Morgunblaðið - 15.11.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 15.11.2016, Síða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ K annski er það einhver lút- ersk hagsýni sem gæti skýrt hvers vegna blæju- bílar eru svona sjaldséðir á íslenskum götum. Það viðrar sjald- an nógu vel til að fella blæjuna niður, og þakbúnaðurinn saxar á plássið í skottinu. „Af hverju ekki að sleppa þessu bara?“ segir Íslendingurinn við sjálfan sig, heftur og bældur sem hann er. Ítalinn, aftur á móti, lætur alla skynsemi lönd og leið. Lífið er til þess gert að njóta þess, finna vind- inn í hárinu, sólina á eyrunum og spana um sveitirnar. Hvað með það þótt tveggja sæta blæjubíll sé eitt- hvert það ópraktískasta farartæki sem kaupa má – hann er þeim mun skemmtilegri. „La vita è bella!“ seg- ir Ítalinn, setur upp sólgleraugun, hnýtir peysuna um herðarnar og heldur af stað í bíltúr. Það er til lækning við því að vera niðurbrotinn Íslendingur, bugaður af norðanbyl og kreppu. Lækningin heitir Fiat 124 Spider. Nútíma klassík Fiat hóf smíði á þessu litla leik- fangi á síðasta ári og endurlífgaði þar með markaðinn fyrir netta og ódýra tveggja sæta ítalska blæju- sportbíla. Nýi bíllinn er arftaki Fiat 124 Sport Spider sem framleiddur var á árunum 1966 til 1985, og var að margra mati með snotrari bílum sem runnið hafa af ítölsku færibandi. Til marks um vinsældirnar hefur enginn annar Fiat selst eins vel á Bandaríkjamarkaði og gamla 124- týpan. Nýi 124 Spiderinn er líka í meira lagi huggulegur, en er reyndar smíð- aður alla leið austur í Japan, í verk- smiðju Mazda í Hiroshima. Kemur það til af því að bíllinn byggir að miklu leyti á Mazda MX-5 sportbíln- um. Deila þeir flestu nema ytra byrðinu og vélinni en bílablaðamenn virðast almennt vera á þeirri skoðun að Fiatinn sé skemmtilegri í akstri, þótt báðir hafi sína styrkleika og veikleika. Undir húddinu er 1,4 lítra bensín- vél sem skilar 140 ítölskum hest- öflum, nema ef keypt er bandaríska útgáfan sem er 20 hestöflum sterk- ari. Þetta þýðir að 124 Spider er engin raketta en bíllinn er þó alveg nógu öflugur og kjörinn til notkunar á þröngum og bugðóttum ítölskum sveitavegum. Fólk sem ekur alla jafna um á löglegum hraða á ekki eftir að kvarta undan kraftleysi í vél- inni. Gott farangursrými Að utan er Fiat 124 Spider glæsi- legur, þó án þess að hrópa á athygli. Útlitið er sportlegt en um leið að- gengilegt og fágað og díóðuljós gefa fallegan augnsvip. Blæjuna þarf að fella handvirkt, sem hjálpar vænt- anlega til að halda verðinu og þyngdinni niðri, og spara pláss í skottinu sem annars færi í að geyma mótora og arma. Kemur skottið enda á óvart, djúpt og mikið og á að rúma tæplega 140 lítra af farangri og innkaupapokum. Ökumaður situr mjög þægilega en það gæti valdið lágvöxnum les- endum vandræðum að ekki virðist hægt að stilla hæð sætisins. Ég gat látið hægri framhandlegg- inn hvíla þægilega á púða og gripið um leið um gírstöngina, nema að þá hætti mér til að reka handlegginn utan í stóran stjórntakkann fyrir leiðsögukerfið sem liggur mitt á milli púðans og gírstangarinnar. Þetta ætti ekki að vera vandamál á sjálfskiptu útgáfunni. Þá er geymslupláss í farþega- rýminu af mjög skornum skammti; ekkert hanskahólf, örlítið far- símabox undir framhandlegnum og smátt hólf á milli sætisbakanna. Fyrir einstaklinga og pör Fiat 124 Spider er bíll til að njóta Ljósmynd / Youssef Diop Sígildur blæjubíll endurfæðist „Er Fiat farið að gera svona fallega bíla?“ spurði einn af umbrotsmönnum blaðsins við frágang greinarinnar. Baksvipurinn er ekki amalegur. + Sérlega snotur að utan og á fínu verði - Auðvelt að reka framhandlegg utan í leiðsögukerfis- hnappinn „Fólk sem ekur alla jafna um á löglegum hraða á ekki eftir að kvarta undan kraftleysi í vélinni.“ Fiat 124 Spider er japanskur að innan en ítalskur að utan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.