Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2016, Síða 40
Pierre Coulibeuf stendur í Verksmiðjunniá Hjalteyri við Eyjafjörð og veltir fyrirsér hráu sýningarsvæðinu. Hann er
franskur myndlistar- og kvikmyndagerðar-
maður og hafa verk hans verið sýnd á ótal lista-
og kvikmyndahátíðum um víða veröld, auk
þess sem hann er beðinn að setja upp sýningar
í virtustu listasöfnum heims. Nú er hann kom-
inn til Íslands í fyrsta skipti og reynir að sjá
fyrir sér hvar hann muni setja upp þær fjórar
kvikmyndainnsetningar sem hann ætlar að
sýna í Verksmiðjunni.
„Sýningarsalurinn er alltaf hluti af sýning-
unni,“ útskýrir Coulibeuf sem býr til leiknar en
ónarratífar kvikmyndir sem byggjast á og eru
innblásnar af verkum annarra listamanna. Inn-
setningarnar hans eru gjarna vídeóverk unnin
upp úr lengri kvikmyndum hans, sem hann
skýtur á 16 eða 35 mm filmu. Þessar myndir
eru listaverk þvert á hefðir listanna og á landa-
mærum listanna, þar sem hann gagnrýnir við-
tekin form þeirra og framsetningu sannleik-
ans.
Coulibeuf opnar sýninguna sína The World
is an Enigma í dag kl. 14. Sýningin stendur út
júlímánuð og er opin öllum alla daga kl. 14-17.
Erna dansar og öskrar
Coulibeuf er einnig kominn hingað til lands til
að taka upp nýja mynd hérlendis með Ernu
Ómarsdóttur dansara í aðalhlutverki. Couli-
beuf hefur unnið með mörgum frægum lista-
mönnum, þ. á m. Marinu Abramovic, og þetta
er ekki í fyrsta sinn sem þau Erna vinna sam-
an. Í dag, á opnunardegi sýningarinnar, verður
kvikmynd hans Crossover (2009) sýnd, en hana
gerði hann með Ernu og rokkbandinu PONI.
Coulibeuf er þegar byrjaður að taka upp
nýju myndina og hafa upptökur farið fram í
Listasafni Reykjavíkur og á Eyjafjarðarsvæð-
inu. „Myndin á að fjalla um hlutverk konunnar
í nútímasamfélagi og mun dansarinn Lovísa
Gunnarsdóttir einnig taka þátt í verkinu,“ út-
skýrir Coulibeuf. Flestöll verk hans frá síðari
árum eru innblásin af verkum dansara. Þegar
hann vann með belgíska danshöfundinum Jan
Fabre kynntist hann Ernu sem þá starfaði með
Fabre.
„Ég heillaðist strax af Ernu og þeim ótrú-
lega krafti sem hún býr yfir,“ segir Coulibeuf.
„Hún virðist hafa endalausa þörf til þess að
brjóta af sér hlekki,“ sem er einmitt í anda
Coulibeuf sem sífellt reynir á þanþol hinna ým-
issu listforma í verkum sínum. Honum finnst
íslenska landslagið upplagt til að kvikmynda
Ernu, þar sem það er þekkt fyrir þann und-
irliggjandi kraft sem þar býr. „Og Erna mun
ekki bara dansa heldur líka öskra,“ segir Couli-
beuf sem er greinilega mjög spenntur fyrir
samvinnunni með Ernu.
Tengsl manns og jarðar
„Kvikmyndaverkið skapar sinn eigin heim. Sá
heimur sem verkið kallar fram er ekki útfærsla
á raunveruleikanum heldur endurvarp hans,“
útskýrir Coulibeuf verkin sín og geta gestir
sýningarinnar rýnt í verkin með þetta að leið-
arljósi í verkunum fjórum á sýningunni.
„Hvert verk fyrir sig reynir að líkja eftir vissu
hugarástandi, hvöt eða hegðun, hugsun eða til-
finningu.“
Í Somewhere in between (2004/2006) er
rannsóknum danshöfundarins Meg Stuart snú-
ið yfir í skáldskap. Í The Warriors of Beauty
(2002/2006) sækir hann í leikhúsheim Jan
Fabre og leikur Erna í þeirra mynd. Í völund-
arhúsi leikur kona á brúðarkjól sér að því að af-
vegaleiða áhorfandann.
Verkið A Magnetic Space (2008) er innblásið
af veröld kanadíska danshöfundarins Benoît
Lachambre, og fer verkið inn á svið hins yfir-
náttúrulega, þar sem persónur myndarinnar
tengjast frumefnunum. Kvikmyndaverkið Le
Démon du passage (1995/2006) er hinsvegar
innblásin af heimi franska listamannsins og
ljósmyndarans Jean-Luc Moulène. Verk sem
er leikur á milli myndar á hreyfingu og kyrr-
myndar.
Sjálfur er Coulibeuf doktor í nútímabók-
menntum. „Það er nú kannski svolítið öf-
ugsnúið að ég sem er með bókmenntabak-
grunn skuli gera kvikmyndir með engum
söguþræði,“ bendir Coulibeuf á. Lokaritgerðin
hans fjallaði m.a. um rithöfundinn og lista-
manninn Pierre Klossowski og hefur hann á
listamannsferli sínum haft kenningar hans og
hugmyndir að leiðarljósi.
„Í gegnum þessi verk gefur sýningin það í
skyn að tengsl mannsins við jörðina séu vand-
kvæðum bundin og að jörðin sjálf sé óáreið-
anleg, óljós og erfið að henda reiður á. Kvik-
myndaverkin eru þrátt fyrir það ekki að reyna
að útskýra heiminn, einungis að endurvarpa
undarlegum kunnugleika,“ segir Coulibeuf að
lokum og bætir svo við að nýja samvinnuverk-
efnið þeirra Ernu verði sýnt í París að ári, „og
vonandi á Íslandi líka“.
Pierre Coulibeuf
myndlista- og kvik-
myndagerðarmaður
við tökur í Eyjafirði.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Endurvarp undarlegs kunnugleika
Franski lista- og kvikmyndagerðarmaðurinn Pierre Coulibeuf er staddur í Eyjafirði. Þar hefur hann unnið að nýju kvikmynda-
verki auk þess að opna í dag sýninguna The World is an Enigma í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Hildur Loftsdóttir hildurl@mbl.is
Úr kvikmyndum Coulibeuf: Le Démon du Passage (1995/2006), The Warriors of Beauty (2002/2006) og Somewhere in Between (2004/2006).
Leikstjórinn ræðir við leikonurnar sínar, dansarana Ernu og Lovísu á tökustað.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
LESBÓK Verndarvængur er yfirskrift tónleika í Akureyrarkirkju á morgun, sunnu-dag, kl. 17. Þar flytja Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísabet Waage hörpu-leikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti úrval af íslenskum sönglaga-
perlum ásamt þekktum verkum tónbókmenntanna.
Verndarvængur í Akureyrarkirkju
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2016