Morgunblaðið - 06.07.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Guðrún Guðmundsdóttir verður hundrað ára í dag. Hún er fædd 1916 á Súðavík í Álftafirði við Ísa- fjarðardjúp, en foreldrar hennar bjuggu á Tröð í Álftafirði. Hún er yngst sjö systkina, en móðir henn- ar lést við barnsburð. Guðrún ólst því upp hjá móður- bróður sínum og konu hans á Kleifum í Skötufirði. Þar gekk hún í sveitaskóla auk þess sem hún vann á bænum frá sjö ára aldri. „Ég var höfð með í öllu eins og önnur börn. Ég gat farið að beita línu sjö ára og tíu ára var ég farin að fara með í út- róðra og raka í slætti. Við börnin fengum bara aðeins minni verk- færi en þeir fullorðnu. Þetta var enginn þrældómur heldur meira eins og leikur fyrir okkur börn- in,“ segir Guðrún. Lagðist inn vegna lungnaveiki Guðrún var alls ekki heilsu- hraust á yngri árum og þjáðist lengi af lungnaveiki. Hún náði þó bata og fór síðar að vinna sem ráðskona í Hvalfirði, þar sem hún kynntist Sólmundi Hjaltalín Jóns- syni sem vann í olíustöðinni þar. Þau giftust og eignuðust börnin Kristin Karl, Margréti Jóhönnu, Guðjón og Magnús Hjaltalín. Guðrún býr nú í þjónustuíbúð fyrir aldraða sem hún flutti í þeg- ar hún var tæplega níræð, en 34 ár þar á undan hafði hún búið á Klapparstíg. Hún hugsar að mestu leyti um sig sjálf en fær að- stoð með það sem upp á vantar. Hún fer reglulega í göngutúra í kringum blokkina sína, eldar ofan í sig, þvær þvott og les blöðin. „Ég hef verið tvo daga á viku í dagvist aldraðra á Vesturgötu. Þær eru voða góðar við mig þar og ætla að hafa tertur og flottheit fyrir mig á föstudaginn. Ég hef líka verið aðeins á Hrafnistu og leið vel þar,“ segir Guðrún. Guðrún spáir mikið í pólitíkina, kýs í öllum kosningum og reynir að fylgjast vel með umræðunni. Hvað finnst henni um nýju stjórn- málahreyfinguna Pírata? „Það eru voða margir hrifnir af þeim en það veit enginn fyrir hvað þeir standa. Annars finnst mér mega koma fleira ungt fólk inn á Alþingi. Þeir gömlu bjóða sig fram aftur og aftur og fólkið kýs þá endalaust,“ segir Guðrún. Þakkar langlífi sterkum stofni En af hverju heldur Guðrún að hún hafi lifað svona lengi? „Ég er af sterkum stofni. Ein systir mín var 97 ára þegar hún dó. Önnur dó nóttina eftir að hún varð ní- ræð. Annars þakka ég það helst góðum mat. Heima var alltaf til nóg af góðum fiski af öllum sort- um. Móðir mín, sem ól mig upp, var myndarkona og bjó til góðan mat og fór vel með allt. Annars veit maður aldrei af hverju það stafar, þetta langlífi,“ segir hún. Hvað ætlar Guðrún að gera í til- efni dagsins? „Ég ætla bara ekki að gera neitt. Dóttir mín skipu- leggur þetta allt fyrir mig og er búin að leigja sal fyrir veislu. Ég treysti henni alveg fyrir þessu,“ segir Guðrún glaðbeitt. Guðrún Guðmundsdóttir verður 100 ára í dag Morgunblaðið/Þórður Ern Guðrún Guðmundsdóttir verður hundrað ára í dag og hyggst fagna áfanganum með vinum og ættingjum. „Ég er komin af mjög sterkum stofni“ Guðrún er frá Tröð í Álftafirði, yngst sjö systkina. Hún ólst upp á Kleifum í Skötufirði. Nítján ára fór hún að heiman og gerðist seinna ráðskona í Hvalfirði. Þar kynntist hún manni sín- um, Sólmundi Hjaltalín Jóns- syni, og áttu þau fjögur börn og bjuggu þau lengst af á Akranesi þar sem þau byggðu sér hús. Guðrún hefur unnið ýmsa vinnu. Vann sveitastörf frá sjö ára aldri, var síðan í fiski, ráðs- kona og rak mötuneyti á barna- heimili. Hún á fjögur börn og 31 af- komanda alls og býr í eigin hús- næði í Reykjavík. Æviágrip Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hafnarfjarðarbær og Alþýðusam- band Íslands hafa undirritað vilja- yfirlýsingu um uppbyggingu 150 leiguíbúða í Hafnarfirði. Markmiðið er að afhenda lóðir fyrir 32 íbúðir á yfirstandandi ári, 28 íbúðir árið 2017, 45 íbúðir árið 2018 og 45 íbúðir árið 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar segir einn- ig að ASÍ vinni að stofnun og fjár- mögnun húsnæðissjálfseignarstofn- unar sem muni starfa á landsvísu. ASÍ hefur þegar haft milligöngu um byggingu um 1.000 leiguíbúða í Reykjavík og að sögn Gylfa Arn- björnssonar, for- seta ASÍ, hafa einnig farið fram viðræður við sveitarfélög í öll- um landsfjórð- ungum varðandi uppbyggingu á leiguíbúðum. Aðstæður þar eru hins vegar aðr- ar en á höfuðborgarsvæðinu og stendur hár byggingarkostnaður frekari uppbyggingu fyrir þrifum. „Við höfum verið í samtölum við sveitarfélög úti á landi en það kemur í ljós að húsnæðisvandinn þar er annars eðlis en á höfuðborgarsvæð- inu. Þar snýr vandinn að skorti á húsnæði en húsnæðisverð og leigu- verð er mun lægra en á höfuðborgar- svæðinu. Þess vegna kemur það í ljós að leiguverð í þessu nýja kerfi er mun hærra en leiguverðið er á þess- um stöðum og fasteignaverðið er mun lægra en byggingarkostnaður,“ segir Gylfi. Hann bendir á að af þess- um sökum séu einstaklingar og lög- aðilar tvístígandi að hefja fram- kvæmdir. „Byggingarkostnaður er svipaður um allt land. Lóðaverðið er hærra á suðvesturhorninu en á móti er efniskostnaður hærri á lands- byggðinni vegna flutningskostnaðar. Það veldur því að byggingarkostn- aður er hærri en markaðsvirði. Þetta eru aðstæður sem er eilítið flókið að eiga við,“ segir Gylfi. Hann segist hafa lagt það til að haldið yrði málþing um málið fljót- lega til þess að fara yfir þetta við- fangsefni. „Við viljum gjarnan vera landsfélag en leiguverð hjá okkur yrði alltaf hærra en það yrði á ann- ars staðar landsbyggðinni,“ segir Gylfi. 150 leiguíbúðir í Hafnarfirði  Hár byggingarkostnaður stendur byggingu leiguíbúða úti á landi fyrir þrifum Gylfi Arnbjörnsson Innlagnir unglinga á Vog eru helm- ingi færri í dag en árið 2002. Þetta kemur fram í ritstjórnargrein Þór- arins Tyrfingssonar, forstjóra á sjúkrahúsinu Vogi, í nýjasta tölu- blaði Læknablaðsins. Þórarinn segir í greininni að á 9. áratugnum hafi unglingum á Vogi fjölgað jafnt og þétt. Á árunum 1995-2000 hafi innlögnum fjölgað skyndilega úr 100 á ári í 300 og árið 2002 hafi fjöldinn verið 800 á hverja hundrað þúsund íbúa á aldr- inum 15-19 ára. Þórarinn segir að árangur í með- ferðum náist fyrst og fremst með mikilli vinnu, þrautseigju, fjár- magni og góðum húsakosti. Unglingum á Vogi fækkar um helming frá árinu 2002 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Margir gerðu vel við sig í mat á meðan íslenska karlalandsliðið keppti á EM í knattspyrnu. Bæði Sláturfélag Suðurlands (SS) og Kjarnafæði fundu fyrir aukinni sölu á grillmat. „Það er ljóst að þegar þjóðin sameinast af einhverju tilefni gerir fólk vel við sig í mat. Við sjáum það skila sér í aukinni sölu,“ sagði Steinþór Skúlason, forstjóri SS. Hann sagði að mikil sala væri á grillmat fyrir atburði eins og leiki íslenska landsliðsins á EM. Síðast- liðinn sunnudag var mjög gott veð- ur og leikur, svo að ætla má að margir hafi komið saman og grill- að. Lambakótilettur og lærissneiðar í SS kryddlegi eru enn sem fyrr vinsælasta grillkjötið frá SS. Nú er SS komið með nýja vöru, nauta- kótilettur með trufflum og pipar. Nautagrillkjötið hefur fengið góð- ar viðtökur, að sögn Steinþórs. Eins eru vörur úr folaldakjöti vin- sælar. Ólafur Már Þórisson, markaðs- stjóri hjá Kjarnafæði, sagði að aukin sala í kringum EM-leikina hefði ekki leynt sér. „Það verður meiri sala í ham- borgurum, grillpylsum og öðru sem er fljótlegt og þægilegt að grilla. Líka í krydduðum kjöt- sneiðum,“ sagði Ólafur. Hann benti á að kappleikirnir hefðu margir verið fljótlega eftir vinnu svo að fólk hefði ekki alltaf gefið sér mikinn tíma til að standa yfir grillinu heldur keypt eitthvað fljót- legt. Salan á grillkjöti frá Kjarnafæði hefur verið aðeins meiri í sumar á höfuðborgarsvæðinu en síðasta sumar. Salan er heldur meiri nú en í fyrra á Norður- og Austurlandi, sem líklega má rekja til betra veð- urs nú en var í fyrrasumar. Kjarnafæði býður nú m.a. upp á lambagrillkjöt þar sem hvönn úr Hrísey er notuð í kryddblönduna. Ólafur sagði að hvönnin gæfi gott bragð og vörunni hefði verið vel tekið. EM jók neysl- una á grillmat  Aukin sala var hjá SS og Kjarnafæði Morgunblaðið/Skapti Grill Vinsælt er að grilla mat yfir sumarið og sumir grilla allt árið. Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 50 áraAFMÆLISTILBOÐ Nr. 12961 Á R A gasgrill 4ra brennara AFMÆLISTILBOÐ 99.900 VERÐ ÁÐUR 124.900 Grillbúðin •4brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • PTS hitajöfnunarkerfi • Kveiking í öllum tökkum • Gashella í hliðarborði • Tvöfalt einangrað lok • Postulínsemaleruð efri grind • Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Einnig til svart •Afl 14,8 KW www.grillbudin.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.