Morgunblaðið - 06.07.2016, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 06.07.2016, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 » Jón Stefánsson organisti hefði orðið sjötugur ígær hefði hann lifað. Í tilefni þessara tímamóta efndu vinir hans til söngstundar í gærkvöldi sam- tímis bæði í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatns- sveit og Langholtskirkju þar sem Jón starfaði sem organisti og kórstjóri í rúma hálfa öld. Góður hópur fólks kom saman í Langholtskirkju þar sem ættjarð- arlög voru sungin í fjórum röddum Jóni til heiðurs. Minningarstund í Langholtskirkju Notaleg stund Það var bjart og fallegt inni í kirkjunni hans Jóns þar sem fólk söng við undirleik orgelspils. Innlifun Þessar tvær drógu ekkert af sér í íslensku ættjarðarlögunum. Spjall Fólki gafst að sjálfsögðu líka tími til að spjalla á milli laga. Nótur Þær notuðu eitt hefti saman þessar konur og nutu þess að syngja. Tekið á því Fólk gaf misjafnlega mikið í sönginn, sumir létu hljóma vel. Morgunblaðið/Eggert Þrír fyrrverandi stjórnendur hjá danska uppboðshúsinu Bruun Rasmussen voru sl. mánudag sýknaðir í undirrétti í Kaupmannahöfn af ákæru þess efnis að hafa reynt að selja falsaða gerð af styttunni „Hugsuðinum“ eftir Auguste Rodin. Þeim Claus Poulsen, Thomasi Høiland og Per Rix var gefið að sök að hafa 2013 beðið breska uppboðshúsið Christie’s að selja 37 sm háa bronsstyttuna fyrir 4-6 milljónir danskra kr. (74-110 millj. ísl. kr.) þrátt fyrir að nefnd fremstu Rodin-sérfræðinga heims hefðu þegar rannsakað styttuna og upplýst þá um að um fölsun væri að ræða. Ákæruvaldið fór fram á þriggja ára fangelsisrefsingu fyrir athæfið. Sakborningarnir þrír byggðu málsvörn sína á því að þeir hefðu aðeins beðið starfsmenn Christie’s að meta fyrir sig styttuna, en ekki selja. Sögð- ust þeir hafa viljað fá álit sérfræðinga Christie’s í ljósi þess að Høiland keypti styttuna sem ekta fyrir þáverandi umbjóðanda sinn, Peer Lor- entzen, á uppboði Christie’s í New York árið 1996. Á þessi rök féllst rétt- urinn og taldi að þremenningunum hefði ekki borið skylda til að upplýsa starfsmenn Christie’s um mat Rodin-sérfræðinganna, en sakborningarnir báru fyrir rétti að ekkert vandað uppboðshús myndi selja hugsanlega Rod- in-styttu án þess að leita til sérfræðinganefndarinnar. Málareksturinn fyrir dómi snerist aðeins um það eitt að sanna að þremenningarnir hefðu haft í hyggju að biðja Christie’s að selja fyrir sig styttuna og féllust allir þrír dómararnir á þá túlkun verjenda að orðfærið „to consign“ fæli að- eins í sér ósk um mat en ekki sölu. Samkvæmt frétt danska dagblaðsins Politiken reyndu þremenningarnir að kúga 6 millj. dk. kr. út úr Christie’s þegar uppboðs- húsið neitaði að selja fyrir þá styttuna. Í bréfi þeirra til Christie’s hótuðu þeir málsókn og neikvæðri fjölmiðlaumræðu féllist Christie’s ekki á fjárkröfu þeirra, en nefndu það ekki einu orði að þeir hefðu sjálfir vitað að styttan væri fölsuð þegar þeir keyptu hana 2012 af Jane Begtrup sem erft hafði stytt- una eftir stjúpa sinn, Lorentzen. Saksókn- ari hefur hálfan mánuð til að ákveða hvort málinu verði áfrýjað. silja@mbl.is Fyrrverandi stjórnendur Bruun Rasmussen sýknaðir Hugsuður- inn eftir Rodin. Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Orf úr áli 25.980 Orf úr tré 17.400 Ljár 7.950 Heyhrífa 4.320 Orf og ljár verz lunin bryn ja MIKE AND DAVE 5:50, 8, 10:10 INDEPENDENCE DAY 2 5, 8, 10:30 LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:50, 5:50 CENTRAL INTELLIGENCE 10:30 WARCRAFT 2D 8 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.