Víkurfréttir - 26.06.2003, Síða 16
Laure Courbois er 19 ára gömul
belgísk stúlka sem hefur dvalið
hér á íslandi á vegum AFS AI-
þjóðleg fræðsla og samskipti eins og
samtökin eru kölluð á íslensku. Laure
býr á heimili Guðrúnar Hákonardóttur
og Stefáns Jónssonar í Keflavík og hef-
ur búið þar síöustu lO mánuði. Laure er
ánægð með dvölina á íslandi.
FÉKK10 í ÍSLENSKU
Þrátt fyrir að hafa verið einungis 10 mán-
uði á Islandi talar Laure ágæta íslensku.
„Ég skil ekki alveg allt en mér hefur geng-
ið ágætlega að læra íslenskunasegir
Laure en hún fékk 10 í íslensku og stærð-
fræði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. F.S.
tekur vel á móti skiptinemum og Elísabet
íslenskukennari og Elín námsráðgjafi eru
þeim innan handa.
SKRÓP KEMUR EKKITIL GREINA
Laure segist hafa eignast góða vini hér á
íslandi, en henni finnst íslenskir jafhaldrar
sínir stundum dálítið kærulausir og þá sér-
staklega hvað varðar námið. „Mér finnst
skrýtið að sjá þegar krakkarnir eru að
skrópa í tímum í skólanum. Þetta kæmi
ekki til greina hjá krökkum í Belgíu.”
Laure segir einnig að í Belgíu séu krakkar
á hennar aldri ekki úti á kvöldin eins og
hér. „Maður er bara heima hjá sér eftir að
maður kemur heim úr skólanum, en hér á
Islandi eru krakkamir úti langt íram eftir
kvöldi. Það var dálítið skrýtið að kynnast
þessu hér.”
VÍKKAR SJÓNDEILDARHRINGINN
Laure segist hvetja ungmenni til að fara
erlendis á vegum AFS þvi það víkki sjón-
deildarhringinn. „Ég er rosalega ánægð
með dvölina og ég hefði alls ekki viljað
missa af þessu tækifæri, “ segir Laure og
hún á eftir að sakna Islands og fjölskyld-
unnar. „Ég stefni að því að koma aftur eftir
2 ár þegar Hákon bróðir minn fermist.
Þegar ég kem heim til Belgíu fer ég í sum-
arfrí til Italíu og eftir það byijar skólinn hjá
mér en ég ætla að fara að læra arkitektúr.”
VONAÐIST EFTIR HVÍTUM JÓLUM
Guðrún segir að Laure hafi haft þær vænt-
ingar þegar hún kom til íslands að um jól-
in yrði dúnmjúk hvít mjöll yfir öllu. „Sú
ósk rættist ekki, en hún hefur kynnst öðr-
um hlutum og er bara ánægð með dvöl-
ina.”
KOSTAR EKKERT AD TAKA SKIPTINEMA
Rakel dóttir þeirra hjóna hefur verið á veg-
um AFS í Minnesota í Bandaríkjunum í 11
mánuði og kemur hún heim í júlí. Guðrún
segir að þeim hafi fundist það spennandi
að taka ungling á vegum AFS inn á heim-
ilið í stað dóttur þeirra. „Þegar maður
sendir ungling út sem skiptinemi þá er
ekkert skilyrði að taka á móti öðrum ung-
ling. En foreldrar unglinga sem fara út
sem skiptinemar vilja oft gefa öðrum ung-
ling tækifæri því AFS gengur út á fólk
bjóði erlendum unglingum inná heimilið,”
segir Guðrún en Laure er orðin hluti af
fjölskyldunni. „Við borguðum fyrir Rakel
dvölina í Bandaríkjunum en við þurfum
ekki að borga neitt til að fá Laure til okkar.
Ég er nefnilega oft spurð að því hvað það
kosti að fá ungling á vegum AFS inn á sitt
heimili, en það kostar ekki neitt fyrir utan
venjulegan kostnað af heimilismanni.
Unglingurinn gengur bara inn i heimilið
og verður hluti af fjölskyldunni, en auk
þess gengur hann inn i skyldur annarra
bama á heimilinu og ef þau gera ákveðinn
verk á heimilinu og fá vasapeninga fyrir
það, þá lætur maður skiptinemann sitja við
sama borð.”
ÖNNUR MENNING
Þau hvetja fólk til að íhuga möguleikana á
því að taka skiptinema og segja að það sé
mjög þroskandi og víkki í sjóndeildar-
hringinn. „Maður fer að horfa á sjálfan sig
í nýju ljósi og auðvitað kynnist maður
menningu og hugsunarhætti manneskju frá
öðru landi. Við höfum líka mjög gaman af
því að sýna Laure landið okkar. Það er líka
svo gaman af þessum smáatriðum í um-
hverfinu sem maður veitir litla athygli en
er nýtt hjá þeim. Laure finnst t.d. svo
gaman að búa á stað þar sem hún sér sjó-
inn út um herbergisgluggan sinn.” Guðrún
og Stefán eru sammála um að hafa
skiptinema sé minna mál en þau hafi hald-
ið. „Maður heldur sínu striki því maður er
ekki að fá gest í 10 mánuði heldur nýjan
fj ölskyldumeðlim.”
GÓÐUR STUDNINGUR FRÁ AFS
Þegar unglingur á vegum AFS kemur inn á
heimili fólks þá fær fjölskyldan stuðning
ffá samtökunum hér á íslandi. Bæði fær
skiptineminn stuðnigaðila í skólanum ,
ungling sem sjálfur hefur verið skiptinemi.
Svo er aðili hér í bænum og svo hefur
maður alltaf greiðan aðgang að Rósu á
skrifstofu AFS. Guðrún segir að það sé
gott að vita af slíkum stuðningi. „Það geta
náttúrulega alltaf komið upp einhver
vandamál og þá er gott að geta leitað til
stuðningsaðilans hjá AFS.”
VILT ÞÚ TAKA VID SKIPTINEMA
Guðrún og Stefán bjóða þeim fjölskyldum
sem hafa áhuga á að taka að sér skiptine-
ma og vilja spytja nánar um það að hringja
i þau í síma 421-2956 eða 893-1450.
16
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!