Morgunblaðið - 06.06.2016, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur reynst torvelt að finna
svörin við öllum þeim spurningum sem á
manni hvíla. Notið tækifærið og talið við aðra
um sameiginlegar eignir og leiðir til úrbóta.
20. apríl - 20. maí
Naut Sannir félagar styðja við þroska þinn
svo lengi sem þeir skilja hann. Ef þér líkar
ekki hvernig tilteknar aðstæður eru að þróast
skaltu bregðast hratt við.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu á verði gagnvart viðsjálu fólki
og taktu ekki þátt í neinum skrípaleikjum að-
eins til að þóknast því.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Valdatogstreita milli fjölskyldu-
meðlima gæti gert vart við sig í dag. En þér
er alveg óhætt að hafa meiri trú á samstarfs-
mönnum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur unnið vel að undanförnu og
getur því um frjálst höfuð strokið. Kannski
verða þeir á vegi þínum en einnig kemur til
greina að þú tapir fé.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sum verkefni eru eins og langur vegur
upp í móti. Ekki láta blekkingu aftra þér frá
því að ná árangri.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér gæti fundist þyngd heimsins vera að
kremja þig ef þú heldur að þú sért einn að
bera hann uppi. Nýttu hana til hollra hluta,
sem bæði gefa þér ánægju og auka á hreysti
þína.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Yfirmenn eru ekki alltaf þeir hæ-
fielikaríkustu eða réttlátustu. Láttu það eftir
þér að njóta en vertu samt meðvitaður um að
lánið getur verið fallvalt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Talaðu við álíka skapandi fólk um
hugmyndir þínar – sérstaklega þær sem
tengjast sviðum þar sem þú þekkir lítt til.
Miskunnin blessar gefanda og þiggjanda.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gleymdu ekki að hlusta á sjónar-
mið annarra í umræðum í dag. Innsæi þitt er
óvenjumikið þessa dagana. Nýttu þennan
aðdáunarverða hæfileika þinn í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn markast af kraftmiklum
og skapandi törnum. Stattu svo við ákvörðun
þína og hrintu henni umsvifalaust í fram-
kvæmd. Treystu öðrum til þess að leysa þig
af.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að þú ert ekki einn í heiminum
og það á ekki síst við um vinnustað þinn. En
gefðu þér góðan tíma því mikið ríður á að
framsetning þín sé ljós.
Ég mætti karlinum á Laugaveg-inum á röltinu. Hann sagðist
hafa hitt Guðna Ágústsson, sem
hefði verið uppveðraður yfir góð-
um árangri íþróttakvenna okkar
Anítu Hinriksdóttur og Hrafnhild-
ar Lúthersdóttur:
Guðni sagði áðan að
ennþá féll eitt metið;
og skýrum rökum rakti það:
rjóminn og lambaketið.
Eins og áður hefur komið fram í
Vísnahorni var Helgi Einarsson við
sauðburð í Vopnafirði og „varð
ýmislegt til á garðabandinu, t.d.
þetta“:
Sólin hátt á himni skín
hlær við Vopnfirðingum
og Stóra–Strýta lömbin sín
stjanar nú í kringum.
Lífið leikur ekki svona við alla:
Lífið suma leikur grátt,
leiða og doða skapar,
en sá sem hefur ekkert átt
engu getur tapað.
Að lokum ein Bessalimra.
Menn bank’ upp’ á Bessastöðum
og biðja um gisting’ í röðum.
Þessi ljúflingafjöld,
sem langar í völd,
líkist helst síldarvöðum!
Haustkosningar eða ekki haust-
kosningar – Sigurlín Her-
mannsdóttir skrifar í Leirinn:
„Framsóknarmenn virðast ekki
áfjáðir í kosningar. Steingrímur J.
lýsti þeim á myndrænan hátt:
Við kosningar þeir kikna og glúpna,
þeir kunna að tapa stólunum.
Framsókn eins og flokkur rjúpna
sem fresta vildi jólunum.“
„Smá hugleiðing inn í daginn –
góð staka er gulli betri“: skrifar
Ingólfur Ómar Leirverjum:
Auðgar gleði anda míns
að eiga mátt í ljóði.
Hlúðu að gulli hjarta þíns
heillavinur góði.
Bind við andann trú og traust
tala máli fínu.
Ef ég heyri hjartans raust
hlýnar geði mínu.
Jón Arnljótsson orti:
Hann sagður er syndga með kindum
og síst væri frábitinn hindum,
hefur gert það með geitum,
í grasmiklum sveitum,
hafurinn Harðger frá Tindum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á garðabandinu, rjóminn
og lambaketið
Í klípu
„ÞETTA ER BARA FORMSATRIÐI. EF ÞIÐ
BORÐIÐ Á HLAUPUM GÆTI ÞETTA VERIÐ
YKKAR SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, SETTU NÚ ÞUNGANN Á VINSTRI
FÓTINN Í GEGNUMSVEIFLUNNI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita hvað syngur.
ÉG ER ALLTAF AÐ LEITA NÝRRA LEIÐA
TIL ÞESS AÐ BÆTA HEILANN MINN
HMMM… HEFURÐU ÍHUGAÐ AÐRA
UMFERÐ AF MÁLNINGU?
MUNDU…
„STÆRRA ER EKKI
ALLTAF BETRA“
ÞÚ GETUR
SAGT ÞAÐ
AFTUR!
Það var í eftirmiðdaginn sem Vík-verji lagði upp frá Sauðárkróki
og hélt suður á bóginn. Í Ríkisútvarp-
inu var forsetaframbjóðandi sem
flutti mál sitt af skörungsskap og
smaug eins og mús undan ketti,
spyrlinum Arnari Páli Haukssyni.
Veðrið var prýðilegt; á vinstri hönd
voru Blönduhlíðarfjöllin og Mælifells-
hnjúkur í hásuðri. Myndin var kunn-
ugleg og raunar leiðin öll, en ferða-
lagið er þó sígild skemmtun.
Þarna voru sveitabæirnir; Haf-
steinsstaðir, Reynisstaður, Páfa-
staðir og Glaumbær svo nokkrir séu
tilteknir. Og hér var farin lengri leið-
in suður, það er um Vatnsskarðið en
ekki Þverárfjall.
x x x
Á þessum slóðum er vani Víkverjaað stoppa í sjoppunni í Varma-
hlíð. Maginn kallaði á mat og nið-
urstaðan var lambakótelettur í raspi
og öllu gromsinu. Þetta var veisla við
veginn. Svo var líka ósköp notalegt að
sitja við gluggann á þessum stað og
fylgjast með þéttri umferðinni;
trukkum í löngum lestum. Oft eru
þessir bílar í fiskflutningum eða að
koma með afurðir frá matvæla-
fyrirtækjunum úti á landi – þar sem
helstu gjaldeyrisuppsprettur þjóðar-
innar eru. Og í Varmahlíð er
skemmtileg blanda af fólki; bæði túr-
istar, sveitafólk og oft Akureyringar
á landshornaflakki.
x x x
Á vorferðalagi vakti athygli Vík-verja hve mikið er af álft í túnum.
Bændur lýsa þessu sem skaðdýri og
finnst ansi hart að mega ekki vinna á
því. Eiga þeir því mikið undir því að
reglur um veiði verði rýmkaðar. Álft-
in er vargur rétt eins og rebbi sem
skaust milli þúfna í Miðfirði.
x x x
Á Holtavörðuheiði var samkvæmtseginni sögu ekið inn í skúraskít
og þokuslæðing við Grænumýr-
artungu. Þegar komið var yfir Blá-
hæð og niður í Biskupsbrekkurnar,
sem Víkverji hefur vanist að svo séu
kallaðar, var hin hvítgráa mugga
horfin. Landið brosti við ferðalangi,
sem nánast horfði á grasið gróa í hlý-
indunum. Þannig er vorið á Íslandi.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Þreytumst ekki að gera það sem gott er
því að á sínum tíma munum við upp-
skera ef við gefumst ekki upp.
(Gal. 6:9)