Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2016, Page 8
’Skapgerð Williamsþykir á hinn bóg-inn minna meira áNavratilovu. Þær eru
báðar háværar á
velli og geta stokkið
upp á nef sér, en
hvorki dettur né
drýpur af hinni
öguðu Graf.
SERENA WILLIAMS frá Bandaríkjunum vann sinn 22. alslemmutitil í
einliðaleik kvenna í tennis á Wimbledon-mótinu í Lundúnum um síðustu
helgi og jafnaði þar með árangur þýsku goðsagnarinnar Steffi Graf. Aðeins
ein tenniskona býr nú að fleiri alslemmutitlum, hin ástralska Margaret Co-
urt, en árangur hennar er ekki að fullu sambærilegur, þar sem hún vann
þrettán af 24 titlum sínum áður en atvinnumönnum var hleypt inn á stór-
mótin, 1968.
Tennisskýrendur velta því nú af auknum þunga fyrir sér hvort Serena
Williams sé orðin besta tenniskona sögunnar. Eins og alltaf er erfitt að
bera saman leikmenn milli kynslóða en áður en Williams hóf að skara fram
úr þótti valið einna helst standa milli fyrrnefndrar Graf og hinnar tékk-
nesk-bandarísku Martinu Navratilovu. Sú síðarnefnda vann „aðeins“ átján
alslemmutitla á óhemjulöngum ferli, frá 1975 til 2006, en hún státar á hinn
bóginn af flestum sigrum á öllum mótum, stórum og smáum, 167. Þar
gnæfir Navratilova yfir Graf (107) og Williams (71). Alslemmumótin þykja
þó almennt betri mælikvarði á getu tennisleikara. Navratilova byrjaði að
keppa á mótum nítján ára, Williams fjórtán ára og Graf aðeins þrett-
án ára.
Williams er enn að, á 35. aldursári, en Graf settist í helgan
stein aðeins þrítug að aldri, árið 1999. Enda þótt Navratilova
hafi keppt á mótum til fimmtugs vann hún sinn síðasta al-
slemmutitil 34 ára gömul, árið 1990.
Williams og Graf þykja líkari leikmenn; ekki síst vegna
krafts og hraða en hafa ber í huga að leikurinn var mun
hægari meðan Navratilova var upp á sitt besta. Með nú-
tímaaðbúnaði og -þjálfun er þó aldrei að vita. Graf og Willi-
ams mættust í tvígang árið 1999 og unnu sinn leikinn hvor.
Skapgerð Williams þykir á hinn bóginn minna meira á Navr-
atilovu. Þær eru báðar háværar á velli og geta stokkið upp á
nef sér ef á móti blæs, en hvorki datt né draup af hinni öguðu
Graf. Hvorki í sigri né tapi.
„Ég hefði haft yndi af því að glíma við Serenu,“ var einu
sinni haft eftir Navratilovu. „Hefðum við mæst á hátindi ferils
okkar hefði ekki mátt á milli okkar sjá. Uppgjafir Serenu eru
svakalegar en með boltann í leik hefði ég alveg spjarað mig.“
orri@mbl.is
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2016
Reykjavíkurvegi 64, Hfj,
s. 555 1515, enjo.is
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Vinnuvistvænt
• Minni vatnsnotkun
Nýja ENJO vörulínan er
komin á markað
Ferskari, líflegri og enn meiri gæði
Komið í verslun okkar
og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
VINSÆL Serena Williams er ekki aðeins tekju-
hæsta íþróttakona í heimi um þessar mundir, held-
ur einnig ein sú vinsælasta. Hún er virkur þátttak-
andi í samkvæmislífinu vestan hafs og er þekkt fyrir
litríkan klæðnað, innan vallar sem utan. Undanfarin
ár hefur hún klæðst fötum úr eigin línu „Aneres“,
sem er, eins og glöggir hafa þegar áttað sig á, Se-
rena stafað aftur á bak. „Aneres“ hverfist ekki bara
um klæði, heldur líka skartgripi og töskur. Þá hefur
Serena séð um sérstaka línu fyrir tískuhúsið HSN
sem sýnd hefur verið á tískuvikunni í New York.
Williams hefur setið fyrir hjá ýmsum blöðum og
tímaritum og á síðasta ári varð hún fyrsta þel-
dökka íþróttakonan til að prýða forsíðu hins virta
tískutímarits Vogue. Undanfarin fimmtán ár hefur
Williams komið fram í fjölmörgum sjónvarpsþátt-
um og kvikmyndum, einkum sem hún sjálf. Þó á
hún að baki „leikin“ hlutverk í þáttum eins Law &
Order: Special Victims Unit, ER og Drop Dead
Diva.
Serena Williams mætir á frumsýningu heimildarmyndar
um sjálfa sig, „Serena“, í New York í síðasta mánuði.
AFP
Sjónvarpsleikur
og eigin tískulína
FJÖLHÆF Serena Williams
er ekki aðeins framúrskarandi í
einliðaleik í tennis, hún er jafn-
framt afar sigursæl í tvíliðaleik,
ásamt systur sinni, Venus, sem
er árinu eldri. Alls hafa syst-
urnar farið með sigur af hólmi á
fjórtán alslemmumótum. Fyrst
opna franska meistaramótinu
1999 og síðast á Wimbledon
um daginn. Það var fyrsti sigur
systranna á stórmóti í heil fjög-
ur ár – sem er langur tími á
þeim bænum. Þá vann Serena
tvenndarleik í tvígang á stór-
móti árið 1998, ásamt Hvít-
Rússanum Max Mirnyi.
Ekki síðri í
tvíliðaleik
Serena Williams sigurreif ásamt systur sinni, Venus, að afloknum úrslita-
leiknum í tvíliðaleik á Wimbledon. Þær hafa nú safnað fjórtán titlum.
AFP
ÆVI Serena Jameka Williams
fæddist í Saginaw í Michigan þann
26. september 1981 og verður því
35 ára í haust. Hún á eina alsystur,
Venus, og tvær hálfsystur, Lyndrea
og Isha Price. Þriðja hálfsystirin,
Yetunde Price, var myrt 2003.
Williams ólst að mestu upp í
Kaliforníu og Flórída og byrjaði
þriggja ára gömul að æfa tennis.
Foreldrar hennar, Richard Willi-
ams og Oracene Price, hafa alla
tíð verið aðalþjálfarar hennar en
fjölmargir aðrir hafa lagt hönd á
plóginn. Nú síðast Frakkinn Pat-
rick Mouratoglou.
Williams er ógift og barnlaus en
sló sér síðast upp, svo vitað sé,
með rapparanum og leikaranum
Common frá 2008-10.
Williams fagnar sigri á móti 2007.
Reuters
Ein systirin
var myrt
Serenaða fyrir
tennisspaða
Williams fagnar
Wimbledon-
titlinum með
sínu lagi um síð-
ustu helgi.
AFP
AFP
Serena Williams
tók við Wimble-
don-skildinum í
sjöunda sinn.
Williams á fullri ferð í úr-
slitaleiknum gegn hinni
þýsku Angelique Kerber.
Sigurinn var öruggur.
AFP