Morgunblaðið - 06.06.2016, Side 13
breska heimsveldisins
AFP
Innblástur
Lucie Meier
og Serge
Ruffieux,
aðalhönn-
uða Dior,
var fatn-
aður eins og
yfirstétt-
arkonur
klæddust
fyrir seinna
stríð.
Speglun Þessa mynd tók Iurie þegar stilla var góð og náði frábærri speglun fyrir vikið þar sem stúlka fór á hesti.
lega valið hraðast vaxandi frum-
kvöðlafyrirtæki á Íslandi af Nordic
Startup Awards. Vefsíðan okkar er
orðin stærsta ferðasíða fyrir Ísland,
hún er einskonar markaðstorg þar
sem ferðamenn geta fundið upplýs-
ingar um nánast hvað sem er sem
viðkemur ferðalögum á Íslandi,
hvort sem það er að bóka gistingu,
leigja bíl, fara á hestbak, tónleika eða
hvað eina sem fólk hefur áhuga á. Við
erum líka með marga bloggara sem
birta greinar sínar um Ísland á síð-
unni okkar.“
Framkallað á baðherberginu
Iurie er að vonum alsæll með
velgengnina og hann hefur haldið
ljósmyndasýningar m.a í Hong
Kong, í Frakklandi og á Ítalíu.
Myndir eftir hann hafa birst í erlend-
um blöðum, t.d Independant, Daily
Mail og Telegraph. Hann er með
ljósmyndagallerý á Hótel Hala í Suð-
ursveit og á skrifstofu Guide to Ice-
land við Laugaveg.
Áður en hann kom til Íslands
lauk hann háskólanámi í Rúmeníu í
ferðamennsku.
„Mér finnst frábært að vinna
bæði við það sem ég lærði og það
sem ég hef mestan áhuga á: ferða-
mennsku og ljósmyndun,“ segir Iu-
rie og bætir við að fyrir vikið líði hon-
um eins og hann sé staddur í
ævintýri.
Hann segir að ástríða sín fyrir
ljósmyndun hafi kviknaði á bernsku-
árunum.
„Frændi minn sem sá um að
taka myndir í minni fjölskyldu, átti
gamla rússneska filmuvél, og ég
varði miklum tíma með honum í
framköllunarherberginu sem var
baðherbergið á heimili mínu. Ég var
alveg heillaður og þegar ég var níu
ára þá lánaði hann mér stundum
myndavélina til að taka með í skól-
ann og ég myndaði samnemendur
mína, framkallaði myndirnar á bað-
herberginu heima og gaf svo bekkj-
arfélögum mínum þær.“
Miðnætursólin eftirsótt
Fólkið sem gerir sér ferð til
Íslands til að taka myndir í sér-
stökum ljósmyndaferðum með
Iurie, kemur alls staðar að úr heim-
inum en meirihlutinn er frá Banda-
ríkjunum.
„Þetta eru bæði konar og karl-
ar, leikmenn og lærðir á öllum aldri.
Flestar ferðirnar eru yfir vetrartím-
ann, því fólk er heillað af norðurljós-
unum, hellum í jöklum og öðrum ís-
lenskum náttúrufyrirbærum.“
Yfir vetrartímann fer hann oft-
ast með ferðamenn eftir suðurströnd
Íslands, en á sumrin og haustin er
hægt að fara um allt landið, hálendið,
Landmannalaugar og fleiri staði.
Ferðirnar eru frá sex dögum upp í
fjórtán daga og hann segist leggja
áherslu á birtuna í slíkum ferðum,
sólsetur og sólarupprás.
„Miðnætursólin er eftirsótt,
enda ótrúleg birta sem fylgir henni,
sú gullbirta er töfrum líkust. Jökuls-
árlón er það sem heillar alla mest og
flestir verða ástfangnir af landinu og
koma aftur. Minn uppáhaldsstaður
er hið píramídalaga Kirkjufell á
Snæfellsnesi, en Látrabjarg er líka í
uppáhaldi hjá mér. Vestfirðir eru
mér kærir, þar er friðsælt og stór-
brotin náttúra,“ segir
Iurie sem hefur eignast marga
vini á Íslandi og nú er hann giftur
maður og þau ungu hjónin vilja
hvergi annars staðar vera en á Ís-
landi.
Stóð í biðröð eftir brauði
Iurie fer líka með fólk í ljós-
myndaferðir til annarra landa,
Grænlands, Nýja-Sjálands, Ítalíu,
Frakklands, Síle og Argentínu.
„Eftir að hafa ferðast víða og
komið til ótal ólíkra landa þá hef ég
komist að því að það er best að vera á
Íslandi. Hér er allt svo öruggt, allir
eru glaðir og hamingjusamir. Líf
mitt hefur tekið ótrúlegum og já-
kvæðum breytingum á fáum árum.
Ég gæti ekki verið ánægðari. Þar
sem ég ólst upp í Moldavíu var lífið
ekki auðvelt, enda fyrrverandi Sov-
étríki og mikill vöruskortur í versl-
unum. Ég þurfti á hverjum degi eftir
skóla að standa í biðröð í tvo tíma til
að kaupa brauð fyrir fjölskylduna.
Foreldrar mínir lögðu mikla áherslu
á að mennta okkur bræðurna, og
þess vegna fór ég til Rúmeníu í skóla,
bæði í framhaldsskóla og háskóla.“
Hann segir móður sína og bróð-
ur hafa komið í heimsókn hingað og
þegar hann keyri með þau um landið
undrist þau að sjá alltaf eitthvað
stórkostlegt á nokkurra mínútna
fresti, fossa, jökla og fjöll.
„Draumurinn er að eignast lítið
hús úti á landi og vera með nokkra ís-
lenska hesta. Ég er heillaður af ís-
lenska hestinum, ég hef hvergi í
heiminum hitt fyrir svo spaka og
vinalega hesta sem hér á landi.“
Eldsumbrot Ein af mörgum mynda Iurie af eldsumbrotum á Íslandi.
Litadýrð Iurie kann vel að meta endalausa möguleika á birtu og litum hér.
Hvítserkur Iurie lætur sólina lýsa.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Við sendum
hádegismat í bökkum
og kantínum til fyrirtækja
og stofnana alla daga ársins!
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
SKÚTAN
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði