Víkurfréttir - 26.06.2003, Page 13
Víkurfréttir litu í heimsókn til Guðnýjar Hönnu og bræðra
hennar þar sem þau voru að leika sér á Greniteignum. Það
var nóg að gera hjá þeim og ljóst að þau sitja ekki auðum
höndum, enda hefur Guðný Hanna sýnt að hún drífur í hlutun-
um.
Af hverju fórstu til bæjarstjórans?
Út af því að maður er alltaf að detta þama.
Hringdirðu og pantaðirðu bara tíma?
Já og afí minn kom með mér og bræður mínir.
Ertu búin að detta oft þama?
Soldið.
Meiddirðu þig síðast?
Já dáldið.
Hvað sagði bæjarstjóri þegar þú komst til hans?
Að það verði að laga hann.
Og ætlaði hann að láta laga hann strax?
Já. Hann bara hringdi strax í þá [vinnumennina].
Fannst þér það ekki flott?
Jú.
Ætlarðu að fylgjast með því að vinnumennimir lagi göngustíginn?
Já, ef ég hef tíma.
Víkurfréttir fengu það staðfest hjá Árna Sigfússyni bæjarstjóra
Reykjanesbæjar að göngustigurinn yrði lagfærður mjög fljótlega. Bæj-
arstjóri sagði að heimsókn Guðnýjar hefði verið mjög ánægjuleg og
það væri verulega gaman þegar ungir íbúar Reykjanesbæjar kæmu til
að hitta sig.
Ætlar að fylgjast
með vinnumönnunum
laga göngustíginn!
Cuðný Hanna varð ekki sátt fyrr en bæjarstjóri hringdi í vinnumennina sem hann og gerði.
Á myndinni má sjá bræður Guðnýjar, þá Hafþór og Culla sem veittu henni andlegan stuðning í viðtalinu við
bæjarstjórann. Að ofan sést bréfið og teikninginn sem þau lögðu fram máli sínu til stuðnings.
Keflavik 16 júní 2003
Ámi bæjarstjóri
Við heitum Guðný, Gulli og Hafþór og eigum heima á Greniteig 23. Við
eigum fúllt af vinum sem eiga heima á Birkiteig. Til þess að fara til þeirra
löbbum við göngustíg sem liggur á millifiúsa númer 22 og 24 á
Greniteig. í hvert sinn er við löbbum eða hjólum þar þá dettum við mn
steina og holur og dettum stundum á glerbrot og svoleiðis og þurfum fullt
af plástrum. yiltu vinsamlega biðja vinnumennina þina á laga
göngustíginn iyrir okkur.
Kær kveðja
Guðný Hanna Sigurðardóttir 5 ára
. ^ ----------------------- ---------
Guðlaugur Guðberg Sigurðsson 5 ara
■■■ja-fþ/;/'' I (æ._______Scn
Hafþór Ingi Guðberg Sigurðsson 11 ára
VlKURFRÉTTIR I 26.TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURIIMN 26. JÚNf 2003 113