Morgunblaðið - 22.08.2016, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2016
GOLF
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Axel Bóasson úr Keili og Ragnhildur
Kristinsdóttir úr GR urðu um helgina
stigameistarar í golfi en lokamót Eim-
skipsmótaraðarinnar, Securitasmótið,
fór fram á Grafarholtsvelli.
Talsverð spenna var hjá báðum
kynjum í baráttu kylfinganna um
stigameistaratitilinn. Axel hefur leikð
mjög stöðugt golf í sumar og tókst að
verja stigameistaratitil sinn frá því í
fyrra. Í lokamótinu í Grafarholti var
hann á átta höggum undir pari eftir
fyrstu tvo hringina og með þriggja
högga forystu fyrir síðasta daginn og
það dugði honum til sigurs á loka-
mótinu.
„Þetta var bara fínt hjá mér í dag
þó svo mér fyndist ég eiga að geta
púttað betur, en ég var í fullt af fugla-
færum í dag, en ég kvarta ekki. Verð-
launaféð er gríðarlega mikil búbót og
hjálpar mér mikið,“ sagði Axel eftir að
sigurinn var í höfn.
Hann var að vonum ánægður með
sumarið. „Ég er búinn að vera rosa-
lega stöðugur hér heima, en ekki al-
veg eins erlendis. Þetta er í það
minnsta á réttri braut hjá mér og ég
hlakka til að fara út aftur,“ sagði
meistarinn, sem fer út á morgun og
keppir á tveimur mótum áður en hann
fer í úrtökumótið fyrir evrópsku
mótaröðina í september.
Fjórir jöfnuðu vallarmetið
Þegar Axel varð stigameistari í
fyrra fékk hann ekki svona verðlaun
enda mega áhugamenn ekki taka við
nema 100.000 krónum. „Sem betur fer
er ég atvinnumaður, en það er alltaf
gaman að vinna, líka sem áhugamað-
ur þó svo að verðlaunaféð sé ekki eins
mikið.“
Fjórir kylfingar jöfnuðu vallar-
metið í Grafarholtinu þegar þeir léku
hringinn á 66 höggum, eða fimm
höggum undir pari. Á öðrum hring
voru það Axel og Bernhard Reiter og
á lokahringnum kom Björn Óskar
Guðjónsson úr GM inn á 66 höggum,
fékk fimm fugla og 13 pör og Har-
aldur Franklín Magnús úr GR lék
þann leik eftir á lokadeginum. Hann
var kominn fimm undir par eftir níu
holur og bætti við einum fugli á 12.
braut og þannig hélst staðan næstu
fjórar holur og allt útlit fyrir að vall-
armetið yrði slegið. En hann fékk
skolla á 17. brautinni og endaði því á
66 höggum.
Spennandi í kvennaflokki
Í kvennaflokki var ekki síður
spenna. Saga Traustadóttir úr GR
sigraði í mótinu á átta höggum undir
pari, en hún lék á einu yfir pari í gær
líkt og Ragnhildur Kristinsdóttir úr
GR sem varð í öðru sæti ásamt Nínu
Björk Geirsdóttur úr GM.
Annað sætið dugði Ragnhildi til að
verða stigameistari og hefði hún feng-
ið hálfa milljón króna væri hún at-
vinnumaður. „Reglurnar segja víst að
maður þarf að gerast atvinnumaður
fyrir keppnistímabilið, þannig að mað-
ur lætur þau verðlaun sem maður fær
duga,“ sagði Ragnhildur kampakát
eftir mótið.
Hún hyggst ekki reyna við atvinnu-
mennskuna alveg á næstunni. „Ég er
að fara á síðasta ár í Versló og síðan
ætla ég að fara þessa hefðbundnu ís-
lensku leið, fara í nám til Bandaríkj-
anna og spila golf með því og eftir það
huga ég að atvinnumennsku,“ sagði
Ragnhildur.
Hún var að vonum ánægð með
spilamennskuna hjá sér í gær og í
sumar. „Þetta hefur verið mjög fínt,
ég hefði reyndar viljað setja mörg
stutt pútt, sem ég missti á öðrum
hring. Nú eru tvö mót eftir hér heima
og síðan förum við í sveitakeppni
klúbba í lok september,“ sagði stiga-
meistarinn.
Saga var líka ánægð með sinn
fyrsta sigur á mótaröð þeirra full-
orðnu. „Ég er mjög ánægð með þetta
og fínt að fá einn sigur svona í lokin til
að gefa manni kraft fyrir næsta tíma-
bil,“ sagði hún, en efaðist um að hún
næði að keppa á þeim tveimur mótum
sem eftir eru hér heima.
Fjórir erlendir kylfingar
Fjórir erlendir kylfingar voru með-
al keppenda á lokamótinu og er það,
að því er næst verður komist, í fyrsta
sinn sem erlendir kylfingar taka þátt í
móti á íslensku mótaröðinni.
Kylfingar þessir keppa á sömu
mótaröð og Þórður Rafn Gissurarson
úr GR keppir á og þekkjast þeir ágæt-
lega og er það ástæða þess að þeir
skelltu sér í mót til Íslands.
Bernhard Reiter frá Austurríki
náði lengst þeirra, en hann endaði í 3.
til 5. sæti ásamt Haraldi Franklín og
Þórði Rafni, allir á sex undir pari.
Richard O’Donovan kom næstur í 12.-
13. sæti á tveimur höggum yfir pari,
Moritz Mayerhauser var á sex yfir
pari í 19. sæti en Liam Rominson
hætti leik eftir sex holur á síðasta
hringnum.
Ljósmynd/GSÍ
Stöðugur Axel Bóasson úr Keili hefur leikið vel hér heima í sumar og verið mjög stöðugur í leik sínum. Það skilaði honum titlinum annað árið í röð.
Axel nældi í fína búbót
Fékk 750.000 kr. fyrir sigur á lokamótinu og stigameistaratitilinn Ragn-
hildur Kristinsdóttir lét sér nægja annað sætið sem dugði til stigameistaratitils
Ljósmynd/GSÍ
Örugg Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR lék af öryggi um helgina og varð í
öðru sæti á lokamótinu og það dugði henni til þess að verða stigameistari.
Pepsi-deild karla
Víkingur Ó. – Fjölnir ........................... 2:2
KR – Breiðablik.................................... 1:1
Staðan:
FH 15 9 4 2 21:9 31
Fjölnir 16 8 3 5 32:19 27
Stjarnan 15 8 3 4 28:20 27
Breiðablik 16 8 3 5 20:13 27
KR 16 6 5 5 19:16 23
Valur 15 6 4 5 30:18 22
ÍA 15 7 1 7 20:25 22
Víkingur R. 15 6 3 6 20:23 21
Víkingur Ó. 16 5 4 7 19:27 19
ÍBV 15 5 2 8 14:18 17
Fylkir 15 3 4 8 16:25 13
Þróttur R. 15 2 2 11 11:37 8
Inkasso-deild karla
Haukar – Leiknir F. ............................ 1:0
Haukur Ásberg Hilmarsson 75.
Grindavík – HK.................................... 4:0
Andri Rúnar Bjarnason 80., 90., Alex-
ander Veigar Þórarinsson 39., Magnús
Björgvinsson 90.
Fram – Keflavík................................... 1:0
Ivan Bubalo 60.
Huginn – Þór........................................ 1:2
Marko Nikolic 61. – Ármann Pétur Æv-
arsson 10., Gunnar Örvar Stefánsson 79.
(víti).
KA – Leiknir R. ................................... 3:1
Hallgrímur Mar Steingrímsson 16., 18.
(víti), Juraj Grizelj 25. – Atli Arnarson
55.
Staðan:
Grindavík 17 11 4 2 44:14 37
KA 17 11 3 3 29:12 36
Keflavík 17 6 8 3 24:18 26
Þór 17 8 2 7 23:26 26
Leiknir R. 17 7 3 7 17:23 24
Haukar 17 7 2 8 25:30 23
Selfoss 17 5 7 5 22:21 22
Fram 17 6 4 7 20:25 22
HK 17 4 6 7 22:32 18
Fjarðabyggð 17 3 8 6 22:24 17
Huginn 17 4 4 9 14:23 16
Leiknir F. 17 3 3 11 19:33 12
2. deild karla
Ægir – Höttur ...................................... 2:1
Jonathan Hood 62., 67. – Brynjar Árna-
son 4.
Afturelding – KF ................................. 4:0
Arnór Breki Ásþórsson 8. 58., Wentzel
Steinarr R Kamban 28., Fernando
Garcia Castellanos 77.
Völsungur – Vestri .............................. 2:2
Jóhann Þórhallsson 15., Jóhann Þór-
hallsson 32. (víti) – Aurelien Norest 24.,
Sólon Breki Leifsson 36.
Sindri – Grótta..................................... 1:2
Ekrem Hodzic 54. – Pétur Theódór
Árnason 25., Enok Eiðsson 90.
Magni – Njarðvík................................. 2:1
Marko Blagojevic 45. (víti), Kristinn Þór
Rósbergsson 86. – Patrik Snær Atlason
14.
Staðan:
ÍR 17 14 1 2 34:10 43
Afturelding 17 11 2 4 32:16 35
Grótta 17 10 5 2 24:10 35
Magni 17 8 5 4 29:21 29
Vestri 17 7 4 6 31:25 25
Sindri 17 5 5 7 30:23 20
Njarðvík 17 5 5 7 24:25 20
Höttur 17 5 5 7 23:27 20
Völsungur 17 3 9 5 21:29 18
KV 17 5 2 10 25:35 17
Ægir 17 4 2 11 18:36 14
KF 17 1 3 13 9:43 6
3. deild karla
KFS – Dalvík/Reynir ........................... 1:1
Tindastóll – Víðir.................................. 2:0
Þróttur V. – Einhverji ......................... 2:2
Staðan:
Tindastóll 14 13 0 1 33:8 39
Víðir 14 10 1 3 30:18 31
Einherji 14 7 2 5 28:23 23
Kári 14 7 1 6 30:25 22
Þróttur V. 14 6 3 5 26:21 21
Reynir S. 14 6 2 6 21:22 20
Vængir Júpít. 14 6 2 6 21:28 20
Dalvík/Reynir 14 2 4 8 15:25 10
KFR 14 2 3 9 17:30 9
KFS 14 1 2 11 16:37 5
4. deild karla C
Kormákur/Hvöt – Stál-úlfur.................0:2
Geisli A – Augnablik ...........................0:11
1. deild kvenna C
Fjarðab./Höttur/Leiknir – Hamrarnir 0:0
Einherji – Völsungur.............................3:0
Sindri – Tindastóll .................................3:3
Staðan:
Tindastóll 8 6 1 1 35:12 19
Hamrarnir 10 5 1 4 11:9 16
Sindri 10 5 1 4 18:17 16
Einherji 10 5 1 4 17:19 16
FHL 9 3 2 4 10:13 11
Völsungur 9 1 0 8 7:28 3
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Pepsi-deild karla:
Kaplakriki: FH – Stjarnan ........................18
Víkingsvöllur: Víkingur R. – ÍBV .............18
Flórídanavöllur: Fylkir – ÍA .....................18
Þróttarvöllur: Þróttur R. – Valur .............20
Í KVÖLD!