Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
N
æst þegar lesendur stað-
næmast á rauðu ljósi ættu
þeir að líta í kringum sig
og sjá hvernig aðrir öku-
menn sitja á bak við stýrið. Sveinn
Sveinsson sjúkraþjálfari hjá Gáska
segir að mörgum hætti til að sitja í
„rækjustellingu“ við akstur. „Fólk
rekur höfuðið fram og sveigir hrygg-
inn svo að vond staða kemst á líkam-
ann og truflar blóðflæðið.“
Að stilla sætið rétt, og gæta að því
hvernig setið er, stuðlar ekki aðeins að
betri líkamsstöðu heldur hjálpar til að
gera aksturinn þægilegri og jafnvel
öruggari. Þannig nefnir Sveinn að ef
fæturnir eru of beinir í akstri eða hnén
of hátt uppi er meiri hætta á áverkum
ef ekið er á.
Stillt í réttri röð
Sveinn segir landsmenn mega vera
duglegri að fikta í stillingarmögu-
leikum bílsætanna, og þegar sætið sé
stillt sé gagnlegt að gera það eftir
ákveðinni röð:
„Fyrst þarf að stilla hæð og fjar-
lægð sætisins frá fótstigunum, þannig
að fæturnir hvíli þægilega á bremsu,
bensíngjöf og kúplingu. Fjarlægðin
ætti ekki að vera svo mikil að fólk
verði að hafa fæturna beina til að ná á
fótstigin. Ef högg kemur framan á bíl-
inn er betra að hafa beygju á hnjánum
til að dempa höggið sem berst upp úr
fótstigunum. Það er líka hættulegt að
sitja svo nálægt fótstigunum að lítið
pláss sé milli mælaborðs og hnjáa, því
þá er hætt við að högg komi á hnén í
árekstri.“
Þegar hæðin á sætinu er stillt er
líka gott að huga að því að nægilegt
rými sé á milli þaks og höfuðs öku-
manns. Er æskilegt, að sögn Sveins,
að get komið a.m.k. fimm fingrum á
milli þaks og efsta punkts höfuðsins.
Bein í baki
Sætisbakið verður líka að stilla
þannig að um 90° horn sé á hrygg og
mjöðmum, rétt eins og þegar skrif-
borðsstóllinn er stilltur. Þetta stuðlar
að því að fólk sitji með bakið beint og
láti hrygginn ekki taka á sig rækjulög-
unina. „Sumum hættir til að láta sæt-
isbakið halla of langt aftur á bak, og
halla sér fram á við til að koma hönd-
unum á stýrið. Það bæði stuðlar að
verri líkamsstöðu og eykur líkur á
hálsáverka í slysi því fjarlægðin á milli
höfuðs og höfuðpúða verður lengri,“
útskýrir Sveinn. „Í árekstri kastast
líkaminn fyrst fram, og er gripinn af
öryggisbeltinu, en höfuðið kastast
fram og svo aftur til baka. Geta slysin
orðið verri ef höfuðpúðinn stöðvar
ekki hreyfingu höfuðsins aftur á bak
svo að meira álag kemur á hryggj-
arliðina, vöðva og liðbönd. Bæði verð-
ur að vera nægilega stutt á milli púð-
ans og höfuðsins og púðinn líka að vera
í réttri hæð svo að hann nemi við rétt-
an stað á hnakkanum en ekki við háls-
inn.“
Sveinn skýtur því inn að þótt yf-
irleitt sé lítið hægt að stilla aftursætin
sé höfuðpúðinn alltaf stillanlegur. „En
það virðist að farþegar séu feimnir við
að hækka eða lækka þennan púða og
finnist dónalegt að eiga við sætin í ann-
arra manna bíl. Þetta er feimni sem
fólk ætti að reyna að losna við enda er
mikilvægt fyrir öryggi fólksins í aft-
ursætinu að setja púðann í rétta hæð.“
Herðar í eðlilegri stöðu
Loks verður að færa stýrið á réttan
stað. Ætti að miða við að grípa megi
þægilega um stýrið með báðum hönd-
um, í „korter yfir níu“ stöðu, án þess
að „keyra“ upp herðarnar, og líka án
þess að stýrið byrgi sýn á mæla bílsins.
„Í akstri verður fólk að gæta þess að
halda öxlunum slökum. Okkur hættir
mörgum til að lyfta axlargrindinni og
keyra hökuna fram, sérstaklega þegar
akstursaðstæður gera okkur óróleg,
s.s. ef hálka er á vegum eða erfið færð.
Sumir stífna þá upp, og jafnvel verður
andardrátturinn grunnur og líkaminn
alveg uppgefinn þegar loks er komið á
áfangastað.“
Sveinn vill líka minna á að fólk stilli
hæð bílbeltisins. „Þetta gleymist oft,
rétt eins og höfuðpúðinn, en eykur
bæði þægindi og öryggi.“
Misjafnt er eftir bíltegundum
hversu mikið má fínstilla stöðu öku-
manns. Í dýrari bílum má oft stilla
lengd setunnar við hnésbót og getur
gagnast hávöxnum ökumönnum að fá
þann viðbótarstuðning. Þá má stund-
um hækka eða lækka fótstigin,sem
getur hjálpað lágvöxnum að bæta lík-
amsstöðuna. Einnig má oft stilla mjó-
baksstuðninginn, en þar segir Sveinn
að fólk hafi misjafnan smekk: sumum
þyki mikill mjóbaksstuðningur óþægi-
legur þótt hann hjálpi til við að halda
réttri sveigju á hryggnum.
Sumir bílar passa ekki
Sveinn segir að það geti hreinlega
verið að stóll og innrétting sumra bíl-
tegunda henti ekki fólki með ákveðna
stærð eða lögun. Sjálfur er Sveinn 190
cm á hæð og þurfti að leita lengi að
rétta bílnum þegar kaupa átti smábíl á
heimilið. „Það var ekki fyrr en á fjórða
bílnum að við fundum ökumannsrými
þar sem ég gat komist vel fyrir og set-
ið rétt.“
Verður því að láta fleira ráða bíla-
kaupunum en hvernig bíllinn lítur út
að utan eða hversu falleg innréttingin
er. „Bíllinn verður líka að passa við lík-
ama þess sem ekur honum, og þeir
sem eru í bílahugleiðingum ættu að
máta bíla með þetta í huga.“
ai@mbl.is
Ertu í keng á bak við stýrið?
Morgunblaðið/Sverrir
Að sitja rangt undir stýri getur valdið þreytu og álagi og jafnvel aukið hættu á meiðslum í árekstri.
Morgunblaðið/Eggert
Sveinn Sveinsson segir gott að stilla bílsæti og stýri í ákveðinni röð. Ekki má gleyma höfuðpúðanum.
Sumir bílar geta hreinlega ekki hentað líkamsgerðinni, sama hvað reynt er að stilla sætið
Heilbrigður rígur hefur ríkt í mill-
um Norðmanna og Svía á mörgum
sviðum um dagana. Þegar bílar
eru annars vegar víla þeir fyrr-
nefndu ekki fyrir sér að kaupa
sænskt. Því til sannindamerkis eru
fáir eins miklir Volvo-menn og
frændur okkar Norðmenn.
Þannig eru nýjustu módel
sænsku gæðabílanna, V90 og S90,
þau hafa notið mikilla vinsælda í
Noregi – og það áður en þeir eru
þangað komnir.
Þannig höfðu tæplega eitt þús-
und V90 bílar verið fyrirfram-
seldir áður en bíllinn kom á göt-
una í Noregi fyrir helgi. Þessu til
viðbótar nemur fyrirframsala af
S90-bílnum rúmlega 300 eintökum
og 460 eintökum af langbaknum
V90 Cross Country.
Þetta mun jafngilda því að fyr-
irframsala Volvo-bílanna nýju
nemi rúmlega milljarði norskra
króna, eða meira en 14 milljörðum
íslenskra króna.
Volvo hóf stórsókn með tilkomu
nýrrar útgáfu af XC90-jeppanum
fyrir tveimur árum. Á næstu
tveimur árum eða svo mun bíla-
valið frá Volvo taka miklum breyt-
ingum og eftir það verður XC90
elsta módelið í fjölskyldunni.
Verður 40-serían tekin fyrir næst
og ný kynslóð hennar væntanlega
kynnt til leiks á næsta ári, 2017.
Sýndi Volvo síðastliðið vor hug-
myndabíl sem sagður var arftaki
núverandi V40-bíls. Áætlanir
Volvo hljóða upp á að sala Volvo-
fólksbíla aukist úr um 500.000 ein-
tökum á ári í um 800.000 með til-
komu nýs V40.
agas@mbl.is
Fyrirframseldir fyrir milljarða
Morgunblaðið/
Eðalvagn Norðmenn eru sólgnir í gæðabílinn Volvo V90.
Bresku rokkararnir í hljómsveit-
inni Queen voru vanir því að vera
á toppi vinsældalista úti um allan
heim. Sveitina er og nú að finna í
efsta sæti lista yfir tónlist sem
menn spila mest í bílum sínum.
Með tilliti til heitis lagsins og
texta þarf ekki að koma á óvart
að í efsta sæti bresks lista yfir
vinsælustu bílalögin er að finna
Queen-lagið „Don’t Stop Me
Now“.
Lag þetta kom út á plötu árið
1979 og er það eitt þriggja laga
Queen meðal 10 efstu á fram-
angreindum lista. Engin önnur
hljómsveit á svo mörg lög í hópi
10 vinsælustu.
Hið fræga og goðsagnarkennda
lag „Bohemian Rhapsody“ er í
þriðja sæti yfir lög sem mest eru
leikin í bílum og „Somebody To
Love er í níunda sæti“.
agas@mbl.is
Queen drottning veganna
Vegarokk Lög rokksveitarinnar Queen eru mikið spiluð í bílum.