Morgunblaðið - 06.06.2016, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Neðri deildþýskaþingsins
samþykkti í liðinni
viku að viðurkenna
þá atburði í Tyrk-
landi sem nefndir
hafa verið þjóðarmorðið á Ar-
menum árið 1915, en þáver-
andi Tyrkjaveldi myrti þá 1,5
milljónir Armena og rak fjölda
fólks frá heimilum sínum í
dauðagöngu til Sýrlands. Það-
an dreifðust Armenar vítt og
breitt um heiminn.
Tyrkir hafa ávallt neitað því
að atburðirnir sem um ræðir
hafi verið þjóðarmorð og segja
þá bara hafa verið þátt í fyrri
heimsstyrjöldinni og uppreisn
Armena gegn Tyrkjum. Þegar
nánar er kafað í málið virðist
þó sem lítið sé hæft í þeim út-
skýringum. Engu að síður
hafa Tyrkir verið iðnir við að
hóta þeim sem nota hugtakið
þjóðarmorð um atburðina, og
beitt miklum þrýstingi til þess
að kveða niður minninguna um
þessa voveiflegu atburði.
Það eru því heilmikil tíðindi
að tillaga sem þessi hafi verið
borin fram og samþykkt af
þýskum þingmönnum. Málið
er sérstaklega viðkvæmt þar
af tveimur ástæðum. Ekki að-
eins var Ottómanaveldið einn
helsti bandamaður Þjóðverja í
fyrri heimsstyrjöldinni, held-
ur búa einnig um þrjár millj-
ónir Tyrkja í Þýskalandi.
Viðbrögð Tyrkja hafa ekki
látið á sér standa, því að sendi-
herra landsins í
Berlín var kallað-
ur heim í kjölfar
samþykktarinnar,
auk þess sem
sendiráðsfulltrúi
Þjóðverja í Ankara
var kallaður þar á teppið.
Sagði ríkisstjórn Tyrklands að
samþykkt ályktunarinnar
væri „söguleg mistök,“ og Er-
dogan Tyrklandsforseti varaði
við því að afleiðingarnar yrðu
mjög alvarlegar fyrir sam-
skipti ríkjanna tveggja.
„Söguleg mistök“ er auðvit-
að kyndugt orðalag í þessu
samhengi, því að mistökin eru
miklu fremur þau að heil öld
þurfti að líða áður en hægt var
að viðurkenna þá ömurlegu og
ógeðfelldu atburði sem þarna
áttu sér stað.
Í þessu samhengi má nefna
að fyrir Alþingi Íslendinga
hefur nokkrum sinnum verið
lögð fram tillaga áþekk þeirri
sem neðri deild þýska þingsins
samþykkti, en hún hefur jafn-
an sofnað í nefnd. Full ástæða
er til að þingið taki stöðu með
þeim sem hafa sér enga mál-
svara átt í sögunni. Það er
kominn tími til þess að þjóðar-
morðið á Armenum hljóti þá
viðurkenningu sem ber. Með
því er ekki vegið að Tyrkjum
dagsins í dag. Syndir feðranna
tilheyra ekki þeim. Fyrsta
skrefið til sátta og uppgjörs
við fortíðina verður þó ekki
stigið nema benda á það sem
miður fór.
Það er kominn tími
til þess að þjóðar-
morðið á Armenum
hljóti viðurkenningu }
„Söguleg mistök“
Ófreskjan erstigin á
land!“ Svo hljóð-
uðu fyrirsagnir
Parísarblaðanna
þegar Napóleon keisari steig
á land í Suður-Frakklandi,
nýsloppinn úr prísund sinni á
Elbu. Eftir því sem keisarinn
færðist nær höfuðborginni
mildaðist tónninn þar til þau
birtu að lokum: „Hans há-
tign, keisarinn, mun halda
innreið sína á morgun.“ Allar
götur síðan hefur þessi at-
burðarás verið nefnd sem
dæmi um pólitíska hentisemi.
Þessi saga kemur í hugann
nú þegar ýmsir forystumenn
Repúblikana hafa skipt um
skoðun á Donald Trump.
Paul Ryan, forseti fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings,
hefur til dæmis lýst yfir
stuðningi við hann, en ekki
er langt um liðið frá því að
Ryan sagðist ekki geta stutt
Trump, þar sem stefnumál
hans væru ekki í góðu sam-
ræmi við þá stefnu sem
Repúblíkanaflokkurinn hefði
staðið fyrir, eða í
samræmi við það
fordæmi sem
fyrri forsetar
flokksins á borð
við Lincoln og Reagan hefðu
gefið.
Og raunar hefur Ryan ekki
legið á gagnrýni sinni á
stefnumál Trumps hingað til.
Hann sagði til að mynda að
tillaga Trumps um að meina
öllum múslimum að koma til
Bandaríkjanna gengi ekki
bara gegn gildum íhalds-
stefnunnar, heldur einnig
gegn öllu því sem Bandaríkin
stæðu fyrir.
Líklega gat aldrei gengið
til lengdar að æðsti embætt-
ismaður repúblíkana á lands-
vísu myndi ekki styðja for-
setaframbjóðanda flokksins.
Það að sú stuðningsyfirlýs-
ing komi án þess að Trump
hafi í raun beygt af með þau
stefnumál sem Ryan gerði
svo alvarlegar athugasemdir
við kemur hins vegar veru-
lega á óvart. Hans hátign er
greinilega komin til Parísar.
Paul Ryan sættir
sig við Trump}Keisarinn er kominn til Parísar
M
ér er sagt að ég eigi óásjáleg-
asta skrifborðið á vinnustaðn-
um. Í það minnsta sjáist ekki
að kona dvelji þar langdvölum
við skriftir. Samstarfsfélagi,
sem kom aftur til starfa eftir nokkurt hlé, gat
sér til um – þar sem ég hafði aðeins brugðið
mér frá og sætið var autt – að þennan bás ætti
vörubílstjóri sem hefði söðlað um og gerst
blaðamaður nýlega. Og komið öllu innvolsinu
úr bílnum fyrir á borðinu.
Á borðinu troðast tómar og hálftómar gos-
flöskur hver um aðra eins og á mannamóti hjá
Pepsi Max. Ein tóm bjórflaska (sem ég á ekki)
og sígarettupakki (sem einhver skildi líka
eftir). Pappírar á floti og mynda lagkökur eins
og á svignandi veisluborði. Mynd af börnum, jú
að vísu, en þau gætu allt eins verið barnabörn bílstjórans.
Heima hjá mér er allt annað að sjá, þar sem ég spái
talsvert í smáatriði eins og hversu margir sentímetrar
eru á milli kertastjaka númer eitt og kertastjaka númer
tvö. Ég vona að skrifborðið mitt verði aldrei lagt fram
sem einhvers konar vitnisburður um líf mitt. Það end-
urspeglar ekki raunveruleikann.
Þeir eru margir vinnufélagar leikarans Johnny Depp
sem þessa dagana benda á að hann sé ótrúlega fínn og
ljúfur gaur í vinnunni. Þau virðast ekki vera nein vitnin
um það hvað gerðist heima hjá Johnny Depp og Amber
Heard en þetta með að rengja konur sem greina frá
heimilisofbeldi áður en nokkur dómur hefur verið kveð-
inn upp; við erum að sjá það gerast í ýkjustíl.
Meira að segja fyrrverandi eiginkona leikar-
ans segist vita að svona hafi Depp ekki getað
gert. Samt skildu þau fyrir áratugum og ólík-
legt er að fyrrverandi eiginkonan hafi fylgst
með nýja hjónalífinu í felum á bak við sófann.
Fólk sem er fínt og almennilegt í vinnunni,
fólk sem er fínt og almennilegt í partíum, fólk
sem er fínt og almennilegt á kaffihúsi með vin-
um sínum – það fólk getur átt allt aðra hlið
heima hjá sér. Það getur verið að lemja. Þetta
segja allir sérfræðingar í heimilisofbeldi.
En ekki er nóg með að fólk sé tilbúið að
rengja hana strax. Það er líka annar ruglaður
hópur á ferðinni. Hópurinn sem er jú til í að
trúa henni, en „það eru tvær hliðar á öllum
málum“ hópurinn. Hópurinn sem spyr „Af
hverju?“ Af hverju er ennþá svona fáránlega stór hópur
fólks sem vill vita einhverjar ástæður þess að fólk beiti of-
beldi? Eins og það geti verið einhverjar aðrar ástæður fyr-
ir ofbeldi en að viðkomandi þekkir ekki mörkin í sam-
skiptum við aðra lifandi veru.
„Allt í lagi, lamin og blá, en hvað gerði hún?“ er spurn-
ingin sem vefmiðlar um allan heim eru að fyllast af.
„Hvernig voru málavextir?“ „Hvað sagði hún sem varð til
þess að hann lamdi?“
Enda er mikilvægt í ofbeldismálum að fá að melta að-
eins hvað gerðist og leggja svo dóm á hvort það hafi mátt
lemja eða ekki. Bara eins og í öllum siðuðum samfélögum.
julia@mbl.is
Pistill
Dæmigerð viðbrögð við Depp
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
R
eykvíkingar geta kom-
ið hugmyndum um
nýframkvæmdir og
viðhaldsverkefni í
borginni á framfæri
við borgaryfirvöld á vefnum Betri
Reykjavík (betrireykjavik.is) fram
til 15. júní. Opnað var fyrir tillög-
ur 25. maí og fyrir helgi höfðu yfir
300 hugmyndir borist.
Þetta er í fimmta sinn sem efnt
er til hugmyndasöfnunar af þessu
tagi á vefnum og hafa nær 600
hugmyndir orðið að veruleika fyrir
tilstilli verkefnisins. Að þessu
sinni verður 50% meira fé ráðstaf-
að til þessara verkefna, þ.e. 450
milljónum í stað 300 milljóna eins
og verið hefur síðustu fjögur ár.
Fjórðungi skipt jafnt
Til að tryggja minnstu hverf-
unum lágmarksfjárhæð til umráða
er fjórðungi fjárheimildarinnar
skipt jafnt milli hverfa. Það fjár-
magn sem eftir stendur skiptist á
milli hverfanna í réttu hlutfalli við
íbúafjölda.
Fyrstu 112,5 milljónunum er
þannig skipt jafnt milli hverfanna
tíu og koma því að lágmarki 11,25
milljónir króna í hlut hvers hverf-
is. Því sem eftir stendur, 337,5
milljónum króna, er skipt á milli
þeirra 122 þúsund íbúa sem eru í
hverfum borgarinnar þannig að í
hlut hvers og eins koma 2.766,37
krónur. Sú tala er svo margfölduð
með íbúatölu hvers hverfis og fæst
þá heildarfjárheimild hverfisins.
Fjöldi íbúa og skipting milli
hverfa miðast lok árs 2015. Þannig
fær Breiðholt mest til sín, rúmar
70 milljónir, sem er tíu milljónum
meira en Grafarvogur sem fær 60
milljónir í sinn hlut. Kjalarnes fær
rúmar 13 milljónir í sinn hlut.
Flestar frá Breiðholti
Breiðhyltingar eru með lang-
flestar hugmyndir fyrir sitt hverfi,
eða 52. Íbúar í Grafarholti og
Úlfarsárdal, sem og Háaleiti og
Bústaðir eru með 37 og Grafar-
vogur 36.
Fimm hugmyndir voru komnar
frá íbúum Kjalarness. „Fjöldi
verkefna sem hefur farið í gegn-
um „Betri hverfi“ er í heildina
hátt í 400, ef ég leyfi mér að taka
þetta gróflega saman. Þetta eru
um 10 hugmyndir í hverju hverfi,
eða 100 verkefni á ári,“ segir Jón
Halldór Jónasson hjá Reykjavík-
urborg, en verkefnin eru fyrir ut-
an verkefni sem hafa farið í gegn-
um hina viðvarandi íbúagátt
„Betri Reykjavík“.
Endurbætt vefsíða
Vefsíðan Betri Reykjavík hefur
verið endurbætt þannig að nú geta
íbúar sett inn ljósmyndir eða
teikningar með hugmyndum sín-
um til að skýra þær betur út og
gera framsetningu þeirra líflegri.
Hugmyndasmiðir geta einnig deilt
framlagi sínu á samfélagsmiðlum
til að vekja athygli annarra á hug-
myndunum. Einnig er gert ráð
fyrir að staðsetning sé sett inn á
kort þegar hugmynd er sett inn
og þannig mun myndast gott yf-
irlit um hugmyndaríkustu svæðin.
„Á þessari stundu er það Breið-
holt sem leiðir með 52 hugmyndir.
Innan þess hverfis er mikill metn-
aður og segir Arnar Snæberg
Jónsson, verkefnastjóri Þjónustu-
miðstöðvar Breiðholts, að stefnt sé
að því að ná inn yfir 100 hug-
myndum,“ segir Jón Halldór.
Þrátt fyrir að flestar hugmyndir
séu nú komnar inn fyrir Breiðholt
er fjöldi notenda mestur í Laugar-
dal og þar eru einnig mestar um-
ræður um hugmyndirnar.
Yfir 300 tillögur um
betri borg komnar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Áhugi Íbúar í Breiðholti eru með langflestar hugmyndir fyrir sitt hverfi á
vefnum Betri Reykjavík. Þeir hafa sett fram 52 úrbótatillögur.
Alls höfðu borist 305 hugmyndir inn á borð Betri Reykjavíkur fyrir helgi.
„Eins og viðtökur hafa verið fyrstu vikuna sem opið hefur verið fyrir hug-
myndir stefnir í að fleiri hugmyndir skili sér í ár en fyrri ár. Við höfum
unnið í kynningarmálum að því að stækka þann hóp sem veit af þessum
möguleika til að skila inn hugmyndum sínum. Virknin á vefnum hefur
einnig aukist, þó vissulega sé of snemmt að segja til um endanlega tölu í
hugmyndasöfnuninni,“ segir Jón Halldór.
Fleiri hugmyndir í ár
STEFNIR Í AÐ FLEIRI HUGMYNDIR SKILI SÉR