Morgunblaðið - 22.08.2016, Side 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2016
Í ÓLAFSVÍK
Hjörvar Ólafsson
hjorvaro@mbl.is
Leikur Víkings Ólafsvíkur og Fjölnis í
16. umferð Pepsi-deildar karla var ansi
viðburðaríkur. Niðurstaðan eftir mikla
baráttu og skemmtilegan leik þar sem
fjögur mörk og eitt rautt spjald litu
dagsins ljós var 2:2 jafntefli sem
gagnast báðum liðunum raunar ekki
nægjanlega vel í þeirri baráttu sem
þau eru í sitt á hvorum enda töflunnar.
Víkingur hafði tapað síðustu fimm
leikjum sínum og gert jafntefli í leikn-
um þar á undan þegar liðið mætti til
leiks í gærkvöldi. Það var hins vegar
ekki að sjá á spilamennsku Víkings að
dræm stigasöfnun í leikjunum á undan
hefði áhrif á leikmenn liðsins, en spila-
mennska heimamanna var glimrandi
góð fyrsta hálftíma leiksins.
Kenan Turudija kom Víkingi yfir
strax á sjöundu mínútu leiksins eftir
góðan undirbúning frá Hrvoje Tokic.
Leikurinn jafnaðist hins vegar eftir
því sem leið á fyrri hálfleikinn, en á
síðustu átta mínútum fyrri hálfleiks
var nóg um að vera. Marcus Solberg
jafnaði metin á 37. mínútu leiksins
þegar hann nýtti sér sofandahátt í
vörn Víkings og lagði boltann í netið.
Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði
síðan keimlíkt mark hinum megin þeg-
ar hann nýtti sér klaufagang Hans
Viktors Guðmundsson og kom Víkingi
yfir á nýjan leik.
Róðurinn þyngdist hins vegar fyrir
seinni hálfleikinn hjá leikmönnum Vík-
ings þegar Emir Dokara var vísað af
velli með rauðu spjaldi fyrir háskaleik
skömmu fyrir hálfleikinn. Þorvaldur
Árnason, dómari leiksins, mat svo að
Dokara hefði sparkað í höfuðið á Mart-
in Lund Pedersen, leikmanni Fjölnis,
og vísaði honum af velli með rauðu
spjaldi.
Leikmenn Víkings lögðust í skot-
grafirnar í seinni hálfleik og freistuðu
þess að halda forystunni og voru ná-
lægt því að takast ætlunarverk sitt.
Þung sókn Fjölnis bar hins árangur á
74. mínútu leiksins þegar Marcus Sol-
berg skoraði sitt annað mark í leiknum
og tryggði Fjölni stig.
Eins og áður sagði fá liðin vissulega
stig í farteskið eftir þennan leik, en
Víkingur hefði viljað uppskera laun
erfiðis síns með þremur stigum sem
hefði komið liðinu lengra frá fallsvæð-
inu og Fjölnir nagar sig líklega í hand-
arbökin fyrir að hafa ekki nýtt sér liðs-
muninn og minnkað forskot FH á
toppi deildarinnar niður í tvö stig.
Bæði lið
nokkuð ósatt
Ljósmynd/Alfons
Brottvísun Emir Dokara gengur af velli í gærkvöldi.
Góð spilamennska og mikil barátta
hjá Víkingi Þolinmæðisverk hjá Fjölni
Guðni Valur Guðnason varð í gærmorgun Norðurlandameist-
ari í kringlukasti í flokki 23 ára og yngri, en mótið fór fram í
Espoo í Finnlandi um helgina.
Sigurkast Guðna Vals var 61,01 metrar, en hann átti einnig
næstlengsta kastið í keppninni, 60,74 metra.
Guðni Valur fetaði þar með í spor Örnu Stefaníu Guð-
mundsdóttur sem varð Norðurlandameistari í 400 m grinda-
hlaupi á laugardaginn
Arna Stefanía kom í mark á 56,08 sekúndum sem er undir
óstaðfestum lágmarksárangri fyrir heimsmeistaramót full-
orðinna í frjálsíþróttum sem fram fer næst sumar. Tími Örnu
Stefaníu kemur henni í annað sætið á afrekalista íslenskra
kvenna í 400 m grindahlaupi frá upphafi. Aðeins Íslandsmethafinn, Guðrún Arn-
ardóttir, á betri tíma en Íslandsmet hennar frá árinu 2000 er 54,37 sekúndur.
Hilmar Örn Jónsson varð annar í sleggjukasti á mótinu, en hann tryggði sér
silfrið með því að kasta 66,15 metra. hjorvaro@mbl.is
Guðni og Arna hlutskörpust
Guðni Valur
Guðnason
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, og félagar
hans í svissneska meistaraliðinu Basel sigruðu Lugano 4:1 í
fimmtu umferð svissnesku úrvalsdeildarinnar í gær.
Birkir var að sjálfsögðu á sínum stað í byrjunarliði Basel
en hann lék allan leikinn á hægri vængnum.
Basel var einu marki yfir í hálfleik en skoraði þrjú mörk
með stuttu millibili í byrjun síðari hálfleiks áður en Lugano
minnkaði muninn.
Þetta var fimmti sigur Basel í deildinni af fimm mögu-
legum en liðið er í efsta sæti svissnesku deildarinnar sem
stendur. Það kemur lítið á óvart enda er Basel nítjánfaldur
svissneskur meistari og hefur liðið unnið tíu meistaratitla
síðan árið 2004.
Birkir var fastamaður í liði Basel þegar liðið varð svissneskur meistari á
síðasta tímabili, en það var jafnframt fyrsta tímabil Birkis innan raða Basel.
johannes@mbl.is
Öruggur sigur Birkis og félaga
Birkir
Bjarnason
England
Swansea – Hull ................................... 0:2
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir Swansea.
Burnley – Liverpool ............................2:0
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
sem varamaður hjá Burnley á 56. mín-
útu.
West Ham – Bournemouth ...................1:0
Sunderland – Middlesbrough ...............1:2
Leicester – Arsenal ...............................0:0
Tottenham – Cr. Palace ........................1:0
Watford – Chelsea.................................1:2
WBA – Everton .....................................1:2
Stoke – Manch. City..............................1:4
Manch. Utd – Southampton..................2:0
Staðan:
Manch. City 2 2 0 0 6:2 6
Manch. Utd 2 2 0 0 5:1 6
Hull City 2 2 0 0 4:1 6
Chelsea 2 2 0 0 4:2 6
Everton 2 1 1 0 3:2 4
Middlesbrough 2 1 1 0 3:2 4
Tottenham 2 1 1 0 2:1 4
Burnley 2 1 0 1 2:1 3
WBA 2 1 0 1 2:2 3
West Ham 2 1 0 1 2:2 3
Liverpool 2 1 0 1 4:5 3
Swansea 2 1 0 1 1:2 3
Arsenal 2 0 1 1 3:4 1
Watford 2 0 1 1 2:3 1
Leicester 2 0 1 1 1:2 1
Southampton 2 0 1 1 1:3 1
Stoke 2 0 1 1 2:5 1
Sunderland 2 0 0 2 2:4 0
Cr. Palace 2 0 0 2 0:2 0
Bournemouth 2 0 0 2 1:4 0
B-deild:
Fulham – Cardiff ................................ 2:2
Aron Einar Gunnarsson lék allan leik-
inn með Cardiff.
Bristol City – Newcastle..................... 0:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með Bristol City.
Birmingham – Wolves ........................ 1:3
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn
og skoraði síðasta mark Wolves.
Staðan:
Huddersfield 4 3 1 0 7:4 10
Brighton 4 2 2 0 8:2 8
Wolves 4 2 2 0 7:3 8
Norwich 4 2 2 0 6:2 8
Fulham 4 2 2 0 6:4 8
QPR 4 2 0 2 7:5 6
Newcastle 4 2 0 2 6:4 6
Brentford 4 2 0 2 4:3 6
Barnsley 4 2 0 2 8:8 6
Bristol City 4 2 0 2 4:4 6
Nottingham F. 4 2 0 2 8:10 6
Aston Villa 4 1 2 1 4:2 5
Ipswich 4 1 2 1 5:5 5
Birmingham 4 1 2 1 4:5 5
Cardiff 4 1 2 1 4:5 5
Derby 4 1 2 1 1:2 5
Wigan 4 1 1 2 8:7 4
Burton 4 1 1 2 9:9 4
Leeds 4 1 1 2 4:6 4
Sheffield Wed. 4 1 1 2 2:5 4
Reading 4 1 1 2 4:8 4
Rotherham 4 1 1 2 3:8 4
Preston 4 1 0 3 3:4 3
Blackburn 4 0 1 3 4:11 1
C-deild:
Bolton – Fleetwood ............................ 2:1
Eggert Gunnþór Jónsson lék í 60 mín-
útur fyrir Fleetwood.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 1. umferð:
Ravensburg – Augsburg .....................0:2
Alfreð Finnbogason var tekinn af velli
hjá Augsburg á 69. mínútu.
Lotte – Werder Bremen ..................... 2:1
Aron Jóhannsson hjá Werder Bremen
er frá keppni vegna meiðsla.
Viktoria Köln – Nürnberg ................. 1:1
Rúrik Gíslason kom inn á hjá Nürn-
berg á 96. mínútu. Nürnberg áfram eftir
vítakeppni.
Wiche Flensburg – Holsten Kiel ....... 1:1
Eiður Aron Sigurbjörnsson er á mála
hjá Kiel.
Spánn
Atlético Madrid – Deportivo Alavés ....1:1
Real Sociedad – Real Madrid...............0:3
Sporting Gijón – Athletic Bilbao..........2:1
Sevilla – Espanyol .................................6:4
Granada – Villarreal..............................1:1
Barcelona – Real Betis .........................6:2
La Coruña – Eibar ................................2:1
Málaga – CA Osasuna ...........................1:1
B-deild:
Real Valladolid – Real Oviedo .......... 1:0
Diego Jóhannesson var á bekknum hjá
Oviedo.
Ítalía
Roma – Udinese .................................. 4:0
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn
fyrir Udinese.
Atalanta – Lazio ....................................3:4
Bologna – Crotone.................................1:0
Chievo – Inter Mílanó ...........................2:0
Pescara – Napoli....................................2:2
Empoli – Sampdoria..............................0:1
Genoa – Cagliari ...................................3:1
Palermo – Sassuolo ...............................0:1
AC Milan – Torino ...............................3:2
Juventus – Fiorentina ...........................2:1
Roma – Udinese.....................................4:0
KNATTSPYRNA
Ólafsvíkurvöllur, Pepsi-deild karla, 16.
umferð, sunnudag 21. ágúst 2016.
Skilyrði: Rjómablíða í Ólafsvík. Stillt,
úrkomulaust og 15 gráðu hiti. Völlurinn
er í fínu ásigskomulagi.
Skot: Víkingur 5 (4) – Fjölnir 12 (5).
Horn: Víkingur 1 – Fjölnir 4.
Víkingur Ó.: (4-3-3) Mark: Cristian
Martinez. Vörn: Emir Dokara, Aleix
Egea, Denis Kramar, Pontus Norden-
berg. Miðja: Egill Jónsson, Kenan
Turudija, Martin Svensson (William
Domingues 80). Sókn: Alfreð Már
Hjaltalín, Hrvoje Tokic (Pape Mamadou
Faye 88), Þorsteinn Már Ragnarsson
(Björn Pálsson 90).
Fjölnir: (4-3-3) Mark: Þórður Ingason.
Vörn: Viðar Ari Jónsson, Tobias Sal-
quist, Hans Viktor Guðmundsson,
Mario Tadejevic. Miðja: Igor Jugovic,
Ólafur Páll Snorrason, Gunnar Már
Guðmundsson (Guðmundur K. Guð-
mundsson 63). Sókn: Þórir Guð-
jónsson (Ægir Jarl Jónasson 86), Mar-
cus Solberg, Martin Lund Pedersen
(Ingimundur N. Óskarsson 63).
Dómari: Þorvaldur Árnason – 7.
Áhorfendur: 410.
Víkingur Ó – Fjölnir 2:2
Stuðningsmenn Liverpool höfðu
ástæðu til að vera bjartsýnir eftir góð-
an sigur á Arsenal í upphafsleik ensku
úrvalsdeildarinnar, en voru slegnir
niður í jörðina eftir óvænt 2:0 tap
gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og
félögum í Burnley á Turf Moor-
vellinum á laugardaginn.
Lærisveinar Jürgens Klopp, sem
hlupu saman rúmlega 117 kílómetra í
4:3 útisigri á Arsenal, sem er nýtt
met, voru mun meira með boltann á
móti Burnley en tókst ekki að skapa
almennileg marktækifæri.
Heimamenn komust í forystu strax
á 2. mínútu leiks með frábæru marki
Sam Vokes eftir sendingu frá Andre
Gray sem var síðan sjálfur á skot-
skónum á 37. mínútu. Leikmönnum
Liverpool tókst ekki að grafa sig upp
úr holunni og 2:0 tap staðreynd. Jó-
hann Berg Guðmundsson, sem gekk
til liðs við Burnley í sumar, kom inn á
sem varamaður á 56. mínútu.
Vinna fyrir Klopp
Lið Liverpool virðist eiga erfitt með
að brjóta niður vörn sem stillir sér
upp eins og Burnley gerði um helgina.
Með níu varnarmenn á milli boltans
og markvarðar Burnely var það ráð
oftast gripið að skjóta af löngu færi
sem gekk ekki í þetta sinn.
Ljóst er að Klopp mun hafa í ýmsu
að snúast áður en Liverpool sækir
Tottenham Hotspur heim 27. ágúst í
þriðja útileik liðsins í jafnmörgum
leikjum. Fyrsti leikur rauða hersins á
Anfield er síðan 10. september á móti
Englandsmeisturunum.
Titilvörn Leicester City hefur ekki
farið eins vel af stað og Ranieri hafði
vonað. Eftir markalaust jafntefli við
Arsenal á heimavelli í gær sitja Eng-
landsmeistararnir í 15. sæti með eitt
Leikmenn Liverpool bitlaus-
ir á móti þéttu varnarliði
Negla Andre
Gray hleður í
skotið sem kom
Burnley í
forystu gegn
Liverpool á
2. mínútu leiks.
1:0 Kenan Turudija7. skoraði með
skalla af stuttu færi eftir
hárnákvæma fyrirgjöf frá
Hrvoje Tokic.
1:1 Marcus Solbergslapp einn í gegn-
um vörn Víkings Ó. og
lagði boltann framhjá
Martinez.
2:1 Þorsteinn MárRagnarsson fékk
sendingu innfyrir vörn
Fjölnis og skoraði með
föstu og góðu skoti.
2:2 Marcus Solberg74. með skalla af
stuttu færi eftir fasta og
hnitmiðaða aukaspyrnu
Þóris Guðjónssonar.
I Gul spjöld:Hans Viktor
(Fjölni) 18. (brot) Egea
(Víkingi Ó.) 35. (brot), Eg-
ill (Víkingi Ó) 69. (brot).
I Rauð spjöld: Dokara (Víkingi
Ó.) 44. (brot)
MM
Þorsteinn M. Ragnarsson
(Víkingi Ó).
Marcus Solberg (Fjölni)
M
Cristian Martinez (Vík-
ingi Ó)
Kenan Turudija (Vikingi
Ó)
Alfreð Már Hjaltalín (Vík-
ingi Ó)
Tobias Salquist (Fjölni)
Igor Jugovic (Fjölni)
Viðar Ari Jónsson (Fjölni)