.