Morgunblaðið - 15.11.2016, Qupperneq 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
K
annski er það einhver lút-
ersk hagsýni sem gæti
skýrt hvers vegna blæju-
bílar eru svona sjaldséðir
á íslenskum götum. Það viðrar sjald-
an nógu vel til að fella blæjuna niður,
og þakbúnaðurinn saxar á plássið í
skottinu. „Af hverju ekki að sleppa
þessu bara?“ segir Íslendingurinn
við sjálfan sig, heftur og bældur sem
hann er.
Ítalinn, aftur á móti, lætur alla
skynsemi lönd og leið. Lífið er til
þess gert að njóta þess, finna vind-
inn í hárinu, sólina á eyrunum og
spana um sveitirnar. Hvað með það
þótt tveggja sæta blæjubíll sé eitt-
hvert það ópraktískasta farartæki
sem kaupa má – hann er þeim mun
skemmtilegri. „La vita è bella!“ seg-
ir Ítalinn, setur upp sólgleraugun,
hnýtir peysuna um herðarnar og
heldur af stað í bíltúr.
Það er til lækning við því að vera
niðurbrotinn Íslendingur, bugaður
af norðanbyl og kreppu. Lækningin
heitir Fiat 124 Spider.
Nútíma klassík
Fiat hóf smíði á þessu litla leik-
fangi á síðasta ári og endurlífgaði
þar með markaðinn fyrir netta og
ódýra tveggja sæta ítalska blæju-
sportbíla. Nýi bíllinn er arftaki Fiat
124 Sport Spider sem framleiddur
var á árunum 1966 til 1985, og var að
margra mati með snotrari bílum
sem runnið hafa af ítölsku færibandi.
Til marks um vinsældirnar hefur
enginn annar Fiat selst eins vel á
Bandaríkjamarkaði og gamla 124-
týpan.
Nýi 124 Spiderinn er líka í meira
lagi huggulegur, en er reyndar smíð-
aður alla leið austur í Japan, í verk-
smiðju Mazda í Hiroshima. Kemur
það til af því að bíllinn byggir að
miklu leyti á Mazda MX-5 sportbíln-
um. Deila þeir flestu nema ytra
byrðinu og vélinni en bílablaðamenn
virðast almennt vera á þeirri skoðun
að Fiatinn sé skemmtilegri í akstri,
þótt báðir hafi sína styrkleika og
veikleika.
Undir húddinu er 1,4 lítra bensín-
vél sem skilar 140 ítölskum hest-
öflum, nema ef keypt er bandaríska
útgáfan sem er 20 hestöflum sterk-
ari. Þetta þýðir að 124 Spider er
engin raketta en bíllinn er þó alveg
nógu öflugur og kjörinn til notkunar
á þröngum og bugðóttum ítölskum
sveitavegum. Fólk sem ekur alla
jafna um á löglegum hraða á ekki
eftir að kvarta undan kraftleysi í vél-
inni.
Gott farangursrými
Að utan er Fiat 124 Spider glæsi-
legur, þó án þess að hrópa á athygli.
Útlitið er sportlegt en um leið að-
gengilegt og fágað og díóðuljós gefa
fallegan augnsvip. Blæjuna þarf að
fella handvirkt, sem hjálpar vænt-
anlega til að halda verðinu og
þyngdinni niðri, og spara pláss í
skottinu sem annars færi í að geyma
mótora og arma. Kemur skottið
enda á óvart, djúpt og mikið og á að
rúma tæplega 140 lítra af farangri
og innkaupapokum.
Ökumaður situr mjög þægilega en
það gæti valdið lágvöxnum les-
endum vandræðum að ekki virðist
hægt að stilla hæð sætisins.
Ég gat látið hægri framhandlegg-
inn hvíla þægilega á púða og gripið
um leið um gírstöngina, nema að þá
hætti mér til að reka handlegginn
utan í stóran stjórntakkann fyrir
leiðsögukerfið sem liggur mitt á
milli púðans og gírstangarinnar.
Þetta ætti ekki að vera vandamál á
sjálfskiptu útgáfunni.
Þá er geymslupláss í farþega-
rýminu af mjög skornum skammti;
ekkert hanskahólf, örlítið far-
símabox undir framhandlegnum og
smátt hólf á milli sætisbakanna.
Fyrir einstaklinga og pör
Fiat 124 Spider er bíll til að njóta
Ljósmynd / Youssef Diop
Sígildur blæjubíll endurfæðist
„Er Fiat farið að gera svona fallega bíla?“ spurði einn af umbrotsmönnum blaðsins við frágang greinarinnar. Baksvipurinn er ekki amalegur.
+
Sérlega snotur að
utan og á fínu verði
-
Auðvelt að reka
framhandlegg utan í
leiðsögukerfis-
hnappinn
„Fólk sem ekur alla jafna
um á löglegum hraða á
ekki eftir að kvarta undan
kraftleysi í vélinni.“
Fiat 124 Spider er japanskur að innan en ítalskur að utan