Morgunblaðið - 06.06.2016, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Ég ætla aðnjóta þess aðfara út að
borða með konunni
og börnum í kvöld og
hlakka mikið til,“
segir Jakob Falur
Garðarsson sem er
fimmtugur í dag.
„Svo verður blásið í
samkomu næsta
laugardag fyrir vini
og vandamenn og þá
verður væntanlega
sungið og trallað að
vestfirskum sið fram
á rauða nótt.
Ég er vestfirskur
gleðipinni og söng-
fugl og finnst alveg
óskaplega gaman að
syngja. Ég er í
skemmtilegum kór
sem heitir Söng-
fjelagið sem gamli
pönkarinn og vinur
minn hann Hilmar
Örn Agnarsson stýr-
ir. Fyrir stuttu sett-
um við upp heilmikla söngveislu til heiðurs Tyrkja-Guddu með frá-
bæru listafólki eins og Megasi, Páli í Húsafelli, Ragnheiði Gröndal og
fleirum. Svo er stutt í hljómsveitabröltið. Við nokkur sem unnum í
sendiráðinu í Brussel stofnuðum hljómsveit sem gerði garðinn frægan
og nú síðast tróð ég svo upp með hljómsveitinni Atvinnumönnum, sem
er nýstofnað húsband Húss atvinnulífsins.“ Þar er Jakob
framkvæmdastjóri Frumtaka sem eru hagsmunasamtök alþjóðlegra
frumlyfjafyrirtækja sem eru með markaðsstarfsemi hér á Íslandi.
„Starfið felst helst í að eiga samskipti við okkar mikilvægasta, og
að vissu leyti eina viðskiptavin hér á landi sem er hið opinbera. Þetta
er sérstakt umhverfi fyrir lyfjafyrirtækin því viðskiptavinurinn, ef
svo má segja, setur ekki bara lögin og reglurnar heldur ákveður líka
verðið. Annar stór hluti starfsins snýr að sameiginlegum siðareglum
þegar kemur að samskiptum lækna og fyrirtækjanna.“
Eiginkona Jakobs er Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri og börn þeirra
eru Dagur 18 ára og Júlía 16 ára.
Vestfirskur söng-
fugl og gleðipinni
Jakob Falur Garðarsson er fimmtugur í dag
Ís-selfie Jakob á afmælisdegi sínum fyrir
tveimur árum í vinnuferð í Lyon í Frakklandi.
B
ubbi fæddist í Reykja-
vík 6. júní 1956 og ólst
þar upp á Barónsstígn-
um fyrstu fimm árin
og síðan í Gnoðarvogi.
Auk þess var hann öll sumur í
fjallakofa föður sína að Meðalfells-
vatni í Kjós. Hann var í Vogaskóla
og í Suderlandskolen í Árósum.
Bubbi hóf ungur almenn verka-
mannastörf hjá Vatnsveitu Reykja-
víkur og var síðan farandverkamað-
ur í fiskvinnslu í Bolungarvík,
Vestmannaeyjum, á Austfjörðum
og víðar.
Bubbi lærði á gítar í Tónskóla
Sigursveins og hjá Gunnari H.
Jónssyni og lærði söng hjá Guð-
rúnu Á. Símonardóttur óp-
erusöngkonu.
Bubbi kom fyrst fram opin-
berlega hjá Jazzvakningu í
Glæsibæ 1979, stofnaði hljómsveit-
ina Utangarðsmenn 1980 og söng
síðan með Egó 1981-84 auk þess
sem hann söng með hljómsveitinni
Das Kapital, Stríði og friði og var í
samstarfi með Rúnari Júlíussyni
um tíma. Hann hefur komið fram á
aragrúa tónleika og annarra tónlist-
arviðburða hér á landi og erlendis,
hefur séð um dagsskrárgerð í út-
varpi, komið fram í ótal sjónvarps-
þáttum og fór tónleikaferð um öll
Norðurlöndin.
Bubbi hefur starfað með fjölda
tónlistarmanna en þeir helstu hafa
verið Jakob Smári Magnússon,
Guðmundur Pétursson gítarleikari,
Eyþór Gunnarsson hljómborðsleik-
ari og sænski upptökusnillingurinn
Christian Falk.
Bubba hefur selt fleiri hljóm-
plötur hér innanlands en nokkur
annar tónlistarmaður. Fyrsta plata
hans, Ísbjarnarblús, kom út 1980.
Þá komu út með honum og Utan-
garðsmönnum plöturnar Ha ha ha
(Rækjureggae) 1980; Geislavirkir;
1980; 45rpm, 1981; Í upphafi skyldi
endirinn skoða, 1981; Utangarðs-
menn, 1994, og Fuglinn er floginn,
2000. Með Bubba og Egó komu út
plöturnar Breyttir tímar, 1982; Í
mynd, 1982; Egó, 1984; Frá upphafi
til enda, 2001, og Kannski varð
bylting vorið 2009. Með Das Kapi-
tal kom út platan Lili Marlene,
1984. Í samstarfi við Rúnar Júlíus-
son komu út plöturnar GCD 1991;
Svefnvana, 1993; Teika, 1995, og
Mýrdalssandur, 2002.
Sólóplötur Bubba eru Plágan,
1981; Fingraför, 1983; Línudans,
1983; Ný spor, 1984; Kona, 1985;
Blús fyrir Rikka, 1986; Frelsi til
sölu, 1986; Dögun, 1987; Moon in
the gutter, 1988; 56, 1988; Serbian
flower, 1988; Hver er næstur, 1989;
Nóttin langa, 1989; Sögur af landi,
1990; Ég er, 1991;Von, 1992; Lífið
er ljúft, 1993; 3 heimar, 1994; Í
skugga Morthens, 1995; Allar áttir,
1996; Hvíta hliðin á svörtu, 1996;
Trúir þú á engla, 1997; Arfur, 1998;
Sögur 1980-1990, 1999; Bellman,
2000; Sögur 1990-2000, 2000; Nýbú-
inn, 2001; Sól að morgni, 2002; 1000
kossa nótt, 2003; Nei nei nei –
Tjáningarfrelsi, 2004; Tvíburinn,
2004; Ást, 2005; Í sex skrefa fjar-
Bubbi Morthens tónlistarmaður – 60 ára
Með eiginkonu og börnum Bubbi og Hrafnhildur með Herði, Grétu, Ísabellu Ósk, Aþenu Lind og Dögun Parísi.
Einn dagur í einu
Embla Katrín Oddsteinsdóttir, Sara Rún Hilmarsdóttir og Birta María
Aðalsteinsdóttir héldu tombólu fyrir utan Krónuna í Hafnarfirði. Þær höfðu
9.470 krónur upp úr krafsinu og gáfu það til mannúðarmála Rauða krossins.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
L’Occitane en Provence - Ísland
STÖÐVAÐUTÍMANN
HÚÐVIRÐIST
UNGLEGRI HJÁ
85%(1)
K V ENNA
5 EINKALEYFIÍ UMSÓKN(3)
Immortelle, blómið sem aldrei fölnar er
upprunnið á Korsíku og er dýrmætasta
uppgötvun L’OCCITANE. Endurnýjandi
eiginleikum blómsins er blandað saman
við einstaka blöndu af sjö virkum
innihaldsefnumaf náttúrulegumuppruna(2).
Divine formúlan hjálpar til við að lagfæra
ummerki öldrunar,gerir húðina sléttari og
stinnari og endurnýjar æskuljómann.
L’OCCITANE,sönn saga.
(1
)Á
næ
gj
a
pr
óf
uð
hj
á
95
ko
nu
m
í6
m
án
uð
i.
(2
)H
or
bl
að
ka
,m
yr
ta
og
hu
na
ng
fr
á
K
or
sí
ku
,f
ag
ur
fíf
ill
,
hý
al
úr
on
sý
ra
,k
vö
ld
vo
rr
ós
ar
ol
ía
og
ca
m
el
in
a
ol
ía
.(
3)
Ei
nk
al
ey
fi
íu
m
só
kn
ar
fe
rl
ií
Fr
ak
kl
an
di
.