Víkurfréttir - 26.06.2003, Side 14
Bombard gúmmíbátur með
nýjum botni, á kerru, ásamt 45
hestafla Mercury utanborðsmótor
með rafstarti. Með bátnum fylgir
stýrisbúnaður og GPS tæki.
Bátur í góðu standi og mótor
nýlega yfirfarinn.
Verð 650.000.-
Nánari upplýsingar gefa
Ingólfur í síma 861 2050
eða Einar í síma 893 4040.
Hvalsnessóknar verður haldinn í
Safnaðarheimilinu mánudaginn
30. júní nk. kl. 20.
Sóknarnefnd.
Rekstur veitingahússins Vör í Grindavík er laus
frá og með I. ágúst 2003.
Um er að ræða allan veitingarekstur í húsínu,
sem er í fullum rekstri í dag og er vel tækjum
búið.
Veitingasalur fyrir 120-150 manns.
Upplýsingar á skrifstofu Sjómanna
vélstjórafélagsins í Grindavík
eða í síma 426 8400.
stuttar
FRÉTTIR
Auglýsingasíminn
4210000
Þrír voru teknir fyrir
hraðakstur í umdæmi iög-
reglunnar í Keflavík á
sunnudag. Skemmdarverk
voru framin í Grindavík að-
fararnótt sunnudagsins er
rúður voru brotnar í bíl. Þá
stöðvaði lögregla ökumann
sem reyndist hafa verið
sviptur ökuréttindum.
Hlaupahjól
tekin ítollinum
Tollgæslan á Keflavíkur-
flugvelli hefur á tæplega síð-
asta hálfum mánuði tekið
um 30 hlaupahjói með
hjálparmótor af farþegum
sem eru að koma til lands-
ins. Hlaupahjól með mótor
eru skráningarskyld og falla
undir reglur um létt bifhjól.
Þess vegna verða þau að
hafa allan öryggisbúnað
eins og bifhjól, t.d. hemla,
stefnuljós og ljós, sömuleiðis
verða þau að vera tryggð.
Ökumenn 15 ára og eldri
skulu hafa próf á létt bif-
hjól.
Hlaupahjólin sem Tollgæslan
á Keflavíkurflugvelli hefúr
gert upptæk verða ekki tollaf-
greidd nema gerðar verði á
þeim breytingar sem upp fylla
skilyrði léttra bifhjóla.
í fyrra varð óhapp sem leiddi
til þess að dómsmálaráðherra
ákvað að hlaupahjól með
mótor teljist vera létt bifhjól
og falli undir reglugerðir um
búnað ökutækja.
Eldurí
hamsatólg
Kalla þurfti til slökkvilið
þegar eldur kom upp í
heimahúsi í Keflavík um
fimmleytið á sunnudag.
Eldur kom upp í hamsatólg
en húsráðendur voru að
elda saltflsk og ætluðu að
hafa sjóðheita hamsatólg
með soðningunni.
Reykræsta þurfti íbúðina
sem stendur við Hringbraut
en engan sakaði. Minnihátt-
ar skemmdir eru af völdum
reyks og sóts.
Að sögn Sigmundar Eyþórs-
sonar slökkviliðsstjóa brugð-
ust húsráðendur rétt við og
köstuðu eldvamarteppi yfir
logandi tólgina.
Skemmdarverk
íGrindavík
Frá slökkvistarfi nokkrum sekúndum eftir að eldurinn kom upp.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Eldur undir vélarhlíf bifreiðar
Eldur kom upp undir vélarhlíf Toyota bifreiðar á bifreiða-
stæði við Biðskýlið í Njarðvík í hádeginu á mánudag. Menn
hlupu til og fengu lánuð slökkvitæki í nálægum fyrirtækj-
um og tók skamma stund að slökkva eldinn. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Sigmundi Eyþórssyni slökkviliðsstjóra Brunavarna
Suðurnesja er eldurinn af völdum rafmagns en rafgeymir var
rangt tengdur í bifreiðinni. Tjónið á bílnum er talsvert.
Vel heppnað kvennahlaup í Sandgerði
Kvennhlaupið fórfram í Sandgerði eins og um allt land. Konurnar hituðu upp
undir stjórn Margrétar Richardsdóttur og hlupu síðan 3,5 km. leið um götur
bæjarins. Við komuna í mark fengu allar verðlaunapening og hressingu. Að
lokum var öllum þátttakendum kvennahlaupsins í Sandgerði boðið í sund.
Belgískur gestakokkur á Soho
æstu tvær vikumar
mun belgískur gesta-
kokkur að nafni Pieter
LonneviIIe starfa á veitinga-
staðnum Soho í Keflavík. Piet-
er sem er aðeins 24 ára gamall
hefur hefur verið á íslandi frá
því í febrúar, en hann starfaði
sem gestakokkur á Hereford
og Humarhúsinu. Pieter starf-
aði í rúm 3 ár á virtum veit-
ingastað í Hollandi sem hefur
hlotið Michelin viðurkenningu,
en það eru virtustu meðmæli
með veitingastöðum í Evrópu.
Pieter segir að hann honum
finnist það spennandi að starfa
á Islandi og segir að íslenskar
sjávarafurðir séu þær bestu í
heiminum. Örn Garðarsson
veitingamaður á Soho sagði í
samtali við Víkurfréttir að Pi-
eter myndi starfa sem gesta-
kokkur næstu tvær vikurnar
og að hann myndi brydda upp
á nýjungum, s.s. að nota bjór í
matargerð.
14
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!