Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.06.2003, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 19.06.2003, Blaðsíða 4
Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í suniar! stittar FRÉTTIR Byggtvið lög- reglustöðina Miklar framkvæmdir standa yfir við Lög- regiustöðina í Keflavík, en verið er að byg- gja nýja álmu við stöðina. Að sögn Karls Hermanns- sonar yfirlögregluþjóns verður áiman 162 fermetrar að stærð og í nýju álmunni verður kaffistofa, salerni og bílageymsla fyrir lögreglu- bifreiðar. Karl segir að til- koma nýju álmunar muni breyta starfsaðstöðu Lög- regiunnar í Keflavík til muna. íslenskir Aðalverktakar vinna að verkefninu og er gert ráð fyrir að álman verði tilbúin þann 1. september. Fyrsti áfangi í umbyltingu Hafnargötunnar í Keflavík: Gjörbreytt Hafnargata opnuð - Fyrsta áfanga lokiðfyrirLjósanótt Framkvæmdir við endur- gerð Hafnargötunnar ganga vel, en búið er að heliuleggja kaflann milli Aðal- götu og Tjarnargötu. Afram er unnið að endurgerð götunnar og á Ljósanótt í sumar verður fyrsta áfanga endurgerða göt- unnar fagnað, en gert er ráð fyrir að endurgerð Hafnargöt- unnar verði lokið á Ljósanótt árið 2004. Jón Olsen framkvæmdastjóri Nesprýði segir að verkið gangi mjög vel. .Áfanginn að Grófinni verður kláraður fyrir Ljósanótt og höfurn þegar lokið við jarð- vegsskipti og getum farið í yfir- borðsfrágang. Við erum komnir lengra með verkið vegna seink- ana á fyrsta áfanga, en vegna seinkana gátum hafíst handa við annan áfanga sem er frá gatna- mótum Hathargötu og Aðalgötu út að Gróf,“ sagði Jón í samtali við Víkuríréttir. ■m ? \ i \ I 'r/f Kvennahlaup ÍSÍ 2003 Laugardagirm 21. júní Ganga eða skokk, þú ræður hraðanum. Þáttökugjald: 800 kr. Hlaupið er á eftirtöldum stöðum á svæðinu: Keflavík: Holtaskóli kl. 11. Forskráning í Samkaupum 19.-20. júní kl. 16:30-19:00 Fríttfyrir þátttakendur í sund eftir hlaup. Grindavík: Sundmiðstöð kl. 11. Forsala í sundmiðstöð frá 10. júní á opnunartíma. Sandgerði: íþróttamiðstöð kl. 11. Forsaia í íþróttamiðstöð. Frítt fyrir þátttakendur í sund eftir hlaup Vogar: íþróttamiðstöð kl. 11. Forsala í íþróttamiðstöð. Frítt fyrir þátttakendur í sund eftir hlaup. Garður: íþróttamiðstöð kl. 10:30. Fríttfyrir þátttakendur í sund eftir hlaup. Forsala í íþróttamiðstöð 16.-20. júní. Mætum allar! ISj; n , Munið heimasíðu hlaupsins á sjova.is, í-i.-j J|| iSflÍÍL myndir, gestabók, Fræðsla o.fl. IS jg. BEINVERND ISÍk! ÓLYMPlUFJÖLSKYLDAN Hre'w' QQP ---------------------- AÐALSTYRKTARAÐILI KVENNAHLAUPS ÍS( ---------------- AUSTURBAKKI 4^ (SLANDSBANKI ÍCELANDAIR / > Verulegfækkun atvinnulausra á Suðurnesjum Verulega hefur fækkað á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum en alls eru 361 einstaklingur atvinnuiaus á Suðurnesjum í dag samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun.Alls eru 167 kariar atvinnuiausir og 194 konur. Um miðjan febrúar á þessu ári voru 472 einstaklingar atvinnuiausir á Suðurnesjum og hefur því fækkað á atvinnuleysisskrá um rúmlega eitt hund- rað manns frá í febrúar. Hjördís á Mynd mánaðarins ynd mánaðarins í Kjarna, Hafnargötu 57, er eftir Hjördísi Árnadóttur. Hjördís Árnadóttir er fædd í Reykjavík 28. desem- ber 1952. Á fyrsta ald- ursári flutti hún til Reykjanesbæjar og hef- ur verið búsett þar síðan. Hjör- dís hefur lengi haft áhuga á listum og var m.a. í stjórn Leikfélags Keflavíkur í mörg ár en síðustu 7 árin hefur hún nánast alveg helgað myndlist- inni frístundatíma sinn. Hjördís starfaði með Baðstof- unni, áhugahópi um myndlist, í mörg ár og var formaður hennar í tvö ár. Hjördís er nú formaður Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ og hefur gegnt for- mennsku þar ffá 2001. Hjördís hefur sótt fjölda nám- skeiða og m.a. notið handleiðslu eftirtalinna myndlistarmanna: Ei- riks Smith, Jóns Gunnarssonar, Margrétar Jónsdóttur, Jóns Ágústs Pálmasonar, Reynis Katrinarsonar, Sossu, Kristins Pálmasonar, Eiríks Árna Sig- tryggssonar og Ástu Amadóttur. Hjördís hefur tekið þátt í fjölda samsýninga með Baðstofunni og félögum úr Félagi myndlistar- manna í Reykjanesbæ. Einnig hafa hún og sonur hennar Rúnar Jóhannesson haldið samsýningu í Frumleikhúsinu í Keflavík. Hjördís sýnir þessa dagana verk sín í Hitaveitu Suðumesja, Brekkustíg 36 í Reykjanesbæ og er sýningin opin virka daga ífá kl. 10.00-16.00. 4 VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.