Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 19
gaumgæfa þennan sérstaka bíl.
Hann brosti allan hringinn þegar ég
sagði honum að væri í fínasta lagi að
taka mynd.
Erfið sambúð
Fallegur er hann, og alveg nógu
hraðskreiður, en Alfa Romeo 4C er
allt annað en auðveldur bíll að búa
með. Þegar ég settist fyrst inn í bíl-
inn þurfti ég að hafa svo mikið fyrir
því að smokra mér í bílstjórasætið
að ég fékk krampa í annan fótinn.
Er ég samt nokkuð léttur og lipur.
Sætin eru hörð, fjöðrunin stíf og
þarf sterka handleggi til að ráða við
stýrið þegar ekið er í og út úr bíla-
stæði. Skottið rúmar varla mikið
meira en einn bakpoka og þarf að
hafa mikið fyrir því að opna skott-
lokið enda er það þungt og opnast
aðeins með því að ýta á takka inni í
farþegarýminu – sem kemur sér
ekki vel ef maður er með fangið fullt
af innkaupapokum. Útsýni öku-
manns til hægri er frekar takmark-
að og meiriháttar kúnst að leggja
bílnum í þröng ítölsk stæði.
Í akstri rennur síðan upp fyrir
manni af hverju hönnuðirnir lögðu
svona litla áherslu á útvarpið: þegar
komið er út á hraðbrautirnar verður
hávaðinn í farþegarýminu svo mikill
að ekki heyrist mannsins mál.
Ekta akstursupplifun
En þrátt fyrir að vera óþægilegur
og erfiður býr 4C yfir einhverjum
göldrum sem er ómögulegt að
standast. Hver bílablaðamaðurinn á
fætur öðrum hefur fallið fyrir þess-
um bíl, þrátt fyrir alla ókostina.
Einn gárunginn lýsti því þannig að
þetta væri hinn fullkomni fimmti bíll
í bílskúrinn. Það sem heillar er bæði
útlitið og hráir og óbeislaðir akst-
urseiginleikarnir. Þetta er ökutækið
fyrir menn og konur sem hafa virki-
lega gaman af að aka kröftugum,
næmum og krefjandi bíl sem höfðar
til hjartans frekar en til skynsem-
innar.
Sætin eru falleg, þó ekki sé hægt að stilla þau. Allt er gert til að létta.
Lítið hólf er milli sætanna.
Farþegarýmið er allt sniðið að ökumanninum. Velja má um þrjár akstursstillingar s.s. fyrir hálku og span.
Ekkert truflar tilfinninguna. Hjólin eru sem beintengd við ökumann.
MORGUNBLAÐIÐ | 19
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að skipta um
tímareim miðað við þann kostnað og
óþægindi sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á
tímareiminni
í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313