Barnablaðið - 14.08.2016, Blaðsíða 4
BARNABLAÐIÐ4
Af hverju viljið þið taka þátt í
hlaupinu?
Bjarki: Ég vissi um hlaupið í fyrra
en var of seinn að taka þátt í því
svo sagði mamma mér frá því að
þeir sem hlypu gætu styrkt samtök.
Það fannst mér líka sniðugt og
ákvað því strax að vera með á
næsta ári og hef því beðið í eitt ár
eftir hlaupinu. Ég hef líka mikinn
áhuga á hlaupum. Ég ákvað að
styrkja AHC-samtökin því ég þekki
stelpu sem er með þann sjúkdóm,
hún heitir Sunna Valdís. Það er
örugglega oft erfitt að vera krakki
og vera með alvarlegan sjúkdóm.
Svo greindist bróðir minn með
krabbamein og veit ég því svolítið
hvað það er að vera veikur.
Valdimar: Bjarki bað mig eiginlega
Bræðurnir Bjarki Sæmundsson 10 ára og
Valdimar Sæmundsson 16 ára ætla að hlaupa
til góðs í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka
sem fram fer laugardaginn 20. ágúst næstko-
mandi og styrkja í leiðinni góð málefni. Báðir
ætla þeir að hlaupa 10 kílómetra.
,,ÞAÐ ERU EKKI
ALLIR EINS
HEPPNIR OG ÉG“
Bræðurnir Bjarki
og Valdimar
eruð góðir vinir
og gera margt
saman.