Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.06.2003, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 26.06.2003, Blaðsíða 6
stuttar FRÉTTIR Leit hafin að Ljósanætur- laginu 2003 Fyrir Ljósanótt í fyrra var í fyrsta sinn efnt til sönglagakeppni í tilefni Ljósanætur þar sem Ljósalagið 2002 var valið. í ár er aftur efnt til slíkrar keppni og er leitað eftir frumsömdu lagi með ís- lenskum texta sem verður Ljósalag 2003. Lagið eða textinn má ekki hafa birst eða verið flutt opinberlega áður og hámarkslengd lags- ins er 4 mínútur. Síðasti skiladagur er 8. júlí 2003. Aðalverðlaunin eru kr. 400.000, 2. verðlaun kr. 150.000 og 3. verðlaun kr. 100.000. Tíu lög verða valin úr hópi innsendra verka af sérstakri fagdómnefnd. Lögin verða útsett af Jóni Olafssyni, tónlistarstjóra keppninnar og gefin út á geisladiska í byrjun september n.k.. Föstudaginn 5. september verða öll lögin flutt í Stapanum við hátíðlega athöfn og þar verður vinn- ingslagið valið. Verkinu skal skilað á skrif- stofu menningarfulltrúa, Tjamargötu 12 i Reykjanes- bæ fyrir 8. júlí n.k. Laginu skal skilað undir dulnefiti á geisladiski eða hljómsnældu og textanum á blaði, en rétt nafn skal fylgja með i lokuðu umslagi. ‘ÍiWJjjJJjJjjÍ Fjölmennifylgdist með sólsetrí á Garðskaga ÞARFTU AÐ AUGLÝSA? Auglýsingasíminn 4210000 MUNDI 229 kannabisplöntur hjá lögreglunni í Keflavík? Vantar ekki alltaf gróður í Leifsstöð? Fjölmargir lögðu leið sína að Garðskagavita á laugardagskvöld til að fylgjast með sólsetri á lengsta degi ársins, sumarsólstöðum. Sólin settist á bakvið Snæfellsnes- fjallgarðinn þegar klukkan var komin fjórar mínútur yfir miðnætti. Málverk meistarana jafnast ekki á við það sem veðurguðirnir geta gert þegar þeir eru í góðu skapi. Fólk stóð agndofa og horfði á sólroðann og eingöngu mátti heyra gargið í kríunni á Garðskaga og létt sjávarhljóð. Gamli vitinn á Garðskaga leikur aðalhlut- verkið í meðfylgjandi Ijósmynd en vitinn var byggður árið 1897. Hann hefur verið vinsælt myndefni Ijósmyndara í gegnum tíðina, enda getur hann oft spilað stórt hlut- verk í samspili við Snæfellsjökul og sólroða á himni. Texti og mynd: Hilmar Bragi Bárðarson Fækkun fíkniefna- brota í Keflavík íkniefnabrotum hjá embætti Lögreglunnar í Keflavík fækkaði um 10 á síðasta ári miðað við árið þar á undan og eru tæplega 3% af íTkniefnabrotum á landinu öllu. Þetta kemur fram í sam- antekt Rikislögreglustjóra yfir fíkniefnabrot síðasta árs. Arið 2002 voru fíkniefnabrot í Keflavík 29 talsins en árið 2001 voru þau 39. í fyrra lagði Lög- reglan í Keflavík hald á tæp- lega 37 grömm af hassi og rúmlega 96 grömm af kanna- bisfræjum. Hald var lagt á 229 kannabisplöntur og rúmlega 23 grömm af marijúana. Lagt var hald á tæplega 36 grömm af amfetamíni og 14 e-töflur. Ef litið er á landið í heild sinni fjölgaði fíkniefnabrotum úr 911 árið 2001 í 994 árið 2002 og nemur aukningin um 9,1%. Bílafilmur Erum einnig með öryggisfilmur í hús sandblásnar, glærar og litaðar. Látum skera út nöfn í forstofuglugga Gerum föst verðtilboö. Vio minnum á vefsíðuna okkar þar sem hægt er aö panta bílaleigubíl -0*(354) 421 3737 892 9700 Fax: 421 3732 Fitjabakki 1e Reykjanesbær sacars@sacarrental.is *i\*x Hvernig væri að láta okkur skelia filmum í bílinn þinn fyrir ...það er fallegra ...það er betra 6 VlKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.