Morgunblaðið - 06.07.2016, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016
Sumar 2016
Opið virka daga frá 10-18
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Þetta er flottasta Eistnaflug sem við
erum að fara að halda, það fjölbreytt-
asta og ferlegasta sem sögur munu
fara af,“ segir Stefán Magnússon,
sem er upphafsmaður tónlistar-
hátíðarinnar Eistnaflugs sem haldin
er ár hvert í Neskaupstað á Austur-
landi frá 6.-9. júlí, hún sem sagt byrj-
ar í dag klukkan 17.
Voða lítið rokk og ról
„Þegar ég hóf þetta var voðalega
lítið rokk og ról í gangi hér fyrir aust-
an,“ segir Stefán. „Það var mikið tón-
listarlíf en enginn vettvangur fyrir
svona rokk eins og þeir voru með á
þessum tíma í Reykjavík. Það voru
djasshátíðir hérna í héraðinu og þess
háttar. Mér fannst vanta smá fjör í
þetta.
Ég var í sambandi við hljómsveitir
í Reykjavík og spurði hvort fólk væri
ekki til í að koma og spila og gera
gott partí ef ég gæti græjað rútu og
keyrt það austur.“
Þannig að þetta var bara smá há-
tíð, eiginlega bara smá hittingur til
að byrja með?
„Já, algjörlega. Til að byrja með
voru 50 manns á hátíðinni, það var
engin mæting.
Svo stækkaði þetta með hverju
árinu.
Fyrst mættu eiginlega bara hljóm-
sveitirnar og vinirnir.
Í fyrra voru aftur á móti í kringum
2.000 manns á hátíðinni, en lögreglan
ætlaði að það hefði verið auka þús-
und manns sem voru á svæðinu.“
Hvað áttu við 2.000 en samt 3.000?
„Tæplega 2.000 manns keyptu sig
inn á hátíðina en hátíðargestum
fylgdu þúsund í viðbót sem voru á
tjaldsvæðum og í bænum en keyptu
sig ekki inn.“
Af hverju varð þetta ekki bara eitt
lítið partí á sínum tíma; af hverju óx
þetta svona?
„Í framhaldi af fyrsta dæminu var
mikið spjallað saman á netsíðu sem
hét Dordingull, þar voru spjallsíður
þar sem rokkararnir voru saman að
ræða málin. Þar kom fram að allir
hefðu skemmt sér vel svo að það var
ákveðið að gera þetta aftur.“
Ég minnist þess að það hafi komist
í fjölmiðla í fyrra að þið hafið ekki
fengið krónu í styrk fyrir hátíðina en
samt gengi hún vel? Eruð þið að fá
einhverja styrki á hátíðina núna?
„Já, það er þessi Uppbyggingar-
sjóður Austurlands, fólkið í sjóðnum
vill ekkert með okkur hafa.
Það eru þrjár stórar hátíðir á
Austurlandi; Eistnaflug, Bræðslan
og Hammondhátíðin. Engin af þess-
um hátíðum fékk krónu úr sjóðnum
en þær eru líklegast að draga yfir sex
þúsund manns til sín.
Hátíðin Lunga fær sitt úr sjóðnum
eins og vanalega. Afhverju hún fær
en við ekki, ég veit það ekki.
Án þess að ég sé að gera lítið úr
Lunga.“
Hvernig rökstyður þessi sjóður
höfnun sína á styrkúthlutun til ykk-
ar?
„Þú færð bara þetta pólitíska svar
um að þetta verkefni verði ekki
styrkt, takk samt kærlega fyrir há-
tíðina og haltu áfram að standa þig!
Allir í héraðinu eru náttúrulega í
skýjunum yfir þessari þungarokks
hátíð sem við erum að halda og
mannfjöldanum sem við drögum inná
svæðið, það þarf ekkert að ræða
það.“
En af hverju ertu að pirra þig yfir
því að fá ekki peninga frá einhverjum
sjóði ef þetta gengur allt svona vel á
hátíðinni ?
„Ég er ekki að pirra mig yfir því,
ég er að furða mig á því.
En kannski er viðurkenningin
mest virði. Mann langar kannski í
hana frá sjóðnum.“
Auðvitað erum við nördar
En að hátíðinni í ár, þú sagðir í
fyrra að nýrnasteinar myndu brotna
á hátíðinni, verður þetta betra í ár?
„Þetta verður besta árið. Við erum
búnir að fá svakalega, rosalega, of-
boðslega flott lið á hátíðina. Þetta
hefur aldrei tekist betur.“
Árlega veitið þið þessi verðlaun
sem kallast Grjótið. Verðlaun til
þungarokksmanneskju, þetta eru nú
ekki margir í þessum hópi? Eru þessi
verðlaun eðlileg í þunnum vinahópi
þungarokksins?
„Þetta skiptir allt máli. Það er bara
eins og við erum að segja að það er
svo gott að fá klapp á bakið. Við erum
jaðarhópur og erum að þakka þeim
fyrir sem hafa barist fyrir þessu í
mörg ár.“
Nú hefur enginn krakki komist á
hátíðina ykkar, mér skilst að enginn
undir 18 ára hafi fengið leyfi til að
komast inn, ekki einu sinni í fylgd
með fullorðnum, hvað er það?
„Nú er ég einmitt að bíða eftir
svari frá sýslumanni. Það er hann
sem gefur leyfið.
Ég hef fengið álit frá lögmönnum
og skilst að sýslumaðurinn sé sam-
mála að það sé ekkert hægt að banna
þetta, þetta sé bara í lögum.
Nei, heyrðu. Svarið er komið. Ég
er að skoða inboxið hjá mér í tölvunni
á meðan við erum að tala saman.
Svarið er komið og allir mega
mæta á hátíðina. Loksins. Börn, ung-
lingar, gamalmenni, það eru allir vel-
komnir.“
En eruð þið þessir heitu aðdá-
endur þungarokksins ekki eitthvað
skrítið fólk?
„Jú, jú, þessi hátíð er einhver
stærsta nördasamkoma fyrir utan
EVE Online-hittinginn.
Þú kemur í þínum fötum og þínum
bol og öllum er skítsama. Það er eng-
inn að vanda sig við að dansa þarna,
bara ekki vera fáviti og þá er þetta í
góðu lagi.“
Án ofbeldis og eiturlyfja
Þið hafið sloppið við ofbeldis- og
vitleysisuppákomur eða hafa tilvik
komið upp á?
„Nei, það hefur gengið mjög vel.
Við höfum gengið hart fram í því að
passa upp á það. Ef eitthvað fer að
leysast upp í vitleysu er það bara
stoppað af gestunum sjálfum.
Þetta eru svoddan nördar að þeir
eru yfirleitt auðstoppanlegir og gott
að tala við þá.“
En hvað með eiturlyf, hafa slíkar
uppákomur verið?
„Það er alveg með minnsta lagi.
Auðvitað slæðist alltaf eitthvað með,
það fylgir öllum þessum tónlistar-
hátíðum.“
Hvaða hljómsveit hlakkar þú mest
til að heyra í?
„Það eru svo margar, þetta er súp-
er prógramm.
En ég hlakka meðal annars til að
heyra í Meshuggah, þar ertu með
skriðdreka, algjör sleggja sú hljóm-
sveit. Að hlusta á hana er eins og að
fá átján hjóla trukk keyrandi í gegn-
um eldhúsið hjá þér, algjör valtari,“
segir Stefán.
Skriðdreki í Neskaupstað
Tónlistarhátíðin Eistnaflug hefst
með völturum í Neskaupstað í dag
Grjótharðir Meshuggah er ein af fjölmörgum eitilhörðum hljómsveitum sem koma í Neskaupstað til að þenja sig.
Morgunblaðið/Þorkell
Gleði Að hafa fallegt hár getur verið kostur fyrir þungarokkara.
Eftir aðeins sex
þætti hefur Chris
Evans sagt starfi
sínu sem stjórn-
andi sjónvarps-
þáttanna Top
Gear á BBC
lausu. Evans tók
við stjórn þátt-
anna þegar Jer-
emy Clarkson var rekinn 2015 eftir
að hafa beitt samstarfsfélaga sinn
bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Í mótmælaskyni sögðu með-
þáttastjórnendur hans, James May
og Richard Hammond, upp, en þeir
þremenningar vinna nú að nýjum
sjónvarpsþætti fyrir Amazon sem
hefja á göngu sína með haustinu.
Evans hafði fjóra meðþátta-
stjórnendur sér til aðstoðar, þau
Matt LeBlanc, Rory Reid, Chris
Harris og Sabine Schmitz. Óljóst er
hvort þau munu halda áfram að
stýra þáttunum, en áhorfið á þætt-
ina hefur mælst í sögulegu lág-
marki að undanförnu skv. BBC.
Yfirgefur Top Gear
eftir sex þætti
Chris Evans