Morgunblaðið - 15.11.2016, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.11.2016, Qupperneq 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ M jög skiptar skoðanir eru um hvernig á að nota fæturna þegar sjálfskiptum bíl er ek- ið. Þeim sem læra á sjálfskiptan bíl í ökuskóla er kennt að nota hægri fótinn bæði til að stjórna bæði bremsu og bensíngjöf en hvíla vinstri fótinn. Margir vilja meina að það sé óhætt – og jafnvel betra – að nota báða fæturna, með vinstri fótinn á bremsunni, en aðrir segja að þeir sem bremsi með vinstri séu stórhættulegir í umferðinni. Með logandi bremsuljós Guðbrandur Bogason er í hópi reyndustu ökukennara landsins og segir hann að með vinstri fótinn á bremsunni sé hætt við að fólk sé að virkja bremsurnar án þess endi- lega að gera sér grein fyrir því. „Þetta lætur bíllinn vinna á móti sjálfum sér og framkallar bæði slit og hita. Á meðan er verið að senda öðrum ökumönnum ruglandi skila- boð enda loga bremsuljósin þó að ökumaður ætli sér ekki að hægja á bílnum.“ Að sögn Guðbrands gæti fimur og vanur ökumaður náð valdi á því að nota báða fæturna í akstri sjálf- skipts bíls en ekki er hægt að mæla með því að hinn almenni ökumaður reyni þessa tækni. „Við verðum að muna að það er fullt af fólki í um- ferðinni sem ræður ekki við mikið meira en að koma bílnum á milli staða,“ segir hann. „Það gæti hugs- ast að góður ökumaður með næma tilfinningu fyrir ökutækinu gæti nýtt sér vinstri fótar bremsun í ein- hverjum tilvikum til að hafa betri stjórn á bílnum, en það væri stór- hættuleg þróun ef ætti að reka áróður fyrir því að hinn almenni ökumaður færi að gera þetta.“ Fótstigaruglingur Sterkustu öryggisrökin fyrir því að nota aðeins annan fótinn eru að þannig sé síður hætta á að ökumað- ur stígi á bremsu og bensíngjöf samtímis þegar hann hemlar. Á móti segja fylgjendur vinstri fótar notkunar að með því að þurfa ekki að færa hægri fótinn á milli fótstiga megi hemla fyrr, enda taki brot úr sekúndu að flytja fótinn á milli fót- stiga og geti þessi stutta töf lengt hemlunarvegalengdina. Einnig koma vélrænir þættir við sögu. Bremsufótstigið er jafnan tengt við bremsukút sem notar lofttæmi til að magna upp kraftinn sem kemur á bremsukerfið þegar stigið er á fótstigið. Ef það gerist að bremsufóturinn sígur smám saman niður getur saxast á þann hjálparkraft sem lofttæmið gefur og þegar loks þarf að hemla fyrir alvöru verður ökumaðurinn að spyrna með mun meiri krafti en ella. Betri beygjur Daníel Sigurðsson rallkappi hef- ur vinstri fótinn á bremsunni þegar hann keppir, eins og raunar flestir akstursíþróttamenn. „Þorri flink- ustu ökuþóra heims bremsar með vinstri fætinum. Með því sparast sá tími sem annars færi í að færa hægri fótinn á milli fótstiga en með þessari tækni er líka hægt að auka rásfestu í gegnum beygjur. Útkom- an er meiri aksturshraði og betri tímar.“ Þeir sem eru forvitnir um tæknina sem Daníel lýsir geta fundið kennslumyndbönd á You- Tube með því að leita að „left foot braking“. Þá birtist fjöldi mynd- banda sem sýnir hvernig góð stjórn á bremsunni með vinstri fæti getur gagnast jafnt í rallakstri, á hefð- bundinni kappakstursbraut og í ut- anvegaakstri. Erfitt að temja sér Daníel er ríkjandi Íslandsmeist- ari í ralli og segir skiljanlegt að þeir sem séu að byrja að aka og aðrir sem eiga fullt í fangi með aksturinn velji að nota aðeins ann- an fótinn til að stýra fótstigunum. „Það getur líka verið erfitt að breyta til eftir að fólk hefur vanið sig á ákveðinn akstursstíl í mörg ár og áratugi og ekki reynandi fyrir alla.“ Að mati Daníels gefur það mun betri stjórn á bílnum að bremsa með vinstra fótstiginu og getur t.d. gagnast við akstur í bleytu og hálku eða á malarvegum. „Og mun- urinn á viðbragðstíma þýðir að hemlunarvegalengd gæti styst um tugi metra.“ ai@mbl.is Má nota báða fætur á sjálfskiptum? Í kappakstri getur gert gæfumuninn að bremsa með vinstri fæti en ekki ráða allir við þessa tækni AFP Morgunblaðið/Eggert Daníel Sigurðsson segir flesta fremstu akstursíþróttamenn heims hafa tamið sér að bremsa með vinstri fæti og gagnist þeim með ýmsum hætti. „Við verðum að muna að það er fullt af fólki í umferðinni sem ræður ekki við mikið meira en að koma bílnum á milli staða,“ segir Guðbrandur Bogason og varar því að fólk reyni að hafa vinstri fótinn á bremsunni. Á síðasta ári var í tímaritinu Vox ítarleg umfjöllun um akst- ur sjálfskiptra bíla með báðum fótum. Þar kom fram að með því að hafa sinn hvorn fótinn á bremsu og bensíngjöf tækist kannski að koma í veg fyrir þau 16.000 umferðarslys sem verða í Bandaríkjunum árlega þegar fólk stígur óvart á bensíngjöf- ina í stað bremsunnar. Pedalaruglingurinn getur verið mjög hættulegur, því margir ökumenn bregðast rangt við þegar þeir stíga óvilj- andi á bensingjöfina í stað bremsunnar. Þeir finna að bíll- inn færist hraðar frekar en að hægja á og eru fyrstu við- bröðgin þá oft að stíga fastar á það sem þeir halda að sé bremsupedallinn, og þannig æ fastar og fastar þangað til bíll- inn er kominn á fulla ferð. All- an tímann heldur ökumaðurinn að bremsupedallinn sé bilaður. Vox benti líka á að þótt það geti skemmt bíla að stíga sam- tímis á bremsu og bensíngjöf þá væru margir bílar í dag útbúnir tækni sem skynjaði ef ýtt væri á báða pedalana í einu og dræpi þá á vélinni. Ruglast á pedölum Tengiltvinnbílar eru það vinsælasta á norskum bílamarkaði um þessar mundir. Í huga flestra búa þeir yfir kostum raf- bíls og eru tæknilega vistvænir ásamt því sem kaupendur eru lausir við áhyggjur af drægi. Vegna vistvænna eiginleika sinna eru tengiltvinnbílar meira og minna lausir við skatta og gjöld hefðbundinna bíla. Og þeir verða enn álitlegri á næsta ári því þá verða enn gerðar breytingar á bílagjöldum í Noregi. Dregið verður úr vægi þyngdar og hestaflafjölda í gjöld- unum sem munu í staðinn fyrst og fremst taka mið af uppgefinni eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofts. Þetta mun hafa veruleg áhrif til lækk- unar gjalda af bílum eins og tengiltvinn- bílunum C 350e og GLC 350e frá Merce- des-Benz. Þeir hafa náð miklum vinsældum í Noregi og eru biðlistar eftir þeim langir. Þeir eru sem stendur hátt skattlagðir vegna vélarkraftsins upp á 279 og 320 hestöfl. Nái breytingar á bílagjöldunum eins og þau hljóða í fjárlagafrumvarpi rík- isstjórnarinnar í gegn munu þessir bílar lækka mikið í verði. Gjöld á C 350e munu lækka um 36.000 norskar krónur (um 490 þúsund íslenskra) og um 40.000 (540.000 íslenskra) á GLC 350e, að sögn norskra fjölmiðla. Sá síðarnefndi kostar nú um 600.000 norskra á götuna. Nú þegar er biðin eftir bæði GLC 350e og GLC Coupe 350e eitt ár í Noregi. Með lækkun gjalda mætti búast við að biðlist- arnir lengdust enn frekar, þrátt fyrir að umboðið hefði tryggt sér aukinn kvóta af framleiðslu þeirra. Sá sem pantar bíla af þessu tagi í dag þarf því að bíða fram- undir jól 2017 eftir sínu eintaki. agas@mbl.is Tengiltvinnbílar vinsælastir Tengiltvinnbíllinn Mercedes-Benz C350e er eftirsóttur í Noregi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.