Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 16
Da Vinci Nano Taívanska fyrirtækið XYZ Printing kynnir nýjan þrívíddarprentara að nafni Da Vinci Nano. Eins og nafnið gefur til kynna er prentarinn einkar smár eða um tólf sentimetrar á alla kanta. Prentarinn er lokaður, annað en margir stærri prent- arar. Þá mun hann ve r ð a ó dý ra r i heldur en flestir þrívíddar- prentarar og verður hann seldur á 230 dali sem samsvarar um 26 þús- und krónum. Kérastase Hair Coach Powered by Withings Nú keppast tæknifyrirtæki við að uppgötva hvaða gömlu vörur er hægt að snjallvæða. Nýjasta vend- ingin í því kapphlaupi er snjall- hárbursti frá L’Oreal. Sá er útbúinn hljóðnema og öðrum skynjurum. Skynjar hann því hvort notandinn sé að bursta hár sitt of harkalega. Slíkt gæti valdið skemmdum á hári og er burstanum ætlað að fyrir- byggja það hvimleiða vandamál. Einnig er hann útbúinn Bluetooth- sendi svo hægt er að senda gögnin í síma notandans sem skoðar þau með þar til gerðu forriti. Nemonic Með hjálp hins smáa prentara Nemonic frá Mangoslab verður hægt að prenta út minnismiða úr símanum. Þar sem prentarinn er smár, um níu sentímetrar á alla kanta, prentar hann á smáa miða sem eru á stærð við hina víðfrægu Post-it miða. Prentarinn prentar með hita- tækni og því er ekki þörf á blek- hylkjum eða tónerum. Hann tengist við síma með Bluetooth. Active Cushioning Run Profiler Hárburstar eru ekki eina snjallvædda varan á CES í ár. Digitsole kynnir á sýningunni íþróttaskó sína Active Cushioning Run Profiler. Skórnir eru útbúnir loftpúðum sem breyta lögun á meðan notandinn hleypur í því skyni að gera þá sem þægilegasta. Skórnir eiga að auka afköst og draga úr hættu á meiðslum. Þá eru þeir útbúnir hefðbundinni tækni sem mælir skrefafjölda, vegalengd, púls og þar fram eftir götunum. Kuri V i n g j a r n l e g t h e i m i l i s v é l - m e n n i m e ð h r e y f i n g a r h a n n a ð a r a f f y r r v e r a n d i starfsmanni teiknimynda- risans Pixar verður til sýnis á CES. Vélmennið n e f n i s t Kuri og er úr smiðju s p r o t a - f y r i r - t æ k i s i n s M a y f i e l d Robotics sem er í eigu Bosch. Líkt og fjölmargir snjallhátalarar tekur vélmennið við raddskipunum og getur því minnt þig á þegar þú ert að verða of seinn á fund eða kveikt á tónlist. Vélmennið er í raun mun fjölhæfara tæki en snjallhátalarar. Það getur lesið upphátt fyrir börnin og leikið við þau og rúllað um heim- ilið án þess að keyra á með aðstoð myndavélar og skynjara. Myndavélin gerir Kuri einnig kleift að taka upp myndskeið svo eigandinn geti séð heiminn með augum vélmennisins. Þá er það útbúið skynjurum á höfði svo það geti brugðist við mann- legri snertingu. Airthings Norska fyrirtækinu Airthings er umhugað um hvort radon hafi ratað inn á heimili viðskiptavina. Því hefur það hannað radonskynjara að nafni Wave sem svipar til reyk- skynjara og virkar á svipaðan hátt. Radonmengun er hins vegar ekki algengt vandamál og því ekki öruggt að varan seljist vel. Hægt er að fá einnota radonskynjara á átta dali en Wave mun kosta um tvö hundruð dali. SteadXP SteadXP er aukahlutur sem passar á nærri allar myndavélar. Honum er smellt á vélina og hún síðan notuð eins og venjulega. SteadXP er útbúinn hreyfiskynj- urum sem eiga síðan að útrýma allri óþarfri hreyfingu myndavélarinnar. Hvort sem um myndir eða mynd- skeið er að ræða. LG PJ9 PJ9 er nýr Bluetooth-tengdur hátalari frá LG sem hefur þá sérstöðu að svífa. Hátalarinn er þráðlaus og þegar raf- hlaðan er að klárast lækkar hann flugið og lendir á dokku til þess að hlaðast. Þótt aðrir hátalarar hafi svifið er PJ9 fullkomnari og öflugri en fyrir- rennarar hans. Polar Team Pro Shirt Finnska fyrirtækið Polar hefur lengi framleitt snjallúr sem mæla púls og aðra heilsutengda þætti. Nú kynnir fyrirtækið hins vegar hvítan, erma- lausan bol sem gerir slíkt hið sama. Bolurinn er útbúinn skynjurum á bringu og baki og er honum ætlað að mæla hraða, vegalengd, hröðun, hjart- slátt og svo framvegis. Gögnin eru svo send í síma notandans með Bluetooth. Þrívíddarprentarinn frá XYZ Printing er minni og ódýrari en flestir. MYND/XYZ PRiNTiNG Kérastase-hárburstinn frá L’Oreal er snjallari en venjulegur bursti. NORDiCPHOTOS/AFP Active Cushion- ing Run Profiler skórnir breyta lögun eftir aðstæðum. MYND/DiGiT- SOLe Kuri er vélmenni sem getur leikið við börnin og eru hreyfingar hans hannaðar af fyrrverandi starfsmanni Pixar. MYND/MAYFieLD RObOTiCS Wave er radonskynjari sem svipar til reykskynjara. NORDiCPHOTOS/AFP PJ9 hátalarinn frá LG svífur í lausi lofti. MYND/LG TÆKNI Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Brot af því besta á CES 2017 Consumer Electron­ ics Show, ein stærsta neytendatæknisýning heims, hefst í dag og stendur yfir fram á sunnudag. Frétta­ blaðið tók saman brot af því áhugaverðasta sem verður til sýnis á hátíðinni. Verður þar allt frá vélmennum til svífandi hátalara. Nemonic prentar minnismiða úr farsímanum. MYND/MANGOSLAb SteadXP á að gera mynd- bönd og ljósmyndir stöðugri og lágmarka hreyfingu og hristing. MYND/ STeADXP 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r16 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð 0 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D C -9 E 7 4 1 B D C -9 D 3 8 1 B D C -9 B F C 1 B D C -9 A C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.