Morgunblaðið - 06.06.2016, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opið í smíðar og útskurð kl. 8.30-16. Botsía með Þóreyju
kl. 9.30-10.10. Stafaganga um nágrennið kl. 13-13.40. Handavinna
með leiðbeinanda kl. 12.30-16.30. Félagsvist með vinningum kl. 13.
Bútasaumur Ljósbrotið kl. 13-16. Myndlist með Elsu kl. 16.
Áskirkja Sumardagsferð Áskirkju verður farin þann sunnudaginn 12.
júní að Vík í Mýrdal. Messað í Víkurkirkju, hádegisverður á Icelandair
Hótel Vík. Farið um Vík og komið við á áhugaverðum stöðum. Verð
6500 kr. Nánari upplýsingar hjá kirkjuverði Áskirkju í síma 588-8870.
Vinsamlegast kynnið þátttöku fyrir 10. júní.
Boðinn Bingó kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Lesið og spjallað kl. 10.30.
Gjábakki Handavinna kl. 9, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna kl. 13,
félagsvist kl. 20. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum.
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Hádegis-
matur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi, spilað brids kl. 13, kaffi
kl. 14.30. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, ganga kl.10, Æðstaráðs-
fundur kl. 10.20, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síð-
degiskaffi kl. 14.30, púttið er byrjað. Nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Uppl. í síma 564-
1490 og á www.glod.is.
Langahlíð 3 Kl. 11 leikfimi, kl. 13 opin handverksstofa, kl. 13.30
botsía, kl. 14.30 kaffiveitingar. Verið velkomin!
Sléttuvegur 11-13 Kaffi á könnunni kl. 8.30-10.30, helgistund kl.
10.10, hádegisverður kl.11.30-12.30, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi
kl. 14.30-15.30, dagblöð, púsl og krossgátur til afþreyingar, munið
bókahornið okkar.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
✝ Björn Blöndalfæddist 14. maí
1946 í Keflavík.
Hann lést í faðmi
fjölskyldu sinnar á
líknardeild Land-
spítalans 22. maí
2016.
Foreldrar hans
voru Björn Auðunn
Haraldsson Blön-
dal, stud. med. í
Reykjavík 1945,
sonur Haraldar Blöndal Lár-
ussonar, ljósmyndara og versl-
unarmanns í Reykjavík, og Mar-
grétar Auðunsdóttur Blöndal,
húsfreyju, og Kristbjörg Gísla-
dóttir, dóttir Gísla Davíðssonar,
búfræðings og síðar sjómanns,
og Margrétar Torfadóttur, hús-
freyju.
Björn á einn albróður sem
heitir Gísli Blöndal. Sammæðra
systkin eru: Margrét Hreggviðs-
dóttir, Hermann Torfi Hregg-
viðsson, Elín Kristín Hreggviðs-
dóttir og Guðmundur Páll
Hreggviðsson. Samfeðra systkin
eru: Kristinn Björnsson, Snæ-
björn Heimir Blöndal, Margrét
Sigríður Björnsdóttir Blöndal,
Kristjana Elínborg Blöndal og
Kristín Erna Blöndal.
Björn lauk íþróttakenn-
araprófi frá Laugarvatni og síð-
ar fór hann í lögregluskólann og
eiginmaður: Birgir Össurarson,
börn þeirra: Hrönn Birgisdóttir,
f. 1989, Harpa Mukta Birg-
isdóttir, f. 1998, Hrund Nilima
Birgisdóttir, f. 2000, og Jóhann-
es Fei Birgisson, f. 2006. Núver-
andi eiginmaður Birnu er Gunn-
ar Björgvinsson.
Björn var kvæntur Ásdísi
Önnu Johnsen, f. 1949, dóttir
Gísla Friðriks Johnsen, ljós-
myndara frá Vestmannaeyjum,
og Friðbjargar Tryggvadóttur,
hjúkrunarfræðings. Þau skildu.
Börn þeirra eru: 1) Margrét
Blöndal, f. 1971. Fyrri sambýlis-
maður: Jón Þór Maríusson, dæt-
ur þeirra: Ásdís Björk Jóns-
dóttir, f. 1995, og Birta Dís
Jónsdóttir, f. 1997. Seinni sam-
býlismaður: Helgi Þór Ein-
arsson, börn þeirra: Agnes Eir
Helgadóttir Blöndal og Vil-
hjálmur Logi Helgason Blöndal,
f. 2005. 2) Kristín Blöndal, f.
1972. Giftist Vigni Elíssyni. Þau
skildu. Dóttir þeirra: Anna Lára
Vignisdóttir, f. 2004. 3) Frið-
björg Blöndal, f. 1973. Eig-
inmaður hennar er Flosi Helga-
son og börn þeirra: Flosi
Flosason, f. 2000, Sigfríður Sól
Flosadóttir, f. 2006, og María
Flosadóttir, f. 2010. 4) Gísli
Friðrik Blöndal, f. 1977. Eig-
inkona hans er Anna Björk
Theodórsdóttir og börn þeirra:
Sylvía Björt Blöndal, f. 2001, og
Sunna Björk Blöndal, f. 2006.
Útför var í kyrrþey 31. maí
2016.
vann sem lög-
regluþjónn í
Reykjavík um ára-
bil. Hann vann sem
íþróttafréttaritari
en lengst af var
hann hjá þjónustu-
deild slökkviliðs
Keflavíkurflug-
vallar. Vann þar
m.a. við snjómokst-
ur. Eftir að hann
fluttist á Suð-
urnesin vann hann við frétta-
mennsku og var m.a. fréttaritari
fyrir Morgunblaðið. Hann vann
einnig sem rútubílstjóri og var í
rúturekstri í nokkur ár.
Með fyrri barnsmóður sinni,
Snjólaugu Jónmundsdóttir, f.
1949, eignaðist Björn Þorstein
Snævarr Björnsson, f. 1969.
Fyrri sambýliskona hans heitir
Ester Anna Eiríksdóttir, sonur
þeirra er Jón Björn Þor-
steinsson, f. 1991. Seinni sam-
býliskona: Eydís Bjarnadóttir.
Þau slitu sambúð. Börn þeirra:
Auður Birna Þorsteinsdóttir
Blöndal, f. 1996, og Bjarni Snær
Þorsteinsson, f. 2008. Þorsteinn
er í sambúð með Vilborgu
Hreinsdóttur.
Með seinni barnsmóður sinni,
Önnu Baldvinu Jóhannesdóttur,
f. 1949 eignaðist Björn Birnu
Blöndal, f. 1969. Fyrrverandi
Þegar ég minnist pabba sé ég
hæfileikaríkan mann sem átti
mörg áhugamál. Hann gat gert
allt sem hann langaði til.
Hann var mikill íþróttamaður.
Ég minnist margra stunda á
frjálsíþróttaæfingu á Laugar-
dagsvelli. Hann var afreksmaður
á því sviði.
Hann byrjaði að æfa frjálsar
um þrítugt. Þrátt fyrir aldurinn
gaf hann yngri mönnum ekkert
eftir og skildi þá eftir í rykinu
þegar hann tók á sprett. Þannig
var hann pabbi ef hann tók sér
eitthvað fyrir hendur.
Hann varð einskonar meistari
í því sem hann hafði ástríðu fyrir.
Hann vann lengi sem íþrótta-
fréttaritari, blaðamaður og ljós-
myndari og í gegnum það starf
lærði hann allt um ljósmyndun og
skilur eftir sig safn ljósmynda og
myndavéla.
Pabbi var mikill dýravinur. Á
tímabili ræktaði hann gúbbí-fiska
af mikilli alúð. Ég átti páfagauka
sem unglingur en þegar pabbi
tók þá að sér byrjaði fjörið. Hann
gaf þeim einhvers konar vítamín
og þeir byrjuðu að fjölga sér í
gríð og erg. Áður en við vissum af
vorum við komin með risastórt
páfagaukabúr úti í bílskúr með
tilheyrandi páfagaukasöng.
Pabbi var einnig mikill hundavin-
ur en ein af hans helstu ástríðum
voru hestar. Hann var í hestun-
um í mörg ár og keppti til verð-
launa.
Pabbi var mikill safnari og eð-
altöffari. Hann elskaði bíla og
mótorhjól. Eins og alltaf þegar
hann fékk ástríðu fyrir einhverju
þá gerði hann það af fullum huga.
Hann lætur eftir sig safn kúreka-
stígvéla og leðurklæða sem hann
ætlaði að nota þegar hann færi
rúnt á mótorhjólinu sem hann var
nýbúinn að standsetja.
Pabba fannst menntun vera
lykillinn að lífinu og hvatti okkur
eindregið til að ganga mennta-
veginn. Ég man hve stoltur hann
var þegar elsta dóttir mín út-
skrifaðist sem stúdent núna um
jólin. Hann spurði mig iðulega
hvað væri að frétta af stærðfræð-
ingnum þar sem honum þótti
sniðugt þegar sonur minn gaf
sjálfum sér 10 eftir eitt stærð-
fræðiprófið.
Hann hafði alveg tröllatrú á
okkur börnunum sínum og
treysti okkur fyrir hinum ótrú-
legustu verkefnum. Ég steig
stundum inn fyrir hann sem
blaðaljósmyndari. Í því hlutverki
lenti ég í ýmsum ævintýrum. Ég
fékk tækifæri á að taka mynd af
Einari Vilhjálmssyni, spjótkast-
ara, og fékk Helga Björnsson,
leikara og söngvara, í fangið þeg-
ar ég var að taka myndir af
hljómsveitinni Síðan skein sól.
Hann fékk mig meira að segja til
að vera leiðsögumann þegar hann
var að keyra bandaríska hand-
boltalandslið karla.
Hann var gríðarlega sterkur
og kom það vel ljós þegar hann
reis nær upp frá dauðanum eftir
mikil veikindi og langa gjör-
gæslulegu árið 2009. Hann glímdi
á efri árum við fjölþætta og
flókna sjúkdóma en kvartaði
aldrei. Ég get rétt ímyndað mér
hve mikinn bagga hann þurfti að
bera. Það flæktist þó aldrei fyrir
honum að hitta fjölskyldu sína,
sem hann unni svo mikið. Þær
stundir gáfu honum mesta lífs-
fyllingu.
Í lokin þegar sjúkdómurinn
tók yfir þá sýndi pabbi styrk sinn
aftur og aftur. Hann tók veikind-
um sínum af æðruleysi og lét
dauðann ekki buga sig.
Ég sakna þín, pabbi, og mun
alltaf minnast þín með hlýju. Þín,
Margrét.
Elsku pabbi, það er ótrúlega
sárt og erfitt að þurfa kveðja þig.
Lífið fór ekki alltaf mjúkum
höndum um þig og þú hafðir
margar byrðar að bera sem urðu
æ fleiri síðustu ár. Dimmidalur er
ekki góður staður að vera á, það
vita þeir sem þangað hafa komið,
en sólin náði nú samt oft að lýsa
upp dalinn og þú áttir ágætis
spretti. Ég hef aldrei séð eins
sterkan mann eins og þig – sama
hvað þú varst veikur náðir þú
alltaf á einhvern undraverðan
hátt að rífa þig upp. Þú tókst þín-
um veikindum af miklu æðruleysi
og ég hugsa oft um æðruleysis-
bænina þína, hvernig þú tókst á
veikindum þínum og lífinu. Þessi
stóri, sterki, myndarlegi pabbi
sem þú varst, algjör töffari. Ég
hafði oft mjög miklar áhyggjur af
þér og vildi að þú hefðir búið bet-
ur, var alltaf að leita lausna í hug-
anum hvað ég gæti gert til að
hjálpa þér. Þrátt fyrir þín veik-
indi var lífsviljinn mikill. Því til
sönnunar þá eru ekki margir sem
reyna strjúka af líknardeildinni,
þú barðist á hnefanum til síðasta
dags þar til þú þurftir að játa þig
sigraðan eftir mjög löng og erfið
veikindi. Mér þótti afskaplega
vænt um þig og reyndi eftir
megni að aðstoða þig í þínum
veikindum og við tókum margan
slaginn saman, ég veit að þú varst
mér þakklátur og varst alltaf
tilbúinn að hjálpa mér ef ég
þurfti. Þér fannst mjög gaman að
hitta fjölskylduna þína og ekki
síst barnabörnin. Þú varst mér
mjög góður faðir og hvattir mig
og mín systkini til að mennta
okkur og eiga gott líf. Þú reyndist
mér og mínum börnum alltaf
mjög vel og varst alltaf tilbúinn
að hjálpa mér með það sem þú
gast, tölvuvandræði, lána mér
bílinn þinn, en þú varst rosalega
mikill bílakarl og þá var nú gott
að eiga hauk í horni þegar kom að
ráðleggingum um bílaviðgerðir
eða bílakaup. Þú varst hafsjór af
fróðleik og vissir ótrúlegustu
hluti og hafðir lesið þér mikið til
og fylgst mikið með fréttum utan
úr heimi og ýmiskonar fræðslu-
efni. Þú varst mjög duglegur og
tókst þér ýmislegt fyrir hendur
þar sem þú varst lærður íþrótta-
kennari, lögreglumaður, blaða-
maður, rútubílstjóri, stundaðir
saumaskap og margt annað, en
veikindi þín settu alltaf strik í
reikninginn. Þú hafðir gífurlegan
áhuga á íþróttum enda varst þú
afreksmaður í íþróttum á þínum
yngri árum, bæði í handbolta
með KR og frjálsum íþróttum
sem þú byrjaðir þó ekki að æfa
fyrr en um þrítugt en náðir samt
ótrúlega góðum árangri, settir
Íslandsmet í 4x100 m boðhlaupi.
Ég er viss um allur þessi líkams-
styrkur og þjálfun frá þínum
yngri árum hafi hjálpað þér mikið
í veikindum þínum. Þessi mikli
íþróttaáhugi smitaðist til okkar
systkina og svo áfram til barna-
barna þinna og hafðir þú mikinn
áhuga og fylgdist grannt með
hvernig þeim gekk í íþróttum og
skólanum. Þú getur verið stoltur
af hvað þeim hefur öllum gengið
vel. Elsku pabbi, ég á eftir að
sakna þín afskaplega sárt, hvíl í
friði og megi Guð geyma þig.
Þín dóttir,
Friðbjörg.
Fyrstu kynni mín af tengda-
föður mínum voru fyrir rúmlega
25 árum síðan, þegar ég var ung
stúlka í Víði í Garði að keppa í fót-
bolta á móti Fjölni í Grafarvog-
inum, en Bjössi var bílstjórinn á
rútunni sem keyrði okkur í bæ-
inn. Eftir leikinn lét hann eftir tíu
suðandi stelpum að stoppa í
sjoppunni svo þær gætu keypt
sér hressingu, en þegar að við
komum svo til Keflavíkur örugg-
lega tveimur tímum á eftir áætl-
un var veðrið orðið svo brjálað
milli Garðs og Keflavíkur að
Bjössi lagði ekki í það að keyra
okkur á rútunni, heldur fór með
okkur heim til sín og fjölskyldan
var svo fengin í að skutla okkur á
einkabílunum þegar að veðrið var
aðeins gengið niður.
Ég var kynnt fyrir tengdaföð-
ur mínum 1999 og okkur leist
strax vel hvoru á annað, á þessum
tíma var Bjössi fréttaritari Morg-
unblaðsins í Keflavík og dró unga
parið oftar en ekki með sér til að-
stoðar á körfuboltaleiki í Kefla-
vík.
Tengdafaðir minn barðist við
veikindi og sjúkdóma allan þann
tíma sem ég þekkti hann, þrátt
fyrir það hafði hann alltaf frá ein-
hverju áhugaverður að segja því
hann var lítið að velta sér upp úr
veikindum sínum, það var svo
margt annað mikið áhugaverð-
ara. Bjössi var mjög góður maður
og gáfaður og það var gaman að
tala við hann. Hann var ákaflega
stoltur af börnunum sínum og
barnabörnum og hafði sérstakan
áhuga á sögum af barnabörnun-
um og afrekum þeirra og stund-
irnar með fjölskyldunni voru
honum gulls ígildi.
Tengdafaðir minn heimsótti
okkur fjölskylduna tvisvar sinn-
um til Danmerkur. Mér þykir
ákaflega vænt um þessar heim-
sóknir, því að stundirnar voru
góðar og Bjössi marg endurtók
hvað honum liði vel hjá okkur.
Að lokum langar mig til að
þakka fyrir það að hafa fengið að
kynnast þér, kostum þínum og
göllum. Það kenndi mér margt að
fá að umgangast þig. Stelpurnar
mínar kveðja afa sinn með sárum
söknuði.
Ég kveð þig með sorg í hjarta
og söknuði, það gerir sonur þinn
líka.
Anna Björk.
Björn Blöndal
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað
útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu.
Minningargreinar