Morgunblaðið - 06.06.2016, Page 18

Morgunblaðið - 06.06.2016, Page 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016 Málmiðnaður á Ís- landi stendur að mörgu leyti traustum fótum enda næg verkefnin. Málmiðn- aðurinn er fjölbreytt- ur og meðal þess sem fengist er við er við- hald skipa, viðhald og endurnýjun verk- smiðja og framleiðsla ýmiskonar búnaðar svo eitthvað sé nefnt. Það eru hins vegar blikur á lofti og hafa verið um alllangt skeið. Mönnun greinarinnar er ekki með þeim hætti að viðunandi sé og erf- iðlega gengur að fá ungt fólk til að mennta sig í faginu. Hver er ástæðan? Nefnt er að mæðurnar stjórni því hvaða leið börnin velja sér sem framtíðar- starf. Eflaust er nokkuð til í því. En er það svo að börnin geri allt sem foreldrarnir segja þeim að gera? Mikil áhersla og áróður er fyrir æðri menntun, allir skulu verða stúdentar til að komast síð- ar í háskóla. Getur verið að áherslan á háskólanám sé komin út fyrir það sem þjóðfélagið þarf á að halda? Þurfum við hærra hlut- fall fræðinga á vinnumarkað þegar yfir 25% atvinnulausra er háskóla- menntað fólk, á sama tíma og iðn- fyrirtæki vantar faglærða iðnaðar- menn sem „tala íslensku“? Iðnfyrirtæki vantar ekki fólk sem getur búið til teikningar, þau vantar fólk sem getur lesið teikn- ingar og framleitt það sem á teikningunum er. Menntamálaráð- herra blæs til sóknar, nú skal háskólamenntun lyft upp með því að styrkja nemendur til náms. Allt að þrjár milljónir í styrk, ald- eilis frábært framtak sem þó hefði verið gaman að sjá gerast strax í upphafi kjör- tímabils ráðherrans en ekki á síðustu metr- unum. Það væri ósk- andi að ráðherrann hefði sama metnað fyrir iðnnámi en þar hefur því miður hallað verulega undan fæti á undanförnum árum og er svo komið eftir því sem fregnir herma, að sumir fram- haldsskólar stefna í gjaldþrot verði ekkert að gert. Ekki verður séð að frumvarp menntamálaráðherra geri ráð fyr- ir styrkjum til iðnmenntunar en ég skora á ráðherrann að lagfæra frumvarpið með það í huga að iðn- nám verði með í styrkjakerfinu nýja og jafnframt að ráðherrann finni aukið fjármagn til handa iðn- skólum landsins til að hægt sé að reka skólana með viðunandi hætti og fjárfesta í nauðsynlegum kennslutækjum. Hefjum iðn- menntun til þeirrar virðingar sem hún á skilið. Menntastefna á villigötum Eftir Jón Þór Sigurðsson Jón Þór Sigurðsson » Það væri óskandi að ráðherrann hefði sama metnað fyrir iðn- námi. Höfundur er vélvirki. Andri Snær segir í viðtali við visir.is að framboð Vigdísar Finnbogadóttur hafi verið hápólitískt – rek- ið áfram af agressívum kvenréttindakonum og skilja mátti á Andra Snæ að Vigdís hafi ver- ið fulltrúi þeirra. Þetta er ekki í samræmi við frásögn Vigdísar sjálfrar – en hún sagði marga karlmenn hafa hvatt sig og þótti sérstaklega vænt um marga sjómenn sem settu sig í samband við hana. Aðspurð kvaðst Vigdís ekki vilja vera kosin fyrir að vera kona: „held- ur af því að ég er maður“. Vigdís er vitur kona og veit að kynið skiptir ekki máli, heldur hæfnin. Davíð Oddsson kvaðst hafa oftar en nokkur Íslendingur myndað rík- isstjórn – hægt er að segja það stað- reyndavillu því Ólafur Thors tók þátt í að mynda fleiri stjórnir en Davíð Oddsson. Svo var það líka vill- andi orðalag hjá Davíð þegar hann nefndi nafn Vigdísar Finnbogadótt- ur í sambandi við Kárahnjúka – hún var ekki forseti þá. En þótt Andri Snær hafi sagt rangt um framboð Vigdísar og Davíð um þátttökumet sitt í stjórnarmynd- unum og varðandi aðkomu Vigdísar að Kárahnjúkum – löngu eftir að hún hætti sem forseti – þá skiptir það engu í heildar- myndinni. Það er fyrirgefanlegt að fara rangt með stað- reyndir sem tengjast ekki því sem máli skiptir. Andri Snær var að ræða framboð sitt og notaði Vigdísi sem rökstuðning – þannig að viðtalið snerist ekki um Vigdísi Finnboga- dóttur. Sama gildir um Davíð – hann var ekki í þættinum að fjalla um sagnfræði heldur kynna sínar áherslur. Stundum nota menn dæmi til rökstuðnings og mannsheilinn er þannig gerður að hann getur ekki skilað öllu 100%. Fjölmiðlar sáu ástæðu til að fjalla um staðreyndavillu Davíðs – til að klekkja á honum en enginn nefndi villuna hjá Andra Snæ. Hvað skyldi valda því? Ætli ástæðan sé ekki dugnaður andstæðinga Davíðs Oddssonar – þeir eru ekki kjánar og vita að Davíð er öflugasti núlifandi stjórnmálaleið- togi þjóðarinnar og enginn hefur komið fram sem stendur nálægt honum í pólitískri færni og það ergir að sjálfsögðu pólitíska andstæðinga hans meira en nokkuð annað. Illugi Jökulsson tilheyrir ekki hópi stuðningsmanna Davíðs Odds- sonar – en sem ritstjóri og höfundur fræðibóka kemst hann ekki hjá að setja staðreyndir á blað. Árið 2003 – þegar Davíð Oddsson hafði verið forsætisráðherra sam- fellt í tólf ár og komin reynsla á hans verk ritstýrði Illugi bók sem heitir: Ísland í aldanna rás 20. öldin. Í bókina er rituð frásögn af fyrsta kjörtímabili Davíðs sem forsætisráð- herra og þar segir m.a.: „Davíð Oddsson hafði eftir svolítið brokkgenga byrjun í embætti for- sætisráðherra öðlast æ meira traust þjóðarinnar. Jafnvel meðal andstæð- inga Sjálfstæðisflokksins hneigðust margir til að treysta Davíð til að kollkeyra ekki samfélagið.“ Illugi Jökulsson hefur varla liðið söguföls- un í bók sem hann ritstýrði sjálfur – þannig að erfitt er að hrekja þessa frásögn. Árið 1991 hafði þjóðin þolað eitt af verstu samdráttarskeiðum tuttug- ustu aldar og fyrsta kjörtímabil Davíðs einkenndist af atvinnuleysi og ýmsum efnahagsþrengingum. Það er mikið afrek að skapa sátt á erfiðum tímum – það geta ekki aðrir en sterkir leiðtogar. Staðreyndavillur Andra Snæs og Davíðs Oddssonar Eftir Jón Ragnar Ríkharðsson » Fjölmiðlar sáu ástæðu til að fjalla um staðreyndavillu Davíðs – til að klekkja á honum – en enginn nefndi villuna hjá Andra Snæ. Jón Ragnar Ríkharðsson Höfundur er sjómaður. Hið íslenska Biblíu- félag var stofnað 1815 og er því 200 ára. Ég er félagi í þessu góða félagi, og er stolt af því. Um leið og ég varð læs fékk ég Biblíuna að gjöf. Ég hafði verið í tíma- kennslu hjá séra Árel- íusi og gladdist mikið yfir þessari blessuðu bók, sem æ síðan hef- ur verið mér leiðarvísir, styrkur og hjálp á ævigöngunni. Það var mín gæfa að hafa fengið að heyra boðskap Biblíunnar. For- eldrar mínir sögðu okkur systk- inunum frá Jesú og því sem hann sagði og gerði. Ein af dæmisögum Jesú hafði þau áhrif á mig að það gleymist aldrei. Það var dæmisaga Jesú um góða hirðinn. Góður hirðir gætti vel að sauðunum. Við Íslend- ingar tengjum vel við þessa frá- sögu, því það er ekki svo langt síð- an að setið var yfir fénu hér á landi. Þessi hirðir sem Jesús segir frá sat yfir fénu og gætti vel. Það sem hafði svo mikil áhrif á mig var að lítið lamb villtist frá móðurinni og hópnum og týndist. Hirðirinn varð þess var, og af því að þetta eina litla lamb var jafn mikilvægt og allir hinir sauðirnir, lagði hann af stað að leita. Hann skildi hópinn eftir, og fór að leita að þessu lambi sem skipti máli. Hann kallaði í allar áttir, og loks heyrði hann veikt jarm, og gekk á hljóðið, en lambið hafði fallið niður á syllu og var í sjálfheldu. Hirðirinn kraup niður og notaði hirðisstaf sinn til að krækja utan um litla lambið og hífði það upp og bar það til móður sinnar. Þegar foreldrar mínir útskýrðu fyrir mér að þannig vill Jesús fá að vera hirðir í mínu lífi, þá tók ég það mjög al- varlega, og ég sem lítið barn bað mína bæn til góða hirðisins og bað hann um að leyfa mér að fylgja sér allt mitt líf. Og það hefur verið gott að fylgja góða hirðinum, því lífið get- ur verið hart og mis- kunnarlaust. Og þá þarf maður einhvern sér sterkari til að halla sér að í stormviðrum lífsins. Ég hef valið Jesú sem er góði hirðinn. Eitt af því sem er líka svo fallegt við þessa frásögu er að hirðirinn þekkti hverja kind og lamb með nafni. Þannig er Jesús, hann þekkir okkur hvert og eitt með nafni. Hann dó á krossi og reis upp frá dauðum og lifir í dag! Hann er nú á himnum við hlið föðurins og biður fyrir okkur. Og það er hann sem mildar allar aðstæður okkar í þessum heimi. Ég veit um marga sem trúa boð- skap Biblíunnar og hafa fengið styrk og lausn inn í sitt líf með því að tileinka sér orð Jesú og biðja. Stundum er bæn hins hrjáða manns eða konu bara sú að fá að halla sér upp að hjarta Jesú. Það þarf engin orð, því hann þekkir þá sem treysta honum. Biblían góð gjöf Eftir Halldóru Láru Ásgeirsdóttur Halldóra Lára Ásgeirsdóttir » Það var mín gæfa að hafa fengið að heyra boðskap Biblíunnar. Foreldrar mínir sögðu okkur systkinunum frá Jesú og því sem hann sagði og gerði. Höfundur er starfsmaður útvarpsstöðvarinnar Lindarinnar. Maður hugsar sjaldn- ast um það, þegar geng- ið er frá Túngötunni eða Suðurgötunni inn á Kirkjustræti á leið í Landsbankann eða ann- að, að þar sé maður að ganga í gegnum kirkju- garð. Svo er nú samt, og ekur yfir hann líka, ef maður er í bíl. Í dag er nánast ómögulegt að ganga þarna meðfram Fógetagarðinum nema úti á götunni vegna þess uppgraftar, sem á sér stað þar illu heilli, og fyllir mann harmi, þegar vitað er, að þarna er verið að hrófla við leiðum genginna kynslóða Reykvíkinga, sem voru jarðsettir þar á liðnum öldum. Þau rök fyrir þessu raski og róti af hálfu Völu Garðarsdóttur finnst mér held- ur léleg og léttvæg fundin, og greini- legt, að hún og vinnuveitendur henn- ar bera enga virðingu fyrir þessum stað, sem þeir eru að raska og róta í. Að tala um misskilning af hálfu okk- ar, sem horfum upp á þetta með hryllingi er slíkt rugl, að engu tali tekur, eða hvernig getur manneskjan ætlað, að hægt sé að misskilja slíkar aðgerðir sem þær að taka upp heilu líkkisturnar úr leiðunum þarna og stafla þeim upp í geymslum Þjóð- minjasafnsins fyrir seinni tíma rann- sóknir, svona þegar fornleifafræðing- arnir mega vera að því, allt í nafni hótelbyggingar, sem á að koma þarna í staðinn? Það segir sig sjálft, að það gengur engan veginn upp. Hér virðist sami yfirgangurinn og vitleysan vera í gangi hjá Icelandair Group, eins og þegar þeir ætluðu að fara að eyðileggja Skálholt með ein- hverjum fornaldarbyggingum, sem enginn sá neinn tilgang í nema þeir, og allt peninganna vegna. Þessu fólki virðist greinilega ekkert heilagt, ekki einu sinni hinn forni kirkjugarður Reykvíkinga, Víkurgarður, sem er óafmáanlegur hluti kirkjusögu borg- arinnar og verið er að eyðileggja. Það er afar léleg afsökun fyrir þessum óg- erningi nú, að það sé áður búið að eyðileggja hluta kirkjugarðsins, þegar Landssímahúsið var byggt og eins þeg- ar Fógetagarðurinn var skipulagður, því að þá voru engar líkkistur eða beinagrindur fjar- lægðar og settar ein- hvers staðar í kjallara- geymslur, þar sem þær eru látnar daga uppi, heldur komið fyrir ann- ars staðar í garðinum. Að raska grafarró fólks er líka alvarlegur hlutur, sem síst má horfa framhjá eða líta til af léttúð. Ég segi nú fyrir mig, að ekki vildi ég eiga að gista eina nótt á því hóteli, sem ætlað er að rísi þarna, þegar bú- ið er að raska svo mjög grafarró tuga gamalla Reykvíkinga, eins og nú hef- ur verið gert, hvað þá lengur, enda má alveg búast við reimleikum í hót- elinu við svo búið, og Icelandair Gro- up gæti því auglýst þetta nú þegar sem Draugahótel Reykjavíkur þess vegna. Það er líka eins gott að enginn miðill komi þar inn, því að hann myndi engan veginn botna í því, að nokkrir túristar geti fyllt hótelið, þar sem þar væri troðfullt þá þegar út úr dyrum. Jónas Jónasson, útvarpsmað- ur, sagði einhvern tíma frá því, þegar hann minntist útvarpsára sinna í Landsímahúsinu, að Hafsteinn Björnsson miðill, sem var lyftuvörður í húsinu, hefði aldrei getað hleypt nema einum eða tveimur mönnum í mesta lagi inn í lyftuna, þar sem hún væri full af fólki, sem aðeins hann sá að vísu, en var ekki sýnilegt venju- legu fólki. Það væri við því að búast, að þannig yrði þetta í hótelinu líka, ef heldur áfram sem horfir. Þess vegna sagði ég, að það væri eins gott, að enginn miðill kæmi inn á hótelið, því að þá sæi hann þar helmingi fleira fólk, en sýnilegt væri venjulegu fólki. Það er líka sorglegt til þess að hugsa, að kirkjugarðar og þeir, sem þar hvíla, fái ekki að liggja þar í friði um aldur og ævi vegna ákefðar pen- ingaafla við að nýta það land, sem hefur verið tekið frá og helgað sem hinsti hvílustaður kynslóðanna í þessu landi, og virðingin sé ekki meiri en það. Að Fossvogskirkjugarði und- anskildum eru aðeins tvær kirkjur hér á höfuðborgarvæðinu, sem eru með kirkjugarða upp við húsgaflinn hjá sér, Landakot og Garðakirkja. Víkurkirkja stóð fyrir miðju svæð- isins, sem tilheyrir Víkurgarði. Þó að hún hafi verið færð og heiti nú Dóm- kirkjan í Reykjavík þá er fjarlægðin frá henni og að Víkurgarði ekki mikið lengri en er frá Fossvogskapellu að fyrstu leiðunum í garðinum fyrir neð- an hana. Og þennan forna kirkju- garðsreit Reykvíkinga má ekki van- virða, svo sem nú er gert. Eða á maður von á því, að eftir margar aldir fari eins fyrir Hólavallagarði og Fossvogskirkjugarði, ef einhverjum fjárglæframanninum dytti í hug að jafna þá við jörðu, fjarlægja jarð- neskar leifar manns og annarra til þess að nýta þar byggingaland, allt í nafni þéttari byggðar og peninga- valdsins? „Money, money, money, makes men funny,“ söng Abba-flokkurinn hérna í gamla daga, og hafði þar rétt fyrir sér. Peningar skekkja hugsun heilbrigðs manns, og það er alls ekki Guði þóknanlegt að vera í nafni auð- legðar að raska grafarró gamalla borgarbúa til þess eins að búa til enn eitt hótelið og þrengja líka Kirkju- strætið frá því sem er, enda þolir þetta svæði engan veginn allt það byggingamagn, sem ætlað er að rísi þar, og er líka á skjön við götumynd- ina að auki. Hafi þeir því mestu skömm fyrir, sem standa að þessum fordæmalausa gerningi í Víkurgarði. Sorgleg vanvirðing Víkurgarðs Eftir Guðbjörgu Snót Jónsdóttur » Þessu fólki virðist greinilega ekkert heilagt, ekki einu sinni hinn forni kirkjugarður Reykvíkinga, Víkur- garður Guðbjörg Snót Jónsdóttir Höfundur er guðfræðingur og fræðimaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.