Morgunblaðið - 06.06.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.06.2016, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016 Heimildarmyndin Jökull-inn logar er mynd fyrirþá hlutlausu. Fótbolta-nördar, eins og ég sjálf- ur, verða ekkert endilega hrifnir. Ég var hrifinn af sumu en annað fannst mér ekki alveg eiga heima í mynd um það afrek Íslands að kom- ast á Evrópumótið í knattspyrnu. Sölvi Tryggvason fékk einstakan aðgang að landsliðinu á einstökum tíma og tilkynnti í ræðu sinni fyrir frumsýningu myndarinnar að hann og samstarfsmaður hans, Sævar Guðmundsson leikstjóri, hefðu haft um 400 klukkutíma af efni. Svo hefði þurft að skera niður og það duglega til að koma myndinni í 90 mínútna kvikmynd. Þess vegna kom það mér svolítið spánskt fyrir sjónir hve mik- ið var notað frá RÚV og Stöð 2 sport af leikjum liðsins. Þá er hin víðfræga N1-auglýsing, þar sem notað er gamalt efni frá landsliðinu þegar þeir eru guttar, öll í mynd- inni. Leikina var maður búinn að sjá og upplifa oft og mörgum sinnum, ekki að það sé eitthvað slæmt að upplifa góðar stundir og í heimild- armynd er nauðsynlegt að sýna það. En ekki svona mikið. Það sem stóð uppúr var þessi ein- staki aðgangur. Hótelsögurnar, leik- irnir sem strákarnir okkar eru í þegar liðið er ekki að æfa og per- sónulegar sögur frá Jóni Daða, Eiði Smára, Gylfa Sig. og Ragnari Sig- urðssyni slógu í gegn. Eiður Smári átti einnig hrekk myndarinnar þeg- ar hann barði fast í rúturúðuna og lét 25 grjóthörðum knattspyrnu- mönnum bregða. Það var fyndið. Snyrtitöskusaga Gylfa var frábær og þegar Eiður kom í mynd og sagði: „Heyrðu, þetta lið er að vinna alla leiki, ég verð að fara að drulla mér í lið.“ Þá hló ég og salurinn með. Svona mætti áfram telja en ekki mikið lengur sem er miður. Það vantaði meira af slíkum atrið- um. Þess í stað var eytt dýrmætum tíma í að sýna náttúru landsins, að Eldey og Surtsey hefðu einu sinni gosið og að Heimir Hallgrímsson hefði alist upp í Vestmannaeyjum. Þá var eldgosunum í Eyjafjallajökli og Holuhrauni blandað saman á víxl. Slíkt er auðvitað bannað. En allt er þetta gert til að selja myndina er- lendis. Eðlilega vilja framleiðendur fá eitthvað til baka af fjárfestingu sinni en ég er á því að það hefði ver- ið nóg að sýna landsliðið og sögur landsliðsmanna til að selja myndina. Myndin hefst á einhverju lengsta byrjunaratriði sem ég hef séð í kvik- mynd. Upprifjun á því hvað lands- liðið var stutt frá því að komast á HM! Sú saga var alltof löng og á lít- ið heima í mynd um hvernig á að komast á EM. En það var geggjað þegar Aron Einar landsliðsfyrirliði sagði: „Það voru allir daufir inni í klefa eftir útileikinn við Króatíu. En þá stóð ég upp og sagði: Fuck it. Við förum þá á EM.“ Eins og ég sé þetta, þá byrjaði myndin þarna. En þá voru einhverjar 12 mínútur liðn- ar frá því að myndin byrjaði og flautað var til leiks. Fyrri hálfleikur myndarinnar náði sér lítið á flug. Þá var svolítið verið að sýna hvað náttúra landsins væri falleg og flott. Það er alltaf gaman að sjá náttúruna en í heim- ildarmynd um fótbolta var ég ekki alveg í stuði fyrir það. Þá fór í taugarnar á mér að það var verið að notast við platlýsingar frá leikjunum. Lifandi lýsing er allt- af betri. Alltaf. Sölvi fékk þá Gumma Ben og Einar Örn til að leika lýsinguna og þó að þeir félagar séu okkar allra bestu lýsarar þá eru þeir ekki góðir leikarar. Þá var Bogi Ágústsson til að dramalesa fréttir um Eyjafjalla- jökul og Holuhraun sem heillaði mig lítið. Það voru fjölmörg atriði mjög skemmtileg og ég fékk gæsahúð oft og mörgum sinnum. Hollensku leik- irnir voru einstaklega vel gerðir en að sama skapi var of mikið verið að notast við myndir frá RÚV og Stöð 2 sport. Fjölmargir sem hafa engan áhuga á fótbolta dásömuðu myndina í lokin og ég get að vissu leyti tekið undir það. En mig langaði í fleiri sögur bak við tjöldin, meiri Sölva, meiri fréttir, minna af úrslitum og nátt- úru. Náttúran og fótbolti í eina sæng AFP Innsýn „Sem heimildarmynd um það afrek Íslands að komast á Evrópukeppnina er þetta mögnuð innsýn í líf landsliðsmanna. Hvernig hótellífið er á milli leikja og hvernig þessi blessaði fótboltabransi er,“ segir m.a. um Jökullinn logar. Hér sést landsliðið að loknum sigurleik gegn Hollandi 3. sept. í fyrra. Háskólabíó, Borgarbíó og Smárabíó Jökullinn logar bbbnn Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Hand- ritshöfundar: Sölvi Tryggvason og Sæv- ar Guðmundsson. Heimildarmynd. Ís- land, 2016. 95 mín. BENEDIKT BÓAS KVIKMYNDIR Tríó píanóleikarans Sunnu Gunn- laugsdóttur leikur á djasskvöldi Kex hostels annað kvöld kl. 20.30 en auk Sunnu skipa það Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Tríóið mun flytja djass- standarda og frumsamda tónlist og verða þetta síðustu tónleikar tríós- ins á Íslandi áður en það heldur til Ítalíu til tónleikahalds. Aðgangur er ókeypis. Kex hostel er að Skúlagötu 28. Tríóið gaf út sína þriðju plötu í fyrra, Cielito lindo, sem hlaut prýði- legar viðtökur og m.a. 4 stjörnur af fimm mögulegum frá djassrýni Morgunblaðsins. Tríó Sunnu leikur á Kex Tríóið Sunna, Þorgrímur og Scott. Norska sópransöngkonan Sissel Kyrkjebø heldur aukatónleika í Eld- borg 11. desember kl. 18. Uppselt varð á fyrri tónleika söngkonunnar skömmu eftir að forsala hófst 2. júní og var því ákveðið að blása til auka- tónleika sem haldnir verða kl. 18 í Eldborgarsal Hörpu. Miðasala á aukatónleikana hefst á fimmtudag- inn, 9. júní, kl. 10 á Harpa.is, Tix.is og í síma 5285050. Póstlistaforsala Senu Live fer fram degi fyrr og hefst kl. 10. Þeir sem skráðir eru á viðburðapóstlista Senu Live fá þá sendan tölvupóst sem gerir þeim kleift að tryggja sér miða samstundis. Allir miðar á auka- tónleikana verða í boði í póstlista- forsölunni. Tónleikarnir verða jólatónleikar og tónlistarmenn á heimsmælikvarða leika með söngkonunni. Þeirra á meðal eru Wayne Hernandez sem unnið hefur með Tinu Turner og Madonnu m.a., Sam White sem hefur starfað með Duran Duran og Annie Lennox og Phebe Edwards sem hef- ur leikið með Rod Stewart, Adele og Donnu Summer. Flutt verða sálar- skotin dægurlög og klassísk jólalög. Morgunblaðið/Árni Torfason Jólatónleikar Kyrkjebø hefur í þrígang sungið á tónleikum hér á landi. Kyrkjebø heldur aukatónleika GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is Á R N A S Y N IR Kíkið á verðin eftir tollalækkun Æfingapeysa, hálfrennd 6.990 kr. íþróttafatnaður stærðir 36-46 THE NICE GUYS 10:30 FORSÝNING WARCRAFT 5:30, 8, 10:20 TMNT 2 5:30 TMNT 2 3D 8 MONEY MONSTER 10:10 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 5:30 BAD NEIGHBORS 2 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 22:30 FORSÝNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.