Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17 Suzuki bílar hf • Skeifan 17 • 108 Reykjavík • Sími 568 5100 • www.suzuki.is SUZUKI Grand Vitara V6 Skr. 09.2008, ekinn 90 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur, leður, sóllúga, dráttarbeisli. Verð 1.990.000. Rnr.101417. MAZDA 3 Core. Skr. 09.2015, ekinn 17 Þ.KM, bensín, 6 gírar. Verð 2.690.000. Rnr.101412. HONDA Jazz Elegance Skr. 05.2014, ekinn 42 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Verð 2.480.000. Rnr.101430. LEXUS IS250 Skr. 09.2006, ekinn 74 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur, leður. Verð 1.990.000. Rnr.101426. CHEVROLET Cruze Skr. 12.2014, ekinn 18 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Verð 2.980.000. Rnr.101404. SUZUKI SX4 GLX 12.2009, ekinn 102 Þ.KM, bensín, 5 gírar. Verð 1.690.000. Rnr.101314. SUZUKI Swift GL 4x4 Skr. 06.2015, ekinn 41 Þ.KM, bensín, 5 gírar. Verð 2.290.000. Rnr.101377. SUZUKI Swift GL Skr. 01.2009, ekinn 95 Þ.KM, bensín, 5 gírar. Verð 990.000. Rnr.101445. NOTAÐIR BÍLAR SKODA Fabia Combi Ambiente Skr. 08.2013, ekinn 81 Þ.KM, dísel, 5 gírar. Verð 1.950.000. Rnr.101447. Komdu og skoðaðu úrval ið S íðastliðinn fimmtudag, hinn 9. nóv- ember, var boðað til blaðamanna- fundar um borð í hópferðabifreið í eigu Austfjarðaleiðar þar sem ætl- unin var m.a. að kynna ráðstefnuna Bílar, fólk og framtíðin sem haldin verður í þessari viku, nánar tiltekið hinn 17. nóvember í Hörpu. Þar verður skyggnst inn í framtíð bílsins, hlutverk hans og þau víðtæku samfélagslegu áhrif sem aukin sjálfvirkni og önnur tækniþró- un þessa samgöngutækis og umhverfis þess mun leiða til, eins og Einar Magnús Magn- ússon, sérfræðingur í kynningarmálum hjá Samgöngustofu, segir frá. Áleitnar spurningar um framtíð bílaumferðar Eins og framar greindi fór blaðamannafund- urinn fram um borð í hátæknirútu og segir Einar það enga tilviljun. „Þessi rúta gefur svo- litla innsýn í það hverju við stöndum frammi fyrir varðandi tækninýjungar í bílaiðnaðinum og samgöngumálum um leið. Það er einmitt ætlunin á þessari ráðstefnu, sem ber yfir- skriftina „Bílar, fólk og framtíð“ að skyggnast aðeins inn í þennan heim og skoða hann í nútíð og framtíð. Við þurfum líka að átta okkur á því að það er mjög margt sem er orðið raunveru- legt nú þegar í þessum heimi sem margir eiga jafnvel erfitt með að trúa að eigi sér stað. Á ráðstefnunni munum við leita svara við ýmsum krefjandi spurningum, svo sem „hvernig er ökutæki framtíðarinnar?“, „hvernig verða veg- ir framtíðarinnar?“ og „mun eiginlegur öku- maður heyra sögunni til?“ segir Einar Magnús ennfremur. Erlendir sérfræðingar mæta Auk þess að dregin verður upp mynd af framtíð bílasamgangna verður meðal annars erindi Toms Palmaerts sem er svokallaður „Trendwatcher“ og mun hann fjalla um ýmsar þær nýjungar tengdar bíltækninni, strauma þess og stefnur og ýmis samfélagsleg áhrif. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri mun fjalla um vegakerfi framtíðarinnar en Hreinn hefur víðtæka þekkingu og yfirsýn yfir þá þróun sem á sér stað í þessum efnum. Aled Williams, verkefnastjóri EuroNCAP, mun fjalla um umferðaröryggi framtíðarinnar og hvort umferðarslys geti jafnvel, í framtíðinni, heyrt sögunni til. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuvernd- ar, mun fjalla um persónuvernd samhliða öll- um þeim gagnaflutningi og upplýsingum sem munu streyma til og frá ökutæki framtíð- arinnar. Hver á þær upplýsingar og hver mun geta átt aðgang að þeim t.d. við rannsókn á slysum og sakamálum. Gunnar Haraldsson hagfræðingur mun velta fyrir sér efnahagslegum áhrifum sam- gangna í nútíð og framtíð en ljóst er að gríð- arleg breyting getur átt sér stað varðandi at- vinnu, ábyrgð og efnahagslegan ávinning þessa heims sem skyggnst verður inn í á ráð- stefnunni. Ráðstefnan er öllum opin Að sögn Einars Magnúsar er þetta ráð- stefna fyrir fagaðila, opinbera aðila og aðra sem tengjast bílgreininni, umhverfi hennar og umferðaröryggi. „Áherslan verður lögð á að upplýsa um núverandi stöðu, innanlands og er- lendis, framtíðaráform og þróun innan grein- arinnar og hvernig við getum brugðist við þeim miklu breytingum sem framundan eru.“ Ráðstefnan er öllum opin og hægt er að afla sér nánari upplýsinga og skrá þátttöku á heimasíðunni www.bff.is. jonagnar@mbl.is Ráðstefnan Bílar, fólk og framtíð haldin fimmtudaginn 17. nóvember Hver er framtíð bíla og fólks í þeim? Kynningarfundur fyrir ráðstefnuna „Bílar, fólk og framtíð“ fór fram í veglegr hátæknirútu með ýmsan akstursbúnað sem rímar við þá sjálfvirkni sem bílar eru í auknum mæli búnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.