Morgunblaðið - 06.06.2016, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
BJÖRGUNARVÖRUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Gott úrval af björgunarvörum á lager
BJÖRGUNARBÁTAR
BJARGHRINGIR
FLUGELDAR
FLOTBÚNINGAR
BJÖRGUNARVESTI
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
John Major, fv. forsætisráðherra
Bretlands, fordæmdi í gær málflutn-
ing aðskilnaðarsinna um áhrif veru
Bretlands í Evrópusambandinu en
kosning um áframhaldandi aðild
Breta að ESB verður haldin 23. júní
nk. Í nýlegum skoðanakönnunum
mælist jafn stuðningur við bæði aðild
og aðskilnað við Evrópusambandið.
Sagði Major íhaldsmenn sem barist
hafa fyrir aðskilnaði hafa farið vísvit-
andi með ósannindi í baráttu sinni en
helstu baráttumenn beggja sjónar-
miða eru innan Íhaldsflokksins, sem
er klofinn í afstöðu sinni.
Skýjaþokur af rangfærslum
„Þeir eru að mata breskan al-
menning með heilu skýjaþokunum af
ónákvæmum og satt að segja ósönn-
um upplýsingum,“ sagði Major í
spjallþætti á BBC. Hann sagði að-
skilnaðarsinna hafa tapað um-
ræðunni um efnahagslegar afleiðing-
ar og þeir legðu þess í stað áherslu á
innflytjendamál, „þar sem málflutn-
ingur þeirra er fyrir neðan allar
hellur.“ Þá tók hann sérstaklega fyr-
ir fullyrðingu Boris Johnson um 350
milljóna punda árleg gjöld Bretlands
til ESB. Hin raunverulega tala eftir
endurgreiðslur og styrki til bænda
væri þriðjungur af þessari tölu.
Tyrkir ekki á leið í ESB
Meðal þess sem aðskilnaðarsinnar
hafa varað við um áframhaldandi að-
ild er milljónir Tyrkja sem sagðir
eru vilja flytja til Bretlands fengi
Tyrkland aðild að ESB. Þetta sagði
Major niðurdrepandi og ömurlegt.
„Tyrkland mun ekki fá aðild að ESB
í mjög, mjög langan tíma, ef nokkurn
tíma, og aðskilnaðarsinnar vita það.“
Loks sagði hann loforð aðskilnað-
arsinna um fjárveitingar til opinbera
heilbrigðiskerfisins (NHS) blekking-
arleik. Kerfið væri álíka öruggt í
höndunum á Johnson og félögum og
hamstur í fylgd hungraðs snáks.
Johnson stendur við sitt
Boris Johnson sagðist í sama
þætti standa við 350 milljón punda
töluna, sem væri sanngjörn í ljósi
þess að endurgreiðslurnar væru fé
sem Bretar stjórnuðu ekki.
Þá væri honum slétt sama hvort
Tyrkir fengju aðild að ESB eða ekki
svo lengi sem Bretland væri utan
þess.
Segir aðskilnaðarsinna blekkja
John Major harðorður í garð aðskilnaðarsinna í Brexit kosningabaráttunni Sagðir fara vísvitandi
með rangar upplýsingar til þess að afvegaleiða kjósendur Fylkingarnar jafnar í skoðanakönnunum
John Major Boris Johnson
Síðustu daga hafa fundist lík 133 flóttamanna á strönd-
um vestanverðrar Líbíu. Ekkert lát hefur verið á þeim
fjölda sem lætur reyna á siglinguna þaðan og norður til
Ítalíu. Flest líkin fundust við bæinn Zuwarah en nokk-
ur rak á land við gasvinnslustöð stutt frá þar sem þessi
mynd var tekin.
AFP
Líkum 133 flóttamanna skolar á land
Svisslendingar kusu í gær í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um ýmis málefni
eins og siður er þar í landi. Umtal-
aðasta málefnið á kjörseðlinum
þessu sinni var tillaga um óskilyrt
borgaralaun upp á 2.500 franka (um
314 þ. kr.) á mánuði til handa hverj-
um Svisslendingi og útlendingi sem
búið hefði þar löglega í fimm ár auk
625 franka fyrir börn (um 78,5 þ.
kr.).
Hugmyndin hlaut þó ekki náð
fyrir augum svissneskra kjósenda.
Voru 76,9% voru henni andvíg.
Stuðningsmenn tillögunnar sögðu
henni ætlað að draga úr fátækt og
ójöfnuði í heimi þar sem góð og vel
launuð störf væri sífellt erfiðara að
fá. Á móti sögðu andstæðingar henn-
ar árlegan kostnað upp á 25 millj-
arða franka óyfirstíganlegan. Skera
þyrfti hraustlega niður útgjöld og
hækka skatta gríðarlega til þess að
standa undir borgaralaununum.
Fjórar aðrar tillögur voru á kjör-
seðlinum. Meðal þeirra var tillaga
um að yfirmenn fyrirtækja í opin-
berri eigu mættu ekki fá hærri laun
en ráðherrar. Þeirri tillögu var hafn-
að, voru 68% á móti. Einnig var til-
lögu bílaframleiðenda um auknar
fjárfestingar í vegakerfinu hafnað.
Þá var samþykkt að flýta af-
greiðslu umsókna um hæli í landinu
og að leyfa erfðaprófanir á fóstrum
ef foreldrarnir bera alvarlegan
erfðasjúkdóm. bso@mbl.is
Borgaralaunum
hafnað í Sviss
76,9% á móti óskilyrtum tekjum
AFP
Genf Stórir borðar voru breiddir út
í Sviss til stuðnings borgaralaunum.
Í bænum Saqlawiya, norðvestur af
Fallujah, fundu hersveitir Íraks-
stjórnar fjöldagröf sem talin er
innihalda lík um 400 manna sem
teknir voru af lífi eftir að liðsmenn
Íslamska ríkisins tóku borgina.
Umsátursástand er í Fallujah, en
hersveitir hafa nú umkringt borg-
ina nánast alveg. Talið er að um
2.500 liðsmenn Íslamska ríkisins
verjist þar innan um 50.000
óbreytta borgara, sem þeir nota
óspart sem mannlega skildi.
Fáar leiðir eru út úr borginni og
skjóta liðsmenn samtakanna á þá
sem reyna að flýja. Þá hefur fólk
drukknað við að reyna að flýja yfir
ána Efrat.
Sérsveitum Írakshers hefur lítið
orðið ágengt í borginni og óttast er
að þeim þrjóti kraftur. Þá þurfi að
beita óformlegum hersveitum fjár-
mögnuðum af Írönum.
Írak
Fjöldagröf við Fallujah
AFP
Írak Hersveitir sjíamúslima taka
þátt í að umkringja borgina.
Afar mjótt er á mununum milli
Keiko Fujimori og Pedro Kudc-
zynski í seinni umferð forsetakosn-
inga í Perú. Kjörstaðir lokuðu í gær-
kvöld og voru þau jöfn í útgöngu-
spám.
Fujimori er 41 árs dóttir fv. for-
setans Alberto Fujimori sem situr nú
í fangelsi fyrir spillingu og morð á
andstæðingum sínum. Framboð
hennar er afar popúlískt og hefur
hún t.d. lofað
ókeypis traktor-
um í sveitum og
einarðri andstöðu
gegn hjónabönd-
um samkyn-
hneigðra.
Kudczynski er
77 ára fv. banka-
maður og fjármálaráðherra sem er
mun vinsælli í borgum landsins.
Perú
Frambjóðendurnir jafnir