Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.06.2003, Síða 8

Víkurfréttir - 19.06.2003, Síða 8
Eftir að þjóðfáninn hafði verið dreginn að húni í skrúð- garðinum í Keflavík á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, söng Karlakór Keflavíkur við undirspil Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þar með lauk skipulagðri dagskrá í skrúðgarðinum og hátíðarhöld voru flutt í Reykjaneshöllina. Þegar í Reykjaneshöllina var komið flutti Gísli Jóhannsson ávarp dagsins eftir setningu Gunnars Oddssonar og Lára Ingi- mundardóttir kom fram í gervi íjallkonunnar. Þá tóku við skemmtiatriði fram á kvöld en kvölddagskránni lauk með því að hin vinsæla hljómsveit, I svörtum fötum, spilaði tyrir gesti. Johann Kristjansson dró fánann að húni í Reykjanesbæ Það kom í hlut Jóhanns R. Kristjánssonar að draga þjóðhátíðarfán- ann í Reykjanesbæ að húni á 17. júní. Eftir að myndarleg skrúðganga hafði komið fylktu liði með þennan stærsta fána á íslandi í skrúðgarðinn í Kefla- vík kom það í hlut Jóhanns að draga fánann að húni. Jóhann býr við fötlun eftir alvarlegt umferðarslys fyrir fáum árum en fatlaðir einstaklingar áttu stóran þátt í þjóðhátíðardegin- um í Reykjanesbæ þetta árið. Ljósmyndir: Hilmar Bragi og Páll Ketilsson silttar FRÉTTIR Heimir ályktar umVarnarliðsmál Heimir, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ hefur samþykkt ályktun þar sem skorað á er ríkisstjórn Davíðs Oddssonar um að beita sér af fullum þunga fyrir pólitískri lausn í komandi viðræðum um veru Varnarliðsins hér á landi. í ályktun Heimis segir: „Sé ákvörðun um brottflutn- ing Varnarliðsins tekin með skömmum fyrirvara mun slíkt valda upplausn í at- vinnumálum á Suðurnesjum sem erfitt er að bregðast við. Brotttlutningur flughersins gæti einnig grafið undan stuðningi almennings á ís- landi við utanríkisstefnu Bandaríkjamanna. Þá er ljóst að varnir landsins skerðast verulega og pólitísk samskipti ríkjanna geta borið skaða af. Staða heimsmálanna breytist ört og óljóst er hvert mikilvægi Islands verður i framtíðinni. Vera Vamarliðsins með óbreyttum hætti er því mikilvæg fyrir sameiginlega hagsmuni ríkjanna tveggja.” Aðilar tengdir ferðaþjónustu sátu kynningarfundinn. Frá vinstri: Kjartan Kristjánsson frá Saltfisksetrinu í Grindavík, Stefán Barkarsson frá Reykjanesbæ, Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi Reykjanesbæjar, Björn Haraldsson úr Grindavík, Reynir Sveinsson forstöðumaður Fræðasetursins í Sandgerði, Kristján Pálsson formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja, Jón Gunnarsson alþingismaður og stjórnarmaður í samtökunum, Helga Ingunnardóttir frá Ferðaþjónustu Suðurnesja, Ólafur Guð- bergsson frá SBK og Stefán Guðmundsson frá Reisbílum. VF-mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson. FJðlbreytt ferðasumar á Suðurnesjum Ferðamálasamtök Suður- nesja og aðilar tengdir ferðaþjónustu á svæðinu héldu blaðamannafund sl. mánudag í Saltfisksetrinu í Grindavík þar sem kynntar voru nýjungar í ferðamálum á Suðurnesjum. Kristján Pálsson formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja kynnti helstu nýj- ungar og meðal annars fyrir- hugað naust víkingaskipsins ís- lendings sem Kristján sagði skipta miklu máli fyrir ferða- þjónustu á svæðinu. Kristján nefndi einnig Saltfiskssetrið í Grindavík sem opnaði í fyrra- haust og brúna milli heimsálfa. í máli Kristjáns kom fram að fjölbreytileiki Suðurnesja hvað varðar ferðaþjónustu sé mikill og að stöðugt sé verið að ræða nýjar leiðir í ferðaþjónustu. Ferðamála- samtökin fengu nýverið styrk frá Samgönguráðuneytinu til að aug- lýsa ferðaþjónustu á svæðin, en ráðuneytið styrkti ferðamálasam- tök víða um land með slíkum styrk. Ýmsir aðilar tengdir ferðaþjón- ustu sátu fundinn og meðal þeir- ra var Stefán Guðmundsson frá Gokart brautinni, en á morgun verður tekin í notkun ný braut fyrir fjarstýrða bíla og er brautin sú fýrsta sinnar tegundar á land- inu. Reynir Sveinsson formaður bæj- arráðs Sandgerðis og fulltrúi í stjóm ferðamálasamtaka Suður- nesja greindi frá nýjum mögu- leikum í gistingu í Sandgerði, en teknir hafa verið í notkun fjórir sumarbústaðir í grennd við golf- völlinn í Sandgerði. Ferðamálasamtökin hafa í undir- búningi sérstakt átak í menning- artengdri ferðaþjónustu í sam- vinnu við Kjalarnesprófastdæmi og menningarfulltrúa Reykjanes- bæjar. Átakið byggir á því að nýta kirkjurnar á svæðinu og söguna sem tengist þeim, en þann 14. júlí verða kirkjur á svæðinu til sýnis og verður hægt að nálgast bæklinga um sögu kirknanna. í haust stendur til að halda sér- stakan menningardag í kirkjum á Suðumesjum, mismunandi dag- skrá verður í boði í hverri kirkju fyrir sig. Dagskráin sem boðið verður upp á í kirkjunum mun tengjast sögu hverrar sóknar fyrir sig, en dagskráin er hugsuð þan- nig að auðvelt verði að komast á milli kirknanna og ná allri dag- skránni. Börnin á hestbak í Garði Það var heldur betur þjóðleg stemmning í Garðinum á þjóðhátíðardaginn. Þar fóru hátíðarhöld fram í og við íþróttahúsið. Börn fengu að fara á hest- bak og einnig var boðið upp á skemmtilega járnbrautarlest fyrir yngstu gestina. Happdrætti og grillaðar pylsur voru einnig á útisvæði en inni var dagskrá á sviði. Ljósmyndari Víkurfrétta smellti meðfylgjandi mynd af hestafólki sem hafði gaman af lífinu í dag eins og sjá má. 8 VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.