Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Umhverfisvænir bílar verða sífellt
meira áberandi í umræðunni og
hefur svo verið á undanförnum ár-
um. Framleiðendur vinnuvéla hafa
líka verið duglegir í þessari þróun í
átt að umhverfisvænum vélum og
nú hefur Komatsu kynnt til sög-
unnar úrval Hybrid-vinnuvéla í þó-
nokkur ár. Íslendingar hafa ekki
fjárfest í umhverfisvænum vinnu-
vélum af þessu tagi fyrr en nú.
36 tonna tengitvinngrafa
Í vikunni kom fyrsta græna
vinnuvélin til Íslands og er hún af
gerðinni Komatsu HB365LC, sem
er 36 tonna beltagrafa. Í tilefni af
þessari afhendingu efndi mann-
skapurinn hjá Kraftvélum til boðs-
sýningar og var vélin afhent til nýs
eiganda síðastliðinn fimmtudag, 10.
nóvember. Kaupandi vélarinnar er
Ingileifur Jónsson ehf.
jonagnar@mbl.is
Eru „grænar“ vinnuvélar framtíðin?
Hybrid-gröfur kynntar til leiks
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsældir rafbílsins Nissan Leaf hafa aukist
verulega það sem af er ári í Evrópu, sala
hans hefur aukist um 10% miðað við fyrra ár.
Aukning í sölu rafbíla á árinu hefur haldist
nokkuð í hendur við fjölgun hleðslustöðva í
bæjum og borgum álfunnar. Þá hafa stjórn-
völd sýnt vistvænum samgöngum aukinn
áhuga með fjárhagslegum ívilnunum við kaup
á rafknúnum bílum.
Nissan hefur notið þessa en Leaf mun vera
söluhæsti rafbíll heims. Munu yfir 75 þúsund
Leaf vera á götum álfunnar.
Aukið úrval rafknúinna ökutækja
Rafbílamarkaðurinn í Evrópu vex hröðum
skrefum, neytendur snúa sér í auknu mæli að
þeim margvíslega ávinningi sem rafknúinn
ferðamáti veitir,“ segir Gareth Dunsmore,
sem fer með málefni rafbíla í framkvæmda-
stjórn Nissan í Evrópu.
Hann segir bílsmiðinn stefna að því að
bjóða viðskiptavinum um heim allan öruggari
og sjálfbærari framtíð með auknu úrvali
rafknúinna farartækja. Á sama tíma og raf-
bílasala færist í aukana í Evrópu er öldin önn-
ur hjá andfætlingum okkar í Ástralíu. Það
sem af er ári hafa einungis 42 eintök af Niss-
an Leaf verið seld þar frá áramótum til októ-
berloka. Og það sem verra er, þá er þetta
64% fækkun frá sama tímabili í fyrra.
Nissan hefur ákveðið að smíða sportlega
sérútgáfu af Leaf sem fengið hefur mód-
elheitið Black Edition, eða sem útleggja
mætti sem „Svarta sortin“. Kemur hann á
götuna í mars á næsta ári og verður að lík-
indum framleiddur í takmörkuðu upplagi.
Hann er byggður á Acenta-útfærslunni af
Leaf og búinn öflugasta rafmótor sem fáan-
legur er í Leaf, 30 kílóvatta aflrásinni sem
fyrst sá dagsins ljós í Laufi í mars í ár. Vind-
skeið efst á afturbrún þaksins, 16 tommu
svartar felgur, og díóðu háljós gefa Svörtu
sortinni sportlegt yfirbragð. Innréttingin
verður mun íburðarmeiri en í hefðbundnum
Leaf.
agas@mbl.isSvarta sérútgáfan af Nissan Leaf er mun sportlegri.
Nissan Leaf gengur hraðar út
„Svarta sortin“ frá Nissan er vinsæl
Hvað gleður augað meira en fal-
legt mótorhjól með gamla laginu?
Sé hjólið sem um ræðir hið sígilda
V7 frá Moto Guzzi er það sann-
arlega fátt. Café Racer-hjól njóta
vinsælda sem aldrei fyrr og 50
ára afmælisútgáfur Moto Guzzi
hitta alla þá sem gaman hafa af
gömlum hjólum í hjartastað. Fyr-
irtækið kynnti nýverið til sög-
unnar þrjár nýjar útfærslur af
þessu nafntogaða hjóli, hverja
annarri fallegri, og kallast línan
V7 III.
Hún inniheldur þrjár mismun-
andi týpur sem kallast Racer,
Stone og Special. Þó ekkert sé til
sparað í fortíðarsjarmanum hefur
eitt og annað verið uppfært til að
mæta nútímaöryggiskröfum og
má þar nefna ABS-hemlalæsivörn,
gripstýringu og svo má tengja
hjólið við smáforrit í snjalltækjum
til að taka upp hraðamet, aksturs-
vegalengdir og annað slíkt sem
eigendur hjólanna kunna að vilja
halda upp á. Sem er vel, en aðal-
atriðið er eftir sem áður tímalaus
sjarmi þessara fallegu hjóla.
jonagnar@mbl.is
Moto Guzzi kyndir vel undir fortíðarþránni
Moto Guzzi V7 III Racer.
Klassíkin er nýjasta nýtt frá mótorhjólaframleiðandanum Moto Guzzi
Moto Guzzi V7 III Special.Moto Guzzi V7 III Stone