Morgunblaðið - 15.11.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 15.11.2016, Síða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ Við sérhæfum okkur í vatnskössum og bensíntönkum. Gerum við og eigum nýja til á lager. Þ að er til marks um aukin umsvif á bílamarkaði eftir alltof mörg mögur ár í kjöl- far hrunsins að nýtt bíla- umboð haslar sér völl. Fyrirtækið heitir Ís-Band – sem stendur fyrir Ís- lensk-Bandaríska – og er umboðs- aðili fyrir Fiat Chrysler hér á landi en fyrirtækið hefur þess utan verið öflugt við innflutning á jeppum frá Jeep og Dodge auk Ram-pallbílanna. Það er því við hæfi að máta eins og einn jeppa frá Jeep til að bjóða Ís- Band velkomna til leiks og úr varð að reynsluaka Jeep Renegade í svokall- aðri Trailhawk-útgáfu. Sérstakur að sjá – en venst Það er kunnara en frá þurfi að segja að í seinni tíð hefur það færst í aukana að framleiddir séu bílar með „sérstakt“ útlit til að mæta óskum og kröfum þeirra sem vilja skera sig úr. Meðal slíkra ökutækja má nefna bæði Nissan Juke og Citroën Cactus; bílar sem sumir elska og aðrir elska að hata. Hvorum megin sem fólk skipar sér í sveit þá er óumdeilt að eftir slíkum bílum er tekið á götunum og þesslegur bíll er Jeep Renegade. Hann er reffilegur að sjá og snagg- aralegur og sigraði undirritaðan ekki við fyrstu sýn. En reynsluakstur yfir röska tvo sólarhringa mýkti mig all- nokkuð í afstöðu minni til bílsins því hann reyndist fínasti akstursbíll, þéttur og góður, og að skilnaði má segja að ég hafi „skilið“ hann betur. Þar sem um alvöru jeppa er að ræða, með háu og lágu drifi vel að merkja, þá má hann alveg vera svolítið óbyggðalegur í laginu. Það fer hon- um bara vel. Rammgerður og sterkbyggður Að innan kemur Renegade skemmtilega á óvart. Það er talsvert lagt í hönnunina og þó er ekkert pjatt í gangi heldur rímar útlitið innan- dyra vel við ytra byrðið. Hér virkar allt traust og rammgert og ökumaður fær gott öryggi á tilfinninguna. Trail- hawk-útgáfan sem reynd var skartar skemmtilegum áhersluumgjörðum kringum gírstöng, hátalara og aðra slíka staði og ljær bílnum skemmti- legan svip að innan og brýtur upp annars kolsvarta innréttinguna. Mælaborð og aðstaða ökumanns er vel heppnuð, góður snertiskjár held- ur utan um helstu hluti sem þarf að eiga við og hátalararnir, sem eru frá Beats By DrDre, skila fínasta hljóði. Plássið er gott og einkum er hátt til lofts, sem gerir bílinn þægilegan til ferðalaga. Merkilega sprækur í akstri Fyrst í stað virkaði Trailhawk ei- lítið stirðbusalegur en þegar und- irritaður vandist bílnum og fann taktinn, ef svo má segja, samdi okkur prýðilega. Þetta er jeppi, svo því sé haldið til haga. Trailhawk er kraft- mesta útfærslan af Jeep Renegade og vélin með sínum 170 hestöflum skilar togi sem nemur 350 Nm og bíllinn er skemmtilega kvikur þegar gefið er í. Reyndar gafst ekki færi á að prófa bílinn almennilega utanvega en hann býr að skínandi góðri fjöðr- un sem væntanlega er til marks um ágætis eiginleika þegar komið er út fyrir malbikið. Jeep Renegade Trailhawk er skikkanlega verðlagður fyrir jepp- ann sem hann er og kostar frá tæp- um sex milljónum króna. Fyrir hóp- inn sem eltist við bíla sem eru auðþekkjanlegir á sérstöku útliti og skera sig úr í umferðinni er hér kom- inn jeppi sem telst býsna góður kost- ur. Jeep Renegade er kominn á klakann Morgunblaðið/RAX Það er hátt undir Jeep Renegade og sterklegir plastkantar sjá til þess að lakkið fari ekki illa í ófærum. Sjö raufa grillið er kunnuglegt á Jeep Renegade (sbr. Jeep Li- berty) en hann ætti engu að síður að vera auðþekkjanlegur. Baksvipurinn er af sama meiði og útlitið allt, sterklegt en sérstakt. Jeep Renegade Trailhawk Reynsluakstur 2,0 lítra díselvél 170 hestöfl/350 Nm 9 gíra sjálfskipting 0-100 km/klst: 8,9 sek Hámarkshr.: 195 km/klst Fjórhjóladrif 17“ álfelgur Eigin þyngd kg: 1.606 Farangursrými: 351 L Mengunargildi: 155 CO2/km Verð frá: 5.990.000 kr. 5,8 L/100 km í bl. akstri Umboð: Ís-Band Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Innréttingin er vel út garði gerð, stýrið gott og snertiskjárinn góður. + Þéttur, skemmtilega innréttaður, sprækur - Það þarf að venjast útlitinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.