Morgunblaðið - 15.11.2016, Side 15
hversdagsins, kjörinn fyrir heimili
þar sem börnin eru ekki enn komin,
ekki væntanleg, eða þá flogin úr
hreiðrinu. Hann er sportlegur án
þess að vera bandbrjálað tryllitæki,
auðvelt er að setjast inn í hann og
stíga út, og jafnvel með þakið uppi
hefur ökumaður nokkuð gott útsýni í
allar áttir. Sætin duga vel fyrir lang-
ar keyrslur og þó vegar- og vél-
arhljóð berist inn í farþegarýmið, er
það samt ekki þannig að yfirgnæfi
prýðilegt hljóðkerfið.
Fiat 124 Spider er fullur af fegrandi smáatriðum eins og þessu.
Útlitseinkennin hafa haldið sér þrátt fyrir að langt hlé hafi verið gert á framleiðslunni. Myndin sýnir fagurrauðan Fiat 124 Spider árgerð 1970.
Fiat 124
Spider Lusso
Reynsluakstur
1,4 l fjögurra strokka bensínvél
m. túrbó
140 CV/ 240 Nm
6 gíra beinskipting
0-100 km/klst: 7,5 sek
Hámarkshr.: 215 km/klst
Afturhjóladrif
16”
Eigin þyngd: 1.050 kg
Farangursrými: 140 l
Mengunargildi: 148 g/km
Eyðsla: 6,7 l/100 í bl. akstri
Verð frá: Áætlað um
4.500.000 kr
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ökumaður situr í þægilegu sæti. Leiðsögukerfinu má stjórna bæði með snertiskjá og með stýripinna.
Þakið er fellt og sett upp handvirkt og tekur það enga stund. Vel hefur tekist til við að beina vindinum frá farþega og ökumanni þegar blæjuþakið er niðri.
Meðalstóri bakpokinn góði hverfur hér um bil ofan í djúpt skottið.
Ljósmynd / Wikipedia - Lothar Spurzem (CC)