Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016FÓLK
SPROTAR
Sæplast Daniel Niddam hefur verið ráðinn í starf sölu- og
markaðsstjóra í Evrópu hjá Sæplast Iceland. Daniel er við-
skiptafræðingur að mennt og starfaði áður sem sölu- og
markaðsstjóri hjá Skaganum-3x Technology í 4 ár og þar
áður var hann viðskiptastjóri hjá Marel í 10 ár.
Meginverkefni Daniels er að leiða markaðssókn fyrir-
tækisins bæði innan lands og erlendis og að styrkja ímynd Sæplasts.
Daniel Niddam er uppalinn í Frakklandi en hefur búið á Íslandi í 25 ár.
Nýr sölu- og markaðsstjóri
Samtök iðnaðarins Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur
verið ráðin forstöðumaður mennta- og mannauðsmála
Samtaka iðnaðarins. Ingibjörg ber ábyrgð á að vinna að og
framfylgja stefnu samtakanna í mennta- og mannauðs-
málum þar sem markmiðið er að nægt framboð sé af hæfu
starfsfólki fyrir hinn fjölbreytta iðnað í landinu.
Ingibjörg Ösp stýrði Menningarhúsinu Hofi á Akureyri til ársloka 2014.
Var framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar á árunum 2015-2016. Áður var
hún framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar á árunum 2003-2005 og
markaðsstjóri KEA frá 2005-2008. Ingibjörg Ösp er með MSc-gráðu í
stjórnun og stefnumótun frá Háskólanum á Akureyri og fjallaði hún um út-
vistun í opinberri stjórnsýslu í meistaraverkefni sínu. Hún er með BSc-
gráðu í viðskiptafræði frá rekstrardeild Háskólans á Akureyri.
Nýr forstöðumaður mennta- og mannauðsmála
VISTASKIPTI
„Þátttakendur eru staddir inni í
dularfullu herbergi. Hurðin er læst
og þarf að leita að vísbendingum og
leysa þrautir til að komast út.“
Þannig lýsir Jakob Hrafnsson
leiknum hjá Reykjavik Escape
(www.reykjavikescape.is). Jakob er
framkvæmdastjóri og eigandi fyrir-
tækisins, en hann rekur einnig veiði-
stangaleiguna Rent-a-Rod við
Reykjavíkurhöfn.
Rannsóknastofa og fangaklefi
Reykjavík Escape var opnað í
febrúar á síðasta ári og er flóttaleik-
urinn bæði hugsaður sem afþreying
og sem góður vettvangur fyrir hóp-
efli. „Við erum með fjórar útfærslur
af leiknum. Fyrst ber að nefna „Pri-
son Break“, þar sem fólk er sett í
annan af tveimur fangaklefum sem
við höfum smíðað hér í Borgar-
túninu. Síðan er „Scientist“, þar sem
leita þarf vísbendinga á rannsóknar-
stofu vísindamanns. „Taken“ er
drungalegasta herbergið, þar sem
spilararnir hafa verið klófestir af
mannræningja. Loks er nýjasta her-
bergið, „Hangover“ sem sækir inn-
blástur í samnefndar gamanmyndir.
Þar er hópurinn fastur inni á hót-
elherbergi og losnar ekki út öðruvísi
en að komast að því hvað gerðist
nóttina á undan.“
Leikir af þessu tagi hafa notið
vaxandi vinsælda erlendis. „Þetta
byrjaði fyrir 10 eða 15 árum með
einföldum tölvuleikjum þar sem fólk
þurfti að komast út úr herbergi og
leita að vísbendingum með tölvu-
músinni. Síðan gerist það fyrir
þremur eða fjórum árum að ein-
hverjum hugkvæmist það úti í heimi
að færa þennan sama leik yfir í raun-
heima,“ segir Jakob. „Í vor fórum
við á alþjóðlega ráðstefnu fólks sem
rekur Escape-leiki um allan heim og
þar mættu um 500 manns.“
Myndavélar bannaðar
Hvert herbergi er eins og vand-
lega hönnuð sviðsmynd. Jakob segir
þess gætt mjög vel að herbergin
komi fólki á óvart og eru því allar
myndavélar bannaðar í herbergj-
unum og farsímar teknir af fólki.
„Við byrjum á að setja þátttakendur
inn í söguna á bak við herbergið og
förum yfir leikreglurnar. Hver hóp-
ur fær GSM-síma sem má nota til að
hafa samband við starfsmann sem
getur síðan gefið vísbendingar ef
þörf er á. Ef hægt gengur að leysa
þrautirnar má fá aðstoð eftir ákveð-
inn tíma, svo að fólk situr ekki fast í
sömu þrautinni allar 60 mínúturnar
inni í herberginu, heldur nær að
vinna marga smásigra í kappi við
tímann.“
Þrautirnar eru ekki auðveldar og
segir Jakob að í aðeins um 35% til-
vika takist hópunum að komast út úr
herbergjunum áður en tíminn renn-
ur út. Hvert herbergi er gert fyrir
2-6 manna hópa en Hangover-
herbergið getur tekið við allt að 12
manns.
Lesendur ViðskiptaMoggans ættu
að hafa sérstakan áhuga á hvernig
Reykjavik Escape nýtist við hópefli.
Segir Jakob að starfsmannastjórar
séu mjög ánægðir með það sem upp-
lifunin skilar. „Við höfum það um-
fram marga aðra hópeflisafþreyingu
að allir aldurshópar geta tekið þátt.
Reykjavík Escape er góð skemmtun
en kallar ekki á að fólk þurfi að
hreyfa sig mikið, hoppa, klifra, eða
fara í sérstakan hlífðar- eða útivist-
arfatnað. Fólk getur komið hingað í
sparifötunum og farið burt klukku-
stund síðar til að snæða góðan
kvöldverð á huggulegum veit-
ingastað í miðborginni, fara á fund
eða listviðburð.“
Reynir á samvinnuna
Að sögn Jakobs reynir leikurinn á
það hversu vel hópurinn vinnur sam-
an við framandi aðstæður og undir
töluverðu álagi. „Þegar reynt er að
flýja herbergið getur ýmislegt kom-
ið í ljós um samskiptin á milli leik-
manna. Sumir taka að sér að vera
leiðtogar og ferst það vel úr hendi á
meðan aðrir taka rangar ákvarðanir
og hægja á hópnum. Getur verið
mjög forvitnilegt að sjá hvernig ein-
staklingarnir vinna úr eigin mistök-
um undir þessum kringumstæðum.“
Er leikurinn þó umfram allt mikil
skemmtun. „Fólki finnst tíminn líða
mjög hratt inni i herberginu, og
jafnvel þótt ekki takist alltaf að kom-
ast út á 60 mínútum ná flestir að
leysa megnið af þrautunum og geta
verið stoltir af árangrinum.“
Morgunblaðið/Eggert
Að sögn Jakobs hefur Reykjavik Escape meðal annars notið vinsælda hjá pörum á fyrsta stefnumóti, enda geti
samstarfið við að leysa þrautirnar verið vísbending um framhaldið. Komast þarf út á 60 mínútum.
Þar sem viðskipta-
vinirnir eru læstir inni
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Jakob hjá Reykjavik
Escape segir starfs-
mannastjóra mjög ánægða
með hvernig þrautaleik-
urinn nýtist sem hópefli.
Fáum tekst að sleppa út úr
herberginu áður en tíminn
rennur út.
Gestir þurfa að leita vísbendinga til að komast út. Þessi mynd var tekin í
einu herberginu með sérstöku leyfi en sýnir þó enga þraut eða vísbendingu.
kr.9.900 pr.mán.án vsk
- snjallar lausnir
Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, 600 Akureyri
*án endurgjalds til 1. júlí 2018
ef keypt fyrir 30. júní 2016.
Fullbúin viðskiptalausn í áskrift
Microsoft Dynamics NAV
Wise býður eitt mest selda
bókhaldskerfi landsins
í mánaðarlegri áskrift - NAV í áskrift.
Lágmarkaðu kostnaðinn
og kynntu þér málið á navaskrift.is.
Aðgangur að Office 365 fylgir með.*
+
sími: 545 3200 » wise@wise.is » wise.is
Nýr Landspítali Gunnar Svavarsson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf. úr hópi 12 um-
sækjenda. Gunnar er vélaverkfræðingur frá Háskóla Ís-
lands. Hann stofnaði og var framkvæmdastjóri Aðalskoð-
unar hf. um árabil og sat á Alþingi um tveggja ára skeið. Þá
starfaði Gunnar í sveitarstjórnarmálum á annan áratug.
Undanfarin sjö ár hefur hann verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi og sinnt
stjórnar- og rekstrarstörfum m.a. við verkefnið um Nýjan Landspítala.
Nýr framkvæmdastjóri