Fréttablaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 42
Ég sé nákvæmlega enga fram-tíð fyrir mannkynið með allt þetta yfirborðskennda unga
fólk í dag. Allt ungt fólk í dag er
gjörsamlega hömlulaust. Þegar ég
var ungur var okkur sko kennt að
haga okkur almennilega og bera
virðingu fyrir fullorðnum, en unga
fólkið í dag er bara vitleysingar og
óagað lið.
Þessi orð hér fyrir ofan eru sko
ekki mín orð. Þetta eru orð útlend-
ings sem hafði greinilega bilaðar
áhyggjur af unga fólkinu. Og við
skulum átta okkur á því að það
unga fólk sem hann var að tala
um var ekki með hryggskekkju og
hálsríg út af stórhættulegri snjall-
símanotkum. Nibb. Þessi orð eru
heldur ekki tekin af einhverri fés-
bókarsíðu eða kommentakerfi.
Þessi áhyggjufulli maður gekk um
göturnar í Grikklandi í kringum
700 fyrir Krist. Það er frekar langt
síðan sko. Þetta passaði samt allt
hjá Hesiodi kallinum. Um tuttugu
árum síðar leið mannkynið nefni-
lega undir lok. Endir.
Það er fullkomlega eðlilegt að
hafa áhyggjur af kynslóðunum
sem á eftir okkur koma. Fullkom-
lega eðlilegt! Það er svo eðlilegt
að það hefur alltaf verið þannig.
Saga kynslóðanna hljómar þann-
ig að fyrst kemur kynslóð sem á að
rústa heiminum þar til hún gerir
það ekki og þá kemur önnur kyn-
slóð sem á að gera það en gerir það
samt ekki og svo koll af kolli þar til
þú fæðist. Svo heldur sagan áfram.
Mín kynslóð var sjálfmiðuð
vídeó kynslóð sem gerði víst lítið
annað en að horfa á barnaefni um
helgar á einhverri nýrri sjónvarps-
stöð sem við þurftum nákvæmlega
ekkert á að halda. Eins og það hafi
ekki verið nóg að hafa eina stöð?
Já, sveiattan bara! Þar að auki
fór svo líka að vera sjónvarp á
fimmtudögum og meira að segja á
sumrin. Það var bara aldrei friður
fyrir þessu æskugleypandi appa-
rati. Hvenær áttu börn eiginlega
að leika sér? Og til að bæta gráu
ofan á svart þá fórum við að taka
okkur sjálf upp á handbærar víd-
eóupptökuvélar og horfa á okkur í
sjónvarpinu! Ojbara, hvílík sjálfs-
elska. Við félagarnir vorum mikið
í því að horfa á okkur. Hvílíkir egó-
istar sem við vorum. Einn góður
vinur minn átti yngri bróður sem
hékk stundum í kringum okkur og
annað svona sjálfmiðað vídeólið.
Það eyðilagði greyið drenginn.
Með tímanum varð þetta að fíkn
hjá honum. Eðlilega. Aumingja
óharðnað barnið. Þetta heltók
líf hans og seinna sökk hann svo
djúpt að hann fór að gera heilu
bíómyndirnar. Þetta var hann
Baldvin Z. Aumingja drengurinn.
Gjörsamlega einskis nýtur og
stórhættulegur samfélaginu. Fjöl-
skylda hans vonar örugglega enn
að hann nái sér einhvern daginn
og fari að gera eitthvað af viti. Eins
og að grafa skurði eða veiða fisk.
Það er að sjálfsögðu nauð-
synlegt að fylgjast með því sem
börnin okkar eru að gera. Við
eigum samt ekki að gera það í
þeim tilgangi að finna nýjar sann-
anir fyrir eilífri glötun mannkyns.
Það eru auðvitað ýmsar hættur
sem leynast í þessum heimi sam-
félagsmiðla og snjalltækja og
okkar hlutverk er að hjálpa krökk-
unum að sneiða fram hjá þessum
hættum. Við gerum það samt ekki
með því að hræða þau endalaust á
hættulega úlfinum sem muni éta
þau með húð og hári ef þau hætta
sér inn í app-skóginn ógurlega.
Þessir krakkar þurfa líka að læra
að skilgreina sig ekki eftir fjölda
læka. Það er mjög mikilvægt og
við þurfum að kenna þeim það.
Þetta er ekki auðvelt hlutverk sem
við höfum en engu að síður mjög
spennandi og það er algjör óþarfi
að hræðast það.
Ég get lofað því að næsta kyn-
slóð verður ekki eins og okkar.
Sem betur fer, því slíkt myndi
nefnilega þýða stöðnun. Næsta
kynslóð verða sennilega betri.
Hún hefur fleiri tækifæri, opnari
huga og meiri skilning á sífellt
minnkandi heimi. Ef við viljum
hafa áhrif á næstu kynslóð þá
getum við samt hugsanlega reynt
að haga okkur á þann hátt sem
við viljum að hún hagi sér og séð
hvort það virki. Ef við viljum að
krakkarnir okkar hreyfi sig þá
skulum við sjálf hreyfa okkur. Ef
við viljum að þeir borði hollari
mat þá skulum við sjálf borða
hollari mat. Hvað varðar þetta
tvennt þá eru góðu fréttirnar þær
að það er endalaust úrval af hreyf-
ingu og íþróttum fyrir krakka og
aðgengi að hollum matvörum
var svo sannarlega ekki jafn gott
þegar ég var ungur. Það eru meira
að segja til hollustuskyndibita-
staðir „for crying out loud!“ (Já, ef
við viljum að börnin okkar hætti
að sletta þá skulum við sjálf hætta
að sletta.) Ef við viljum að næsta
kynslóð virði okkur og okkar við-
mið þá skulum við virða hana og
hennar viðmið!
Og svo eru það þessi stórhættu-
legu og margumtöluðu snjalltæki.
Þetta sem allt virðist snúast um í
dag og svo margir virðast óttast.
Ástæðan fyrir því er hugsanlega
sú að þessi frábæru nettengdu
tæki eru sennilega ein magnaðasta
uppfinning síðari ára og rúmlega
það. Ef við viljum að krakkarnir
okkar hætti að nota þessi tæki þá
skulum við sjálf bara hætta því.
Einfalt, ekki satt? Ég verð samt að
viðurkenna að sjálfur treysti ég
mér ekki til þess og ég hef í raun
ekki áhuga á því. Því væri frekar
fáránlegt af mér að gera þá kröfu
til krakkanna minna. Ég get sett
þeim ramma, reglur og annað slíkt
en ég á ekki að nálgast nútímann
eins og stórhættulegt fyrirbæri
sem mun tortíma mannkyninu.
Lífið heldur áfram og mann-
kynið mun halda áfram að þróast
eins og það hefur alltaf gert. Unga
kynslóðin í dag stendur frammi
fyrir ótrúlegum tækifærum og
hún á eftir að gera hluti sem við
getum ekki látið okkur dreyma
um. Við höfum val um að fylgjast
tortryggin með, muldrandi reglu-
lega „sveiattan“ með krosslagðar
hendur, eða vera með í för og
hvetja krakkana okkar til góðra
verka með opnum hug og trú á
þeim sjálfum og þeirra eigin fram-
tíð. „Log out.“
Varnarræða næstu
kynslóðar
Birgir Örn
Guðjónsson
Það er fullkomlega eðlilegt
að hafa áhyggjur af kyn-
slóðunum sem á eftir okkur
koma. Fullkomlega eðlilegt!
Það er svo eðlilegt að það
hefur alltaf verið þannig.
„Allt í senn fróðleg, dramatísk,
hjartnæm og bráðfyndin lesning.
Ég hló og grét á víxl.”
- Edda Björgvinsdóttir leikkona
Ævisaga
Ladda
Þróunarsaga mannsins
sem kom okkur til að hlæja
„Einstök bók. Öðruvísi en allar
aðrar ævisögur sem ég hef lesið.”
- Sigurður Sigurjónsson leikari
„Skemmtilega skrifuð bók og fróðleg
um drenginn sem við öll elskum.”
- Björn Georg Björnsson leikmyndahönnuður
NÝ PRENTUN
KOMIN Í VERSLANIR
5 . j a n ú a r 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r30 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
0
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
C
-E
3
9
4
1
B
D
C
-E
2
5
8
1
B
D
C
-E
1
1
C
1
B
D
C
-D
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K