Morgunblaðið - 22.08.2016, Síða 1
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2016
ÍÞRÓTTIR
Lokamótið Axel Bóasson úr Keili og Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR urðu um helgina stigameistarar í golfi.
Saga Traustadóttir sigraði í fyrsta sinn og fjórir erlendir kylfingar mættu til leiks á Securitasmótið 4
Íþróttir
mbl.is
HANDBOLTI
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Ég sagði við drengina fyrir leikinn
að við gætum unnið þetta og það
gerðum við, svo þetta er frábær dag-
ur fyrir okkur,“ sagði Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari Dana í handknattleik, við
danska fjölmiðla eftir frækinn 28:26
sigur á Frökkum í úrslitum á Ól-
ympíuleikunum í gær. Guðmundur
og drengirnir hans fengu þar með
gullverðlaunin í handknattleik karla
og er þetta í fyrsta sinn sem Danir
ná því og drengirnir hans Guð-
mundar voru því að vonum mjög
sáttir við þjálfarann sinn þegar þeir
tóku við gullmedalíunum í gær.
Þetta er fyrsta gull danska lands-
liðsins í handknattleik á Ólympíu-
leikum en Guðmundur fékk hins
vegar ekki verðlaunapening í gær
frekar en í Peking 2008 þegar hann
stýrði íslenska liðinu til silfur-
verðlauna, því samkvæmt reglum
leikanna eru það einungis leikmenn
sem fá verðlaunapeninga en hvorki
þjálfari liðsins né aðrir sem standa
að liðinu.
Danska liðið var tveimur mörkum
yfir í hálfleik og náði mest fimm
marka forystu. „Þetta var frábært.
Við tókum ákveðna áhættu í upphafi
leiks sem heppnaðist og við komum
Frökkum í opna skjöldu. Síðan var
það vörnin hjá okkur í seinni hálf-
leik, hún var algjörlega stórkostleg
og lykillinn að þessum sigri,“ sagði
Guðmundur.
Það má segja að hann hafi unnið
stóran persónulegan sigur í gær því
síðan hann tók við danska landslið-
inu hefur hann farið með liðið á tvö
stórmót og endaði þar í fimmta og
sjötta sæti. Það var danskurinn ekki
ánægður með og hefur Guðmundur
verið gagnrýndur harkalega og þá
sérstaklega fyrir varnarleikinn sem
hann lætur liðið leika. Í gær small
hann svo sannarlega saman hjá Guð-
mundi og greinilegt að hann hefur
haldið sínu striki þrátt fyrir harða
gagnrýni. Það er að sjálfsögðu líkt
honum því Guðmundur hefur jafnan
verið samkvæmur sjálfum sér. Í
dönskum fjölmiðlum er hann nú
hetja og bæði BT og Ekstra Bladet
gefa honum hæstu mögulega ein-
kunn fyrir frammistöðuna. Extra
Bladet segir í fyrirsögn: GULL-
mundur var meistari herkænsk-
unnar.
Franska liðið var talið mun sigur-
stranglegra fyrir leikinn, enda hafði
liðið tekið ólympíugullið í síðustu tvö
skipti, en danska liðið kom þó tölu-
vert á óvart á mótinu og vissu því
Danir ekki við hverju var að búast í
dag. En Guðmundur er slyngur
þjálfari og hann gerði tvennt fyrir
þennan leik, nýtti sér að vera með
sjö menn í sókninni, sem gekk vel,
og hélt sig við sannfæringu sína um
hvernig vörn liðið ætti að spila. Það
gekk fullkomlega.
„Ég er að upplifa svo mikið af
ótrúlegum tilfinningum núna. Ég
var auðvitað mjög spenntur og þetta
var mjög jafn leikur, þó svo við höf-
um verið fimm mörkum yfir, þá
komu Frakkarnir til baka. Það er
ekki auðvelt að vinna þá en við vörð-
umst frábærlega í seinni hálfleik og
ég held að ég hafi aldrei séð þetta
danska lið verjast betur en í dag,“
sagði Guðmundur.
Danir eru að vonum sáttir við liðið
sitt og Guðmund og Friðrik krón-
prins Dana gerði sér ferð í búnings-
herbergi liðsins eftir leikinn til að
óska því til hamingju og þá fékk
Guðmundur konunglegt faðmlag.
Nokkrar sveiflur voru í fyrri hálf-
leiknum og liðin skiptust á um for-
ystuna, en Danir voru 16:14 yfir í
hálfleik. Liðið hélt undirtökunum í
síðari hálfleik með frábærum
varnarleik og hafði um tíma fimm
marka forystu. Frakkar réttu aðeins
sinn hlut en náðu aldrei að ógna sigri
Dana.
AFP
Meistari Guðmundur Þórður Guðmundsson sést hér hugsi í úrslitaleiknum í gær. Eftir harða gagnrýni á vörn liðsins keppast Danir nú við að hrósa henni í
hástert og kalla Guðmund þjálfara GULLmund og segja hann meistara herkænskunnar. Mikill og stór persónulegur sigur hjá Guðmundi.
Gull hjá Guðmundi
Danir lögðu Frakka í úrslitum Mikill persónulegur sigur hjá þjálfaranum
Stórkostlegur varnarleikur og sjö útileikmenn komu Frökkum í opna skjöldu
Caster Semenya
fagnaði sigri í
800 metra hlaupi
kvenna á Ólymp-
íuleikunum í Ríó
á síðasta kvöldi
frjálsíþrótta-
keppni leikanna.
Aníta Hinriks-
dóttir keppti í
undanrásum 800
metra hlaupsins
og setti þá nýtt Íslandsmet, en hún
komst ekki áfram í undanúrslit. Átta
keppendur hlupu í úrslitunum í
kvöld og var Semenya talin sigur-
stranglegust og hún stóð undir
væntingum með því að vinna örugg-
an sigur á nýju, suðurafrísku meti,
eða 1:55,28 mínútu.
Francine Niyonsaba frá Búrúndí
varð önnur og Margaret Wambui frá
Keníu tók bronsið. sindris@mbl.is
Semenya
vann 800 m
Aníta
Hinriksdóttir
Knattspyrnuráð
karlaliðs ÍBV og
Bjarni Jóhanns-
son, sem þjálfað
hefur meist-
araflokk karla
hjá félaginu á yf-
irstandandi leik-
tíð, hafa komist
að samkomulagi
um starfslok
Bjarna. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu sem ÍBV
sendi frá sér um helgina.
Fram kemur í yfirlýsingunni að
starfslokin hafi verið að ósk Bjarna.
Enn fremur kemur þar fram að Al-
freð Elías Jóhannsson, sem verið
hefur aðstoðarþjálfari Bjarna á
tímabilinu, og Ian David Jeffs,
þjálfari kvennaliðs ÍBV, muni taka
við stjórn liðsins fyrst um sinn.
ÍBV er sem stendur í 10. sæti
deildarinnar með 17 stig. Liðið er í
fallhættu en þó fjórum stigum fyrir
ofan fallsæti. sport@mbl.is
Bjarni sagði
starfinu lausu
Bjarni
Jóhannsson
Sigurjón Kristjánsson var í liði
Vals sem skellti sterku liði Mónakó 1:0
í Evrópukeppni meistaraliða á Laug-
ardalsvellinum síðsumars 1988.
Sigurjón fæddist 1962. Hann lék
með Keflavík, Val, Breiðabliki og Vík-
ingi R. hérlendis en erlendis með Her-
isau, Campinese og Weddinghofen.
Alls lék hann 210 leik í efstu deild og
skoraði 64 mörk. Sigurjón var at-
kvæðamikill með Val undir lok 9. ára-
tugarins þegar liðið vann bæði Ís-
lands- og bikarmeistaratitla. Var hann
útnefndur knattspyrnumaður ársins á
umræddu ári 1988 og varð þá einnig
markakóngur.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
DAGSINS