Fréttablaðið - 05.01.2017, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —4 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 5 . j a n ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
skoðun Almar Guðmundsson
skrifar um gos. 18
sport Sigurgöngu Chelsea lauk í
gær eftir tap fyrir Tottenham. 32
Menning Hannes Óli Ágústsson
sá eitt sinn föður sinn í kven-
mannsfötum. 38
lÍFið Vinsælustu leikföngin
síðustu 30 ár. 46
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
FrÍtt
ÚTSALA
HVAÐA NÚMER
NOTAR ÞÚ?
Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
16BLS
BÆKLINGUR
4BLS
BÆKLINGUR
Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2
Viðskipti Fjárfestahópurinn sem
keypti fimm prósenta hlut í Sím-
anum í umdeildri sölu Arion banka
í ágúst 2015 getur nú selt bréfin.
Söluhömlum var aflétt 1. janúar en
við opnun markaða þann dag nam
gengi hlutabréfa Símans 3,13 krón-
um. Virði þeirra hafði þá hækkað
um 24 prósent síðan hópurinn
keypti þau á genginu 2,518.
Arion banki var harðlega gagn-
rýndur fyrir söluna enda fékk hóp-
urinn að kaupa bréfin í lokuðu sölu-
ferli. – hg / sjá síðu 12
Símabréf til sölu
Í lausu lofti „Þetta er töluvert mikið gler,“ segir Sigurbjörn Gestur Sævarsson, sigmaður hjá Sigmönnum ehf.,
en hann sést hér vinstra megin á myndinni. Hægra megin er Ingvar kollegi hans. Ár hvert þarf að þrífa glugga
Hörpunnar bæði að innan og utan. Sigurbjörn og félagar þrífa glugga í um 45 daga árlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
saMFélag „Það er hálf óraunhæft að
einhverjum detti þetta í hug,“ segir
Silja Unnarsdóttir, einn eigenda
hryssanna tveggja sem grunur leikur
á að hafi orðið fyrir kynferðislegri
misnotkun á milli jóla og nýárs. Silja
er dýralæknir og áttaði sig fljótt á
því hvernig í pottinn var búið þegar
hún kom í hesthúsið.
Matvælastofnun hefur kært til
lögreglu meinta kynferðislega mis-
notkun á tveimur hrossum. Á vett-
vangi fannst meðal annars tómur
brúsi undan sleipiefni.
Eiginmaður Silju kom og vitjaði
um hrossin að morgni þriðjudagsins
27. desember. Þá sá hann kassa innst í
einni stíunni sem átti ekki að vera þar.
Hann fjarlægði kassann úr stíunni og
kláraði morgunverkin. Um kvöldið
þegar hann kom á ný að sinna kvöld-
verkunum var kassinn kominn aftur
inn í stíu. Brúsi undan sleipiefni fannst
svo í hesthúsinu en búið var að tæma
hann. Greinilegt var að sögn Silju að
brúsinn hafði verið fullur. „Það voru
svo ummerki um sleipiefni á tveimur
hryssum. Hvað gerðist nákvæmlega
veit ég auðvitað ekki.“
Samkvæmt tilkynningu frá MAST
gáfu ummerki á staðnum tilefni til
að rannsaka hvort brotið hefði verið
gegn ákvæðum dýravelferðarlaga
um samræði eða önnur kynferðis-
mök við dýr. Silja segir að lögreglan
hafi komið á staðinn um leið og
ljóst var hvað hafði átt sér stað og
líti málið alvarlegum augum. – bb
Grunur um
kynferðislega
misnotkun á
hrossum
Matvælastofnun hefur kært meinta kynferðislega
misnotkun á tveimur hrossum til lögreglu. Eigandi
hrossanna segir lögregluna telja málið alvarlegt.
saMFélag Kampavínsneysla
Íslendinga jókst um 37 prósent á
milli áranna 2015 og 2016 sé mið
tekið af sölutölum ÁTVR. Salan
hefur ekki mælst meiri síðan árið
2008 en hún féll um helming á
milli áranna 2008 og 2009 við
efnahagshrunið.
ÁTVR seldi 8.877 lítra af
kampavíni á síðasta ári en sölu-
hæstu dagarnir eru eftir sem áður
rétt fyrir áramót.
Íslendingar eru engu að
síður langt frá neyslu sinni
á kampavíni eins og hún var
mest árið 2007. Þá seldust
nærri 16 þúsund lítrar af víni
sem er algjört metár í sögu
ÁTVR. Til gamans hefur
stundum verið miðað við
svokallaða kampavínsvísi-
tölu til að meta efnahags-
ástand og hagvöxt landa.
– snæ / sjá síðu 6
Kampavínsvísitalan upp
Söluhömlum á bréfum Símans var af-
létt í byrjun árs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILheLm
Það er hálf óraun-
hæft að einhverjum
detti þetta í hug.
Silja Unnarsdóttir, eigandi hrossanna og
dýralæknir
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
C
-9
E
7
4
1
B
D
C
-9
D
3
8
1
B
D
C
-9
B
F
C
1
B
D
C
-9
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K